Fagna 40 ára afmæli og vígja nýtt húsnæði
Um helgina fór fram formleg opnun hjá HP sonum á nýju og stórglæsilegu 730 fermetra húsnæði að Álaugarvegi 8, en þá var einnig fagnað 40 ára afmæli HP í vöruflutningum til Hafnar. Allt byrjaði þetta með símtali Heiðars Péturssonar til Ásgríms Halldórssonar kaupfélagsstjóra þar sem erindið var að kanna möguleika á að hefja flutninga með vörur fyrir Kaupfélagið til og frá Höfn og var niðurstaða þess samtals að Heiðar ákvað að takast á við flutingarleiðina sem af mörgum var talin mjög erfið og hófust þær 1963.
Þegar hann kom í sinni fyrstu ferð til Hafnar mun honum ekki hafa litist sem best á þennan rekstur, Ásgrímur hughreysti hann með því að fyrsta ferðin væri alltaf erfiðust.
Þegar Heiðar hafði verið einn með þennan rekstur í um það bil eitt ár kom Gísli Sigurbergsson til liðs við hann. Ráku þeir þessa starfsemi saman allt til ársins 1969, en þá lögðust þessir flutningar af um tíma. Ekki mun ofsögum sagt að flutningaleiðin Höfn - Reykjavík hafi verið ein sú erfiðasta á landinu á þessum tíma. Á sumrin var farið norður um land nærri hringinn í kringum landið, á veturna var reynt að fara suðurleiðina væri hún talin fær, en á þeirri leið voru illfær stórfljót. Árið 1969 lögðust þessir flutningar niður og fluttist Heiðar og fjölskylda suður sama ár. Upp úr 1970 var ákveðið að brúa stóru árnar á Skeiðarársandi og opna þar með hringveginn, þarna opnuðust möguleikar á að fara aftur í flutningana og árið 1973 hóf Heiðar og kona hans, Hugrún Kristjánsdóttir á ný ferðir til Hafnar. Synir Heiðars þeir Heimir og Hreggviður hófu akstur 1979 og 1981 eða um leið og þeir höfðu aldur til. Heiðar þurfti að hætta sökum veikinda 1983 en um það leiti bættist Júlíus Guðmundsson tengdasonur Heiðars og Hugrúnar í bílstjórahópinn.
Starfsemin jókst á þessum árum m.a. vegna flutninga fyrir herinn. Árið 1988 festi fyrirtækið kaup á aðstöðu fyrir vöruafgreiðslu að Víkurbraut 5. Árið 1989 bættist afgreiðsla ÁTVR á Höfn við rekstur fyrirtækisins auk flutninga fyrir þann verslunarrekstur.
Margt hefur breyst síðan Heiðar Pétursson hóf flutninga til Hafnar á einum bíl, nú er HP með daglegar ferðir í báðar áttir, og upp í 2 til 3 bíla á dag þegar best lætur.
Bílakostur fyrirtækisins er í dag 5 flutninga bílar og 2 sendibílar auk lyftara, en í dag er fyrirtækið að taka í notkun nýjan bíl sem er af gerðinni Iveco Stralis.
Gestum var boðið upp á veitingar og séra Einar Jónsson blessaði húsið og Karlakórinn Jökull tók nokkur lög í tilefni dagsins.





Skrifa athugasemd