Nóvember
Hanni Heiler gæðir hestunum á brauði
Hanni Heiler gæðir hestunum á brauði

05.11.2003 Nóvember

Á annað þúsund hestar og nautgripir

Hornfirðingar hafa löngum þótt eiga mikið af góðum hestum og gæðingum og eru margir þeirra landsfrægir. Ekki liggja fyrir tölur um hestaeign hornfirðinga á þessu hausti en haustið 2002 voru 1365 hross í Sveitarfélaginu Hornafirði. Bændur á Mýrum áttu flest hross, alls 470 á 13 bæjum og þar var hestakóngur sveitarfélagsins með 300 hross. Næstir koma Nesjamenn, 22 bændur með 368 hross, þar var stærsti hrossa-bóndinn með 74 hross. Öræfingar á 12 bæjum áttu 200 hross og þar voru flest 74 hross á heimili. Á Höfn voru skráð 172 hross á 32 eigendur sem áttu frá einu hrossi uppí 15. Þrír bændur í Lóni eiga 31 hross mest 16 á bæ.

Grétar M. Þorkelsson hjá Búnaðarsambandi A-Skaft. segist eiga von á að fjöldi hrossa sem sett verða á í haust verði svipaður en nautgripum muni fjölga. Fjöldi nautgripa á svæðinu var 1121 og þar höfðu bændur í Suðursveit vinninginn. Þar voru 374 nautgripir og flestir 74 á bú. Átta bændur á Mýrum voru með 361 grip, mest 125 á bú. Á níu búum í Nesjum voru 305 gripir, mest 70 á bú og í Öræfum 74 gripir á fimm bæjum, mest 40 á bæ. Sjö nautgripir voru á tveim bæjum í Lóni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica