Allir á skauta
Með kólnandi veðri breytast leikir barnanna, eins glöggt hefur mátt sjá hér á Hornafirði undanfarið. Skautarnir eru dregnir fram og hin margrómaða “Gaggótjörn” fyllist af ungu fólki sem rifjar upp kunnáttu sína og færni á skautum. Reyndar er ásóknin svo mikil að varla sér í auðan blett á tjörninni þegar best lætur.
Það væri mikið tilhlökkunarefni ef hægt væri að koma á móts við skautaglaða æsku og láta útbúa svæði þar sem dæla mætti vatni á og búa til enn betri aðstæður til skautaiðkunar. Eins mætti hafa það í huga þegar frost er og stillt í veðri að dæla vatni á ísinn á “Gaggótjörninni” að kvöldi og fá í staðinn spegilslétt og fínt skautasvell að morgni.





Skrifa athugasemd