Nóvember
Fyrsti snjór vetrarins
Fyrsti snjór vetrarins

04.11.2003 Nóvember

Nú er það svart, allt orðið hvítt!

Fyrsti snjór vetrarins á Hornafirði féll til jarðar í morgun. Töluverður vindur fylgdi ofankomunni en undir hádegi hafði veður gengið nokkuð niður. Krakkarnir voru fljót að nýta sér snjóinn og voru mætt út með sleða og þotur, enda vita hornfirsk börn að oft er stoppar snjórinn stutt við á Hornafirði, enda er spáð rigningu er líður á daginn.

Veðurstofan spáir hægara veðri með skúrum eða rigningu síðdegis í dag og suðlægri átt 8-13 m/s og rigning á morgun. Hiti 0 til 5 stig í dag, en 3-8 á morgun.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica