Nóvember
Hvernig væri að fá íslensku hænuna sem húsdýr
Hvernig væri að fá íslensku hænuna sem húsdýr

03.11.2003 Nóvember

Íslenskar hænur sem húsdýr á Höfn?

Vaxandi áhugi hefur verið undanfarið á íslensku hænunum og um helgina varð fyrsti hænsnaklúbburinn á Íslandi til. Íslensku hænurnar og hanarnir (landnámshænsnin) eru talin sérstaklega vitur og skemmtileg húsdýr og eggin úr þeim miklu betri en úr hænum t.d. af ítölskum ættum, sem ræktaðar eru í hænsnabúum.

Ólafur Dýrmundsson ráðunautur hjá bændasamtökunum, í lífrænum búskap og fleiru, segir að á síðasta ári hafi verið giskað á að um 2000 hænur af þessum íslenska stofni væru til í landinu, yfirleitt fáar á hverjum stað. Í Austur Skaftafellssýslu eru nokkrir aðilar sem eiga hænur af þessum stofni.
Hvað þurfa þeir sem búa á Höfn að gera til að fá að hafa nokkrar hænur í garðinum hjá sér? Valur Sveinsson umhverfisstjóri hjá Hornafjarðarbæ var ekki alveg með það á hreinu en taldi þó að fyrst væri að senda inn umsókn til bæjarstjórnar. Umsóknin þyrfti síðan að fara til byggingarnefndar til umfjöllunar þar sem slík starfsemi sem þessi gæti haft áhrif á nágrannana, einnig þyrfti leyfi heilbrigðisfulltrúa og jafnvel að fara í grenndarkynningu. Valur sagði að allavega væri ekki fyrirséð, svona í fljótheitum, hvernig staðið yrði að þessu, líklega yrði málið sent í nefnd til umfjöllunar.

Ólafur Dýrmundsson segir að enginn vandi sé að hafa nokkrar hænur sé vel gengið frá þeim en segir að þó séu ákveðin skilyrði sem fólk þurfi að uppfylla og það er:
1. Hafa þokkalegt hús fyrir þær og að allur aðbúnaður sé góður og þrifalegur.
2. Verða að vera í góðri girðingu með neti yfir, því óþolandi er að hænurnar geti hlaupið yfir í garða nágrannanna.
3. Helst ekki að hafa hana, af tillitssemi við nágrannana, haninn eyðileggur allan svefnfrið snemma á morgnana með sínu háværa gali sem heyrist langar leiðir.
Það er sem sagt ekki útilokað að íbúar þéttbýlisins geti átt nokkrar púddur
í garðshorninu og fengið vistvæn egg, oft kölluð hamingjuegg til heimilisins.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica