Vélsmiðjan Foss tekur þátt í stofnun nýs fyrirtækis
Nýtt þjónustufyrirtæki, Hofsel, hóf formlega starfssemi sína í s.l. viku. Það eru fyrirtækin Héðinn í Garðabæ, Vélsmiðjan Foss og Hagverk í Fellabæ sem standa að stofnun Hofsels. Fyrirtækinu er ætlað að veita alhliða þjónustu á sviði málmiðnaðar og leggur sérstaka áherslu austfirskan markað. Hofsel veitir alhliða þjónustu á sviði málmiðnaðar og leggur sérstaka áherslu á austfirskan markað.
Fyrirtækið er vel tækjum búið og þar verður lögð rík áhersla á að leysa, á sem farsælastan hátt, öll þau verkefni sem þangað berast.
Verði málin ekki leyst á staðnum, standa þétt að baki Hofseli öflugir samstarfsaðilar með fyrsta flokks tækjabúnað á öllum sviðum málmiðnaðar og fjölda reyndra fagmanna í sinni þjónustu, vélfræðinga, rennismiði, plötusmiði, verkfræðinga og tæknifræðinga. Þjónusta Hofsels nær þannig yfir allar hliðar málmiðnaðar, hvort sem um er að ræða viðhald, nýsmíði eða hönnun.





Skrifa athugasemd