Skemmdir á útihúsum í Freysnesi
Skemmdir urðu á útihúsum í Freysnesi í Öræfum í rokinu sem gerði í gærmorgun, framhlið hússins og hurð sekktust. Jón Benediktsson í Freysnesi sagði að byrjað hefði að hvessa uppúr klukkan átta um morguninn milli 10 og 11 hefði veðurhæðin verið mest og sagði hann að þetta væri með því hvassasta sem hann myndi eftir þarna. Enginn vindmælir er í Freysnesi en í Sandfelli mældist vindurinn mest 46m. Um hádegi var komið logn, sólskin og hlýindi. Engin snjókoma fylgdi þessu veðri eins og víða annarsstaðar.
Í Svínafelli komu sprungur í rúður en ekki varð annað teljanlegt tjón. Svo mikill var veðurofsinn þar að Ólafur Sigurðsson lagði ekki í að fara á bíl sínum frá Svínafelli austur á Fagurhólsmýri í morgun og fékk Dreka björgunarsveitarinnar til að sækja sig. Drekinn hefur oft komið að góðum notum við fólksflutninga milli bæja í Öræfum þegar svona ofsaveður verða og komið bílum til hjálpar. Eftir hádegi var sumarblíða í Svínafelli og 10 stiga hiti.





Skrifa athugasemd