Ríki Vatnajökuls
Ferðamálafélag Austur Skaftafellssýslu og Ferðamálafélag Skaftárhrepps hafa boðað til sameiginlegs málþings í Freysnesi 5. nóv.nk. Tilefni þessa málþings er að fjalla um samstarf í ferðamálum og markaðssetningu á svæði ferðamálafélaganna, sem nær frá Mýrdalssandi og austur í Lón. Rætt verður um stofnun Vatnajökuls-þjóðgarðs og stöðu ferðamála í nýju kjördæmi.
Skoða þarf hvernig ferðafélögin í Skaftafellssýslum geta átt samleið til að efla ferðaþjónustu og markaðssetningu á svæðinu og hvernig þau geta sótt fram sameiginlega segir Sigurlaug Gissurardóttir, sem hefur ásamt fleirum, unnið að undirbúningi málþingsins.
Við leituðum til Atvinnuþróunarstofu Austurlands og Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands um að koma með innlegg frá þeirra sjónarmiði inn í þetta verkefni sem við köllum ,,Er samráð vænlegur kostur” segir Sigurlaug. Auk þess leituðum við til Péturs Rafnssonar hjá Ferðamálaráði og til Ferðamálasamtaka Íslands um að koma með innlegg, einkum um upplýsingamiðstöðvar, mál sem hefur verið svolítið í lausu lofti vítt og breytt um landið, einnig hér. Pétur mun upplýsa hvað hefur gefist vel og hvað ekki að hans mati með upplýsingamiðstöðvar .
Elías B. Gíslason hjá Ferðamálaráði Akureyrar mun kynna skýrslu um auðlyndir Íslands með tilliti til ferðaþjónustu þar sem landinu er skipt upp í markaðssvæði, ekki eftir kjördæmum heldur er reynt að meta og skoða hvernig ferðamenn hafa skipt landinu. Til dæmis um það, er Austurland sérstakt markaðssvæði sem nær úr Þingeyjarsýslu að Mýrdalssandi og síðan er hægt að skipta því svæði í smærri markaðssvæði.
Á málþinginu verður kynning á verkefni sem unnið er að þróun á, það er að greina vannýtt tækifæri í námunda við þjóðgarða og hvaða efnahagslegt gildi þjóðgarðar hafa fyrir nærliggjandi svæði. Það er full ástæða til að allir sem áhuga hafa á að auka og efla ferðaþjónustu í Hornafirði og þau störf sem henni tengjast komi á málþingið og taki þátt í þessu verkefni. Þetta málefni skiptir okkur öll hér svo miklu máli, en það skeður ekkert ef áhugi og þátttaka fólksins sem hér býr er ekki til staðar segir Sigurlaug.





Skrifa athugasemd