Nóvember

Jólatrén skarta sínu fegursta

Nú geta hornfirðingar fellt sín jólatré sjálfir - 29.11.2003 Nóvember

Sunnudaginn 14. desember gefst Hornfirðingum kostur á að fara í skógræktarsvæðið inni í Haukafelli velja sér jólatré og fella það sjálfir. Rannveig Einarsdóttir svæðisstjóri hjá Suðurlandsskógum segir að búið sé að merkja þau tré sem megi höggva og sé þau frá hálfum metir uppí fjögurra metra há. Þetta er sitkagreni og stafafura einnig verður hægt að fá bæði furu og birkigreinar. Ekki er búið að ákveða verð á trén ennþá en það verður í samræmi við markaðsverð á jólatrjám. Lesa meira
 
Unnið við stækkun á vélasal

Stækka vélasal - 27.11.2003 Nóvember

Nú er unnið við stækkun á vélasal Skinney-Þingness og að þeirri framkvæmd lokinni færast frystivélarnar sem staðsettar hafa verið í gámum við hráefnistankana í hús. Eftir flutninginn verða vélarnar keyrðar með rafmótorum í stað díselvéla. Áætlað er að verkinu ljúki í vor og er aðalverktaki við bygginguna Sveinn Sighvatsson. Lesa meira
 
Sólsetur

Hálkan á undanhaldi - 27.11.2003 Nóvember

Hálkan sem hefur verið að hrella ökumenn á Hornafirði síðustu daga er heldur á undanhaldi. Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni sagði að þokkaleg færð væri suðurum að Kirkjubæjarklaustri. Þar fyrir sunnan er mun meiri hálka. Mikil hálka er í Lóni. Að sögn Lögreglunnar á Höfn hafa ekki orðið óhöpp vegna hálkunnar utan bílveltu sem varð í Öræfum á þriðjudagskvöld. Lesa meira
 
Ármann Smári

Ármann Smári á toppnum - 27.11.2003 Nóvember

KSÍ hefur uppfært og gefið út afreksstuðla leikmanna. Einn Hornfirðingur, Ármann Smári Björnsson sem nú er leikmaður FH er í stuðli 7, sem er næst hæsti stuðulinn og samkvæmt því er kappinn metin á 490.000 kr. Ármann er þarna í góðum félagsskap og má t.d. nefna Ólaf Örn Bjarnason, Grindavík, Julian Johnsson, ÍA, Helga Val Daníelsson, Fylki, Hauk Inga Guðnason, Fylki og Gunnlaug Jónsson, ÍA. Engin leikmaður fellur undir stuðulinn 10 og er Ármann Smári því í hópi ellefu leikmanna sem bera hæsta félagsskiptagjaldið á Íslandi. Lesa meira
 
Nína í Bláa Blóminu komin í jólaskap

Jólaverslun byrjuð - 27.11.2003 Nóvember

Jólaskreytingum á Höfn fjölgar nú dag frá degi og snjófölið gerir sitt til að gera umhverfið jólalegt.Verslunareigendur eru komnir í jólaskap, búnir að skreyta verslanir sínar og taka upp jólavörurnar. Nína í Bláa blóminu í Miðbæ sagði að jólasalan væri að byrja og skellur á fyrir alvöru um helgina þegar aðventan byrjar. Hún vill sjá að fleiri versli í heimabyggð og segir að oft sé verð hagstæðara úti á landi en í sérverslunum í Reykjavík, en því miður fara alltof margir þangað til að gera jólainnkaupin. Salan í Verslun Efnalaugar Dóru er búin að vera góð það sem af er vikunni enda allt fullt af jólavörum, sem sagt jólasalan komin í gang hjá Dóru. Lesa meira
 
Hverjar eru bestar

Mikill hugur í Sindraskvísum - 26.11.2003 Nóvember

Næstu helgi verður mikið um að vera hjá Sindraskvísum en þá taka þær þátt í Íslandsmótinu í innanhúss knattspyrnu í 2. deild C riðli. Þar mæta þær Fjölni, ÍR og Gróttu. Mikill hugur er í stelpunum og vonandi tekst þeim jafn vel upp og mfl. karla um seinustu helgi. Ýmisleg heyrist skrafað um félagaskipti úr Sindra, bæði mfl. karla og kvenna og mörg lið að skoða hornfirska leikmenn. Slæmt mál ef margir leikmenn yfirgefa Sindra, en samt eðlilegt að leikmenn skoði hvað sé í boði hjá öðrum liðum. Lesa meira
 

Síldveiðimet hjá Skinney-Þinganesi - 26.11.2003 Nóvember

Mestum síldarafla á þessari vertíð hefur verið landað hjá Skinney-Þinganesi á Hornafirði 14.500 tonnum. Um helmingur aflans hefur farið í bræðslu. Síldin hefur flokkast í smáa og milli stærð en ekkert veiðist af stórri síld. Skinney-Þinganes er með þrjú skip á síldveiðum, Ásgrím Halldórsson, Jónu Eðvalds og Steinunni og hefur afli skiptist nokkuð jafnt á skipin. Mesti afli sem komið hefur á einum degi er 1800 tonn , þá lönduðu öll skipin sama daginn. Veiðisvæði hafa verið allt í kring um landið og síðustu nætur hefur síldin veiðst hér fyrir austan. Lesa meira
 
Borað í Álaugarey

Borað eftir sjó - 25.11.2003 Nóvember

Skinney-Þinganes er þessa dagana að láta jarðbor frá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða bora holur í Álaugarey og í Heppuna. Okkur vantar sjó til að fleyta loðnuhrognum, sagði Gunnar Ásgeirsson í Skinney, og við ætlum að kanna hvort hægt er að ná í nægilegt magn af sjó. Sjór hefur ekki fundist ennþá en þetta er ekki fullreynt. Búið er að bora eina holu í Heppuna, tvær við klettana í Álaugarey að sunnanverðu og verið að byrja á þeirri þriðju. Lesa meira
 
Jökulsá á Breiðamerkursandi (mynd ebe)

Landbrot að meðaltali um 4 – 8 metrar á ári - 24.11.2003 Nóvember

Vegna viðvarandi landbrots við Jökulsárlón hefur um alllangt skeið verið fylgst náið með breytingum sem orðið hafa af völdum sjávargangs á svæðinu. Ef svo heldur fram sem horfir mun innan fárra ára vegi og raflínu stafa nokkur hætta af landbrotinu og er þar einkum átt við svæðið frá Jökulsá til austurs á um kílómeters löngum kafla.. Frá árinu 1991 til dagsins í dag hefur Vegagerð ríkisins staðið fyrir árlegum mælingum á umfangi landbrotsins og í þeim mælingum kemur fram að landbrot er að meðaltali um 4 – 8 metrar á ári.Samkvæmt mælingum starfsmanna Landsvirkjunar í mars sl. kom fram að minnsta fjærlægð frá línuundirstöðu að sjávarkambi er við stæðu nr.241 en þar mældist fjærlægð 42 metrar. Lesa meira
 
Holudúfa á Hala í Suðursveit (mynd:Björn Arnarson)

Holudúfa á Hala í Suðursveit - 24.11.2003 Fuglar

Holudúfa sást á Hala í Suðursveit fyrir helgina og segir Björn Arnarson fuglaskoðunarmaður að þetta sé í fyrsta sinn sem holudúfa sést hér á landi svo staðfest sé. Líkur eru á að holudúfa hafi sést á þessum sama stað í sumar en ekki náðist að staðfesta það og telur Björn ekki ólíklegt að þarna sé um sama fugl að ræða og dúfan hafi verið hér á landi síðan í sumar. Lesa meira
 
Ómar Guðjónsson og félagar

Útgáfutónleikar Ómars Guðjónssonar á Hótel Höfn - 24.11.2003 Menning

Ómar hefur nú þegar látið að sér kveða í íslensku jazzlífi og tók m.a þátt í nýliðinni jazzhátíð í Reykjavík. Nýverið gaf hann út sína fyrstu sólóplötu, Varma land, þar sem með honum leika bróðir hans, Óskar Guðjónsson á saxófóna, Þórður Högnason á bassa og Helgi Svavar Helgason á trommur. Á tónleikunum á Hótel Höfn mun hann kynna diskinn ásamt Óskari, Helga og Jóhanni Ásmundssyni sem mun spila á kontrabassa. Lesa meira
 
Sindri ÍBV

Sindri í 1. deild - 24.11.2003 Nóvember

Um helgina var leikið í 2. deild karla í Íslandsmótinu innanhúss. Mfl. Sindra stóð vel fyrir sínu í þeirri keppni og sigraði sinn riðil með fullt hús stiga og tryggðu sér þar með rétt til að leika í 1. deild á næsta ári. Sindri vann Reynir Sandgerði 6 – 4, Leiknir Reykjavík voru lagðir 2 – 1 og í lokaleiknum var lið Selfoss lagt 5 – 2. Vonandi er þessi árangur aðeins byrjunin á nýjum uppgangstíma hjá mfl. karla og haldi liðið áfram á sömu braut geta menn farið að hlakka til sumarsins. Til hamingju með þetta strákar. Lesa meira
 
Jón Garðar að störfum

Bílbeltanotkun sýnir þroska - 22.11.2003 Nóvember

Lögreglan á Hornafirði hefur undanfarið fylgst með bílbeltanotkun bæjarbúa en eins og fram kom í skoðun umferðaröryggisfulltrúa á austur-og suðausturlandi síðast í júlí í sumar var útkoman verst á Hornafirði þar sem aðeins 58 % þeirra 260 ökumanna sem voru stöðvaðir voru með beltin spennt. Lesa meira
 
Hraustir strákar úr Hafnarskóla í Norræna skólahlaupinu

Norræna skólahlaupið 2003 - 21.11.2003 Nóvember

Nemendur Hafnar- og Heppuskóla tóku þátt í "Norræna skólahlaupinu" í dag með því að hlaupa allt frá 2,5 til 10 km. innan Hafnar. Hlaupið fer nú fram á öllum Norðurlöndunum á tímabilinu 15. september til 1. desember. Þetta er í 19. skiptið sem Ísland tekur þátt í þessu samnorræna hlaupi og hefur frammistaða Íslends verið mjög góð miðað við frændþjóðir okkar, þar sem allt að því helmingur nemenda í grunnskólum landsins hafa hverju sinni tekið þátt í hlaupinu. Lesa meira
 
Glæsileg bókarkápa

Félagsvinurinn - 20.11.2003 Nóvember

Ungmennafélag Öræfinga er 70 ára á þessu ári og heldur upp á afmælið með því m.a. að gefa út bókina Félagsvinurinn. Félagsvinurinn kom út á árunum 1937-1962 og var hann allur handskrifaður, sextíu og átta stílabækur sem allar hafa varðveittst óskemmdar. Hann var skrifaður til upplestrar á ungmennafélagsfundum og komu út tvö til þrjú rit á ári að jafnaði. Bækurnar voru ekki lánaðar út heldur eingöngu lesnar á fundum. Nú kemur Félagsvinurinn út í tveimur bindum alls 700 bls. með völdu efni úr upphaflegu útgáfunni. Lesa meira
 
Frá tónleikum í Nýheimum

Tónlist fyrir alla - 20.11.2003 Nóvember

Í dag fjölmenna grunnskólanemar í Hornafirði í Hafnarkirkju. Þar verður boðið upp á dagskrá sem ber nafnið “Tónlist fyrir alla”. Tilgangurinn með þessari tónlistarkynningu er að kynna ólíkar tegundir tónlistar fyrir grunnskólanemum. Dagskráin á þessu hausti ber yfirskriftina “Tvær flautur og gítar” og eru flytjendur þau Guðrún S. Birgisdóttir og Martial Nardeau flautuleikarar og Pétur Jónasson gítarleikari. Einnig taka grunnskólanemarnir þátt í dagskránni. Lesa meira
 
Frummælendur í Hofgarði

Kröfugerð ríkisins byggir á Landnámu - 20.11.2003 Nóvember

Við erum sáttir svona í meiginatriðum segir Örn Bergsson bóndi á Hofi í Öræfum þegar hann var spurður hvað landeigendum finndist um dóminn í þjóðlendumálinu. Menn eru ánægðir með að þessari aðför að landeigendum sé hrundið og ég held að ríkið ætti að sjá sóma sinn í að læra að fara með öðrum hætti í þetta mál, hætta þessari heimskulegu kröfugerð í þinglýstar eignir bænda. Kröfugerð ríkisins byggir á Landnámu sem skrifuð var 300 árum eftir landnám og fræðingar telja svona goðsagnir. Það er með ólíkindum að þetta skuli vera notað, en krafan er nær eingöngu byggð á Landnámu, að þetta land hafi ekki verið numið sem þeir gera kröfur í segir Örn. Lesa meira
 
Svava Kristbjörg ánægð í nýja húsnæðinu

VÍS í Miðbæ - 19.11.2003 Nóvember

Nú þegar verslunarmiðstöðin Miðbær er rétt rúmlega tveggja ára bætist enn eitt fyrirtækið við í þetta glæsilega verslunar- og þjónustuhús. Í dag kl. 12:30 opnaði Vátryggingarfélag Íslands þjónustuskrifstofu sína í verslunarmiðstöðinni en skrifstofan var áður til húsa í Landsbanka Íslands. Hið nýja húsnæði VÍS er rúmgott, bjart og aðstaðan öll eins og best verður á kosið. Við opnunina léku nemendur úr Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu nokkur lög og gestum og gangandi var boðið upp á veitingar. Þjónustustjóri Vátryggingafélags Íslands á Hornafirði er Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir. Lesa meira
 
Nemendu FAS leita að olíu

Olíuleit í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu - 19.11.2003 Nóvember

Dagana 17. til 19. nóvember taka nokkrir nemendur FAS þátt í tölvuleiknum Xplore og keppa þar við kollega sína frá Skotlandi, Danmörku, Noregi og Færeyjum. Keppninni er stjórnað frá Færeyjum og þaðan koma líka flest liðin, en alls munu um 100 lið með 300 nemendur taka þátt í keppninni. Fimmtán nemendur í fimm liðum koma frá FAS og sér Hjördís Skírnisdóttir kennari í FAS um framkvæmdina í skólanum. Að sögn nemenda sem taka þátt í keppninni er þetta skemmtileg reynsla og mikið fjör. Lesa meira
 
Hettusöngvari á Hala í nóvember (mynd:Björn Arnarson)

Fálkinn dó í svæfingu - 19.11.2003 Nóvember

Fálkinn sem í haust var komið með á byggðasafnið á Höfn, særðan á væng og var í góðu yfirlæti og hjúkrun hjá Birni Arnarsyni safnverði, var í vetur sendur til Reykjavíkur til læknismeðferðar. Ekki tókst að lækna fálkanum því hann þoldi ekki svæfinguna og dó. Björn brá sér í fuglaskoðunarferð um helgina og segir hann að óvenju mikið sé búið að vera af smyrli í haust og eins fálkum. Fálkar hafa stundum sést hér á veturna en þessir sem hafa verið hér undanfarið eru ungfuglar sem flækjast um. Farfuglar eru flestir farnir til vetrarstöðva sinna. Lesa meira
 
heilso

Alþjóðadagur langvinnrar lungnateppu - 18.11.2003 Nóvember

Heilbrigðisstofnun Suðausturlands bíður almenningi að koma í öndunarmælingu á heilsugæslunni á morgun miðvikudag, en þá er alþjóðadagur langvinnrar lungnateppu. Langvinn lungnateppa er algengur og alvarlegur lungnasjúkdómur, og eru margir haldnir þessum alvarlega kvilla án þess að gera sér grein fyrir því. Mælingarnar fara fram milli kl. 9 - 11 og 13 - 15. Ekki þarf að panta tíma né borga fyrir þessar mælingar. Starfsfólk HSSA vonast eftir því að sem flestir líti við og skelli sér í öndunarmælingu. Lesa meira
 
Ludvig Andersen við bryggju á Höfn

Mikið af síld á leið til Hornafjarðar - 18.11.2003 Nóvember

Ágæt síldveiði hefur verið í Kolluál, út af Faxaflóa. Ásgrímur Halldórsson SF 200 er væntanlegur til hafnar kl. 14:00 í dag með fullfermi. Jóna Eðvalds SF 20 og Steinunn SF 10 sem einnig voru að veiðum í Kolluál, lögðu af stað af miðunum í nótt, bæði skipin eru með fullfermi. Það er því von á rúmum 1.800 tonnum af síld næsta sólarhringinn til Hornafjarðar, þannig að næg vinna er framundan hjá Skinney-Þinganes. Lesa meira
 
Á Illakambi

Ferðaklúbburinn 4x4 á Hornafirði - 18.11.2003 Nóvember

Miðvikudaginn 12. nóvember s.l. var boðað til kynningar- og eða stofnfundar Hornafjarðardeildar ferðaklúbbsins 4x4. Rúmlega 30 manns mættu á fundinn og hlýddu á Kjartan Gunnsteinsson formann landsamtakanna og Hallgrím Óla formann Húsavíkurdeildar 4x4 kynna starfsemi ferðaklúbbsins. Í framhaldi af framsögum þeirra félaga var ákveðið að stofna deild innan Ferðaklúbbsins 4x4 á Hornafirði. Kosin var fimm manna stjórn og var formaður kjörinn Þorkell Kolbeins. Aðrir í stjórn eru Sigurjón Einarsson, Árni Pétur Hilmarsson, Jón Bragason og Sveinbjörn Steinþórsson. Lesa meira
 
Leikhópurinn Lopi á sviðinu í Sindrabæ

“Þetta er allt vitleysa Snjólfur” - 17.11.2003 Nóvember

Leikhópurinn Lopi fagnar 10 ára afmæli um þessar mundir. Fyrsta frumsýning Lopa var haustið 1993 er frumsýnt var leikritið Skólalíf. Síðan þá hefur Leikhópurinn sýnt 13 sýningar og frumsýning Leikhópsins núna er 14. sýning hópsins. Allar sýningarnar hafa verið íslensk leikverk og hafa 9 af 14 verið frumsamdar fyrir Leikhópinn. Leikhópurinn Lopi sýnir að þessu sinni leikritið “Þetta er allt vitleysa Snjólfur” og er höfundur verksins Guðjón Sigvaldason. Fjallar verkið um unglinga, einelti og ýmislegt er hrjáir ungdóminn. Ástin blómstrar og furðufuglar eru á sveimi. Lesa meira
 
Sólarlag við höfnina

Upplýsinga- og kynningarfundur um hafrannsóknir- og fiskveiðiráðgjöf - 17.11.2003 Nóvember

Á undanförnum árum hefur Hafrannsóknastofnunin unnið markvisst að því að efla miðlun upplýsinga um rannsóknir stofnunarinnar á umhverfi hafsins og ástandi fiskstofna við landið með það markmið að efla umræðu um skynsamlega nýtingu auðlindarinnar. Í þessum tilgangi var efnt til skipulagðra funda allt í kringum landið árið 2001 þar sem málin voru rædd og skipst á skoðunum. Árin 2001 og 2002 tóku starfsmenn stofnunarinnar þátt í Fyrirspurnaþingi sjávarútvegsráðuneytisins um þorskrannsóknir sem einnig var ætlað að stuðla að upplýstri umræðu um þessi mál. Lesa meira
 
Kindin og kiðlingarnir tveir (mynd:Jens Ólsen)

Stolt af fósturbörnunum - 17.11.2003 Nóvember

Hún var greinilega stolt og hreykin af fósturbörnum sínum, hvíta ærin frá Brekkubæ við réttirnar í haust. Fósturbörnin eru tveir kiðlingar sem urðu móðurlausir nýfæddir og því var gripið til þess ráðs að venja þá undir á, sem hafði misst lömb sín. Kristín Einarsdóttir á Brekkubæ í Nesjum hefur átt nokkrar geitur í mörg ár og í vor fótbrotnaði ein geitin hennar það illa að aflífa þurfti hana frá tveim nýfæddum kiðlingum. Það tók smá tíma að fá ána til að taka þessi fósturbörn að sér, en allt gekk þetta vel og hélt hún sig inn til fjalla í sumar með kiðlingana sína. Eftir réttir héldu ærin og kiðlingarnir aftur til fjalla og eru þar ennþá. Lesa meira
 
Jóna Eðvalds við bryggju

Meiri afli á land - 15.11.2003 Nóvember

Fyrstu tvo mánuði fiskveiðiársins 2003-2004 hefur verið landað á Hornafirði samtals 10.045 t. sem er aukning upp á 2.361 t. miðað við sama tímabil á s.l. ári. Mest munar um 1.023 t. aukningu á síld og 824 t. aukningu í þorski. Fleiri ýsur skila sér líka á land á þessu hausti, og er aukning þar upp á 179 t. Ufsinn er ekki jafn viljugur á miðunum það sem af er og hefur verið landað 43 t. minna af þessum eðalbláa fiski fyrstu tvo mánuði fiskveiðiársins. Lesa meira
 
Um borð í Ásgrími Halldórssyni SF 250

Með fullfermi á leið til Hornafjarðar - 14.11.2003 Nóvember

Ásgrímur Halldórsson SF 250 er væntanlegur til Hornafjarðar í kvöld, með fullfermi af ágætri síld og hefst vinnsla hjá Skinney-Þinganes í kvöld. Jóna Eðvalds SF 200 kemur til löndunar á morgun, einnig með fullfermi. Það eru því væntanleg 1.400 – 1.500 tonn af síld næsta sólarhringinn. Aflann fengu skipin í Kolluál. Steinunn SF 10 er á miðunum fyrir austan land og var engin veiði hjá þeim í nótt. Lesa meira
 
Svanur (mynd JAI)

Ekki nægilegt viðurværi úr firðinum - 14.11.2003 Nóvember

Nokkuð hefur verið rætt um þann mikla fjölda álfta sem verið hefur á Suðausturlandinu í vor og sumar og hafa bændur áhyggjur af enn frekari fjölgun þeirra og á því tjóni sem þær valda. Sveinn Gunnarsson bóndi í Vík í Lóni segir að þar hafi verið óhemju mikið af álftum í vor og sumar og þær sækja stíft í túnin. Þær hafa valdið miklum skaða á túnum hér í Vík og oft hafa verið þar allt að hundrað álftir í einu. Þetta er verst þegar gróðurinn er að koma upp á vorin og þó reynt sé að reka þær burtu er maður varla kominn heim þegar hópurinn er kominn aftur segir Sveinn. Þetta er sérstaklega áberandi þegar stórstreymt er og hátt í lóninu, þá ná þær verr gróðrinum á botninum og eru svangar. Lesa meira
 
Hornafjarðarhöfn

Búið að úthluta byggðakvóta - 13.11.2003 Nóvember

Fiskistofa hefur nú lokið við að úthluta aflaheimildum til fiskiskipa hjá þeim sveitarfélögum sem ekki skiluðu inn neinum tillögum. Eins og áður hefur komið fram ákvað Sveitarfélagið Hornafjörður að leggja ekki fram tillögu um skiptingu þeirra heimilda sem komu í hlut sveitarfélagsins og hefur því Fiskistofa úthlutað þessum 26,3 t. sem komu í hlut Hornfirðinga á eftirfarandi hátt: Lesa meira
 
Hluti þátttakenda á námskeiðinu

Þjóð gegn þunglyndi - 13.11.2003 Fréttir

Fræðslu og félagssvið Hornafjarðar í samvinnu við landlæknisembættið stóð fyrir námskeiði s.l. mánudag á Hótel Höfn. Yfirskrift námskeiðsins var “Þjóð gegn þunglyndi” Það voru m.a. starfsmenn skóla, heilbrigðisstofnunar, lögreglu og fl. sem sóttu námskeiðið. Alls 33 þátttakendur. Þátttakendur létu vel af námskeiðinu og var almenn ánægja með hvernig til tókst. Námskeiðinu stýrðu Salbjörg Bjarnadóttir, geðhjúkrunarfræðingur, Óttar Guðmundsson, geðlæknir og Wilhelm Norðfjörð, sálfræðingur. Lesa meira
 
Hvergi slegið af í vinnunni

Ágætt atvinnuástand - 13.11.2003 Nóvember

Atvinnuástand á Hornafirði hefur verið með besta móti í hausti og fáir á atvinnuleysisskrá. En að lokinni sláturtíð hefur störfum fækkað og sagði Heiðveig M. Jónsdóttir starfsmaður Vökuls stéttarfélags að s.l. föstudag hefðu 23 einstaklingar verið á atvinnuleysisskrá á Hornafirði. Á sama tíma í fyrra voru mun fleiri einstaklingar skráðir atvinnulausir, þannig að þrátt fyrir þennan fjölda atvinnulausra geta menn verið nokkuð sáttir. En auðvitað er óskastaðan að engin sé skráður án vinnu. Lesa meira
 
Ró og friður

Byggðakvóti - 12.11.2003 Fréttir

Sveitarfélagið Hornafjörðu fékk úthlutað í sinn hlut 26, 3 þorsígildistonn í úthlutun á byggðakvóta. Kvótanum er úthlutað af Sjávarútvegsráðuneytinu og er honum ætlað að styrkja þau byggðarlög sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Stærsta úthlutun byggðakvóta var til Ísafjarðarbæjar, 118,9 þorsígildistonn. Sveitarfélagið Hornafjörður mun ekki gera tillögur til ráðuneytisins um skiptingu byggðakvótans og mun ráðuneytið því úthluta kvótanum eins og reglugerðir kveða á um. Samkvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu mun skipting kvótans liggja fyrir innan skamms. Lesa meira
 
Jökulsá í Lóni, sólsetur

Varnargarðar við Jökulsá í Lóni - 12.11.2003 Nóvember

Opnuð hafa verið tilboð í gerð varnargarða við Jökulsá í Lóni, neðan Hringvegar, alls 2500 m. að lengd. Lægsta tilboðið í verkið átti S.G. vélar ehf frá Djúpavogi kr. 14.949.000 sem er 59,3% af kostnaðaráætlun. Rósaberg ehf frá Hornafirði átti þriðja lægsta tilboðið og hljóðaði það upp á kr. 17.862.500 sem er 70,8% af kostnaðaráætlun. Verkinu skal að fullu lokið 1. júní 2004. Lesa meira
 
Seljavellir

Stærsta kúabúið í sýslunni - 12.11.2003 Nóvember

Seljavallarbændur urðu í haust stærstu mjólkurframleiðendur í Austur-Skaftafellssýslu með 48 mjólkurkýr og eru framleiðsluréttindi 242 þúsund mjólkur-lítrar á ári. Eiríkur Egilsson bóndi segir að dagframleiðsla mjólkur eins og hún sé núna nálgist 700 lítra á dag og fer í um 1000 lítrar á dag þegar mest verður. Mesta nyt úr kú er 36 kg á sólarhring. Öll mjólk sem framleidd er í sýslunni fer til vinnslu hjá Mjólkurbúi Flóamanna sem einnig sér um flutning á henni. Lesa meira
 
Krakkar í Hafnarskóla sleppa blöðrunum

Blöðrur á loft - 11.11.2003 Hafnarskóli fréttir

Samevrópsk Comeniusarvika er haldin dagana 10. – 14. nóvember. Af því tilefni voru nokkrir skólar vítt og breytt um Evrópu valdir til að sleppa blöðrum, í því skyni að vekja athygli á því starfi sem unnið er í mörgum skólum. Hafnarskóli er einn af þessum skólum og slepptu krakkarnir á annað hundrað blöðrum á loft kl. 13:10 í dag. Mikill fjöldi var á hólnum við Hafnarskóla og góð stemming og fjör hjá krökkum sem kennurum. Á sama tíma slepptu hinir skólarnir sem valdir voru í Evrópu sínum blöðrum á loft. Lesa meira
 
Æfing í Grunnskóla Mýrdalshrepp (mynd:Sigurður Hjálmarsson)

Skjálftavirkni hefur ekki dottið niður - 11.11.2003 Nóvember

Varla hefur sá dagur liðið undanfarið að ekki hafi komið fréttir í útvarpi og blöðum um jarðskjálftavirkni í Mýrdalsjökli og Vatnajökli að vísu ekki stórir kippir en gætu verið fyrirboðar eldgosa. Eldgos úr þessum jöklum myndu hafa mikil áhrif á hornfirðinga og vegasamband við suðurland lokast. Til að fá frekari fréttir af skjálftavirkni var haft samband við Veðurstofu Íslands. Lesa meira
 
Glaðbeittir framsóknarmenn

Kjördæmisþing á Hornafirði - 10.11.2003 Nóvember

Kjördæmisþing Framsóknarfélaganna í Suðurkjördæmi var haldið á Hótel Höfn s.l. helgi. Þingið hófst á föstudagskvöld með kosningu forseta þingsins, ritara og starfsnefnda þingsins. Að því loknu var kvöldverður og dansleikur. Hin eiginlegu þingstörf hófust síðan kl. 10 á laugardag og stóðu fram eftir degi. Halldór Ásgrímsson formaður flokksins ávarpaði þingið sem og framkvæmdastjóri flokksins, fulltrúi LFK og formaður SUF. Kosið var í stjórn kjördæmasambandsins og var formaður sambandsins Óskar Þórmundsson frá Keflavík endurkjörin sem og varaformaðurinn, Guðmundur Elíasson frá Vík. Lesa meira
 
Kotá í Öræfum

Mikið í gangi hjá Vegagerðinni - 10.11.2003 Nóvember

Von er til að gengið verði frá útboði í göngin undir Almannaskarð í lok þessa mánaðar og að byrjað verði á verkinu þegar líða fer á veturinn sagði Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni. Það er ekki neinn afturkippur í þessum framkvæmdum, þetta hefur bara gengið hægar en ætlað var í upphafi. Suðurverk er að byrja á endurbyggingu á veginum við Kotá í Öræfum. Tilboð Suðurverks var 28.401 mkr. en áætlaður kostnaður var 37.391 mkr. Innifalið í tilboðinu var einnig niðurrif á brú yfir Heiðarlæk, sem er nokkru vestar, og setja rör í stað brúar. Lesa meira
 
Lok orkuátaks

Orkuátakinu 2003 lokið - 08.11.2003 Nóvember

Lokalistinn í Orkuátak Latabæjar stóð yfir í október hefur nú verið birtur. Alls tóku 3.700 krakkar þátt í átakinu á Krakkabankanum og skráðu þau samtals 37.500 orkudaga og fengu alls 4,8 milljón stig. Ótvíræður sigurvegari átaksins eru krakkarnir í Bólstaðarhlíðahrepp sem héldu forystunni frá því í 2. viku átaksins. Hornfirskir krakkar enduðu í 7. sæti sem er frábær árangur. Til hamingju krakkar. Lesa meira
 
Hafið og norðrið

Í ljósaskiptunum – Hafið og Norðrið - 08.11.2003 Menning

Vikuna 10. - 16. nóvember er Norræn bókasafnsvika. Dagskrá vikunnar hefst á sama tíma í bókasöfnum á Norðurlöndunum með upplestri á sama texta. Í ljósaskiptunum, kl. 18:00, verða ljósin slökkt og á Höfn mun Elín Magnúsdóttir, forseti bæjarstjórnar, lesa upp við kertaljós líkt og á öðrum bókasöfnum. Textinn er úr inngangi bókarinnar Garman og Worse eftir norska rithöfundinn Alexander Kielland. Lesa meira
 
Frá málþinginu í Freysnesi (mynd G.I.)

Framlög aukin um tugi milljóna - 07.11.2003 Nóvember

Um fimmtíu manns sóttu málþing Ferðamálafélaga Austur Skaftafellsýslu og Skaftárhrepps sem haldið var í Freysnesi í vikunni. Sigurlaug Gissurardóttir setti málþingið og sagðist hún m.a.óska þess að málþingið væri upphaf að öðru og meira samstarfi félaganna ekki síst því sem tengdist Vatnajökulsþjóðgarðinum sem kemur til með að ná vestur í Skaftárhrepp. Rætt var um auðlindir Íslands og mikilvægi þess að menn vissu hvar helsta aðdráttaraflið væri. Lesa meira
 
Þeim fækkar einbreiðu brúnum

Einbreiðum brúm fækkar - 07.11.2003 Nóvember

Opnuð hafa verið hjá Vegagerðinni tilboð í endurbætur á Hringvegi í Lóni. Um er að ræða að setja stálplöturæsi í Össurá og Hlíðará auk 0,7 km. kafla í vegagerð. Lægsta tilboð í verkið átti Rósaberg ehf, Hornafirði og hljóðaði það upp á kr. 12.673.500 sem er 88% af kostnaðaráætlun. Verkinu á að vera að fullu lokið fyrir 15. maí 2004. Lesa meira
 
Hera

Stórtónleikar í Nýheimum - 06.11.2003 Menning

Mánudaginn 10. nóvember verða tónleikar í Nýheimum þar sem fram munu koma hljómsveitin Santiago, Hera og Geiri Harðar ásamt hornfirðingunum Védísi Ernu Eyjólfsdóttir og hljómsveitinni Parket. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og er aðgangseyrir kr. 1.000.- Tónleikarnir ganga undir nafninu “Órafmögnuð vegavinn” og eru á vegum European Roadworks Music sem eru Evrópusamtök sem vinna að því að efla kynningu á ungum söngvurum og lagahöfundum. Lesa meira
 
Frá námskeiðinu í Nýheimum

Námskeið hjá HSSA - 06.11.2003 Nóvember

Í gær og í dag hefur starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands sótt samskiptanámskeið á vegum stofnunarinnar. Fyrirlesarar eru Þórkatla Aðalsteinsdóttir og Einar Gylfi Jónsson sálfræðingar. Námskeiðið er liður í endurmenntunarstefnu stofnunarinnar. Mæting er mjög góð hjá starfsfólki HSSA eða 71 starfsmaður og er mikil ánægja með námskeiðið sem og fyrirlesarana, sem koma efninu frá sér á bæði gagnlegan og skemmtilegan hátt. Lesa meira
 
Ekki allir á sjó í dag

Búið að frysta um 2.400 tonn - 06.11.2003 Nóvember

Hjá Skinney-Þinganes fengust þær fréttir í morgun að Steinunn SF-10 væri á leið til Hornafjarðar með 140 tonn og sömuleiðis Ásgrímur Halldórsson SF-250 með 270 tonn. Jóna Eðvalds SF-20 er á miðunum og eru þeir komnir með 300 tonn. Vinnslan í landi hefur gengið vel og er nú búið að frysta um 2.400 tonn hjá Skinney-Þinganes. Lesa meira
 
Hart barist

Jón Böðvarsson - Njála - 06.11.2003 Menning

Jón Böðvarsson, íslenskufræðingur, flytur erindi um Njálu í fyrirlestrarsal Nýheima, fimmtudagskvöldið 6. nóvember, kl. 20:30. Hann hefur fyllt hvert námskeiðið af öðru um þetta efni á vegum Endurmenntunarstofnunar Háskóla Íslands. Jón er löngu kunnur af fyrirlestrum sínum um Njálu og leiðsögn um Njáluslóðir. Austur Skaftfellingum gefst hér kærkomið tækifæri til að rifja upp tengsl héraðsins við fornsögurnar og íhuga hvernig hægt sé að viðhalda þeim fróðleik m.a. í tengslum við ferðaþjónustuna. Lesa meira
 
Hanni Heiler gæðir hestunum á brauði

Á annað þúsund hestar og nautgripir - 05.11.2003 Nóvember

Hornfirðingar hafa löngum þótt eiga mikið af góðum hestum og gæðingum og eru margir þeirra landsfrægir. Ekki liggja fyrir tölur um hestaeign hornfirðinga á þessu hausti en haustið 2002 voru 1365 hross í Sveitarfélaginu Hornafirði. Bændur á Mýrum áttu flest hross, alls 470 á 13 bæjum og þar var hestakóngur sveitarfélagsins með 300 hross. Næstir koma Nesjamenn, 22 bændur með 368 hross, þar var stærsti hrossa-bóndinn með 74 hross. Öræfingar á 12 bæjum áttu 200 hross og þar voru flest 74 hross á heimili. Á Höfn voru skráð 172 hross á 32 eigendur sem áttu frá einu hrossi uppí 15. Þrír bændur í Lóni eiga 31 hross mest 16 á bæ. Lesa meira
 
Hótel Skaftafell (úr myndasafni)

Skemmdir á útihúsum í Freysnesi - 04.11.2003 Nóvember

Skemmdir urðu á útihúsum í Freysnesi í Öræfum í rokinu sem gerði í gærmorgun, framhlið hússins og hurð sekktust. Jón Benediktsson í Freysnesi sagði að byrjað hefði að hvessa upp úr klukkan átta um morguninn, milli 10 og 11 hefði veðurhæðin verið mest og sagði hann að þetta væri með því hvassasta sem hann myndi eftir þarna. Enginn vindmælir er í Freysnesi en í Sandfelli mældist vindurinn mest 46m. Um hádegi var komið logn, sólskin og hlýindi. Engin snjókoma fylgdi þessu veðri eins og víða annarsstaðar. Lesa meira
 
Fyrsti snjór vetrarins

Nú er það svart, allt orðið hvítt! - 04.11.2003 Nóvember

Fyrsti snjór vetrarins á Hornafirði féll til jarðar í morgun. Töluverður vindur fylgdi ofankomunni en undir hádegi hafði veður gengið nokkuð niður. Krakkarnir voru fljót að nýta sér snjóinn og voru mætt út með sleða og þotur, enda vita hornfirsk börn að oft er stoppar snjórinn stutt við á Hornafirði, enda er spáð rigningu er líður á daginn. Lesa meira
 
Alltaf gaman á skautum

Allir á skauta - 04.11.2003 Nóvember

Með kólnandi veðri breytast leikir barnanna, eins glöggt hefur mátt sjá hér á Hornafirði undanfarið. Skautarnir eru dregnir fram og hin margrómaða “Gaggótjörn” fyllist af ungu fólki sem rifjar upp kunnáttu sína og færni á skautum. Reyndar er ásóknin svo mikil að varla sér í auðan blett á tjörninni þegar best lætur. Lesa meira
 
Opnun og 40 ára afmæli HP og sona

Fagna 40 ára afmæli og vígja nýtt húsnæði - 03.11.2003 Nóvember

Um helgina fór fram formleg opnun hjá HP sonum á nýju og stórglæsilegu 730 fermetra húsnæði að Álaugarvegi 8, en þá var einnig fagnað 40 ára afmæli HP í vöruflutningum til Hafnar. Allt byrjaði þetta með símtali Heiðars Péturssonar til Ásgríms Halldórssonar kaupfélagsstjóra þar sem erindið var að kanna möguleika á að hefja flutninga með vörur fyrir Kaupfélagið til og frá Höfn og var niðurstaða þess samtals að Heiðar ákvað að takast á við flutingarleiðina sem af mörgum var talin mjög erfið og hófust þær 1963. Lesa meira
 
Vélsmiðjan Foss

Vélsmiðjan Foss tekur þátt í stofnun nýs fyrirtækis - 03.11.2003 Nóvember

Nýtt þjónustufyrirtæki, Hofsel, hóf formlega starfssemi sína í s.l. viku. Það eru fyrirtækin Héðinn í Garðabæ, Vélsmiðjan Foss og Hagverk í Fellabæ sem standa að stofnun Hofsels. Fyrirtækinu er ætlað að veita alhliða þjónustu á sviði málmiðnaðar og leggur sérstaka áherslu austfirskan markað. Lesa meira
 
Hvernig væri að fá íslensku hænuna sem húsdýr

Íslenskar hænur sem húsdýr á Höfn? - 03.11.2003 Nóvember

Vaxandi áhugi hefur verið undanfarið á íslensku hænunum og um helgina varð fyrsti hænsnaklúbburinn á Íslandi til. Íslensku hænurnar og hanarnir (landnámshænsnin) eru talin sérstaklega vitur og skemmtileg húsdýr og eggin úr þeim miklu betri en úr hænum t.d. af ítölskum ættum, sem ræktaðar eru í hænsnabúum. Lesa meira
 
Siglt á Jökulsárlóni

Ríki Vatnajökuls - 01.11.2003 Nóvember

Ferðamálafélag Austur Skaftafellssýslu og Ferðamálafélag Skaftárhrepps hafa boðað til sameiginlegs málþings í Freysnesi 5. nóv.nk. Tilefni þessa málþings er að fjalla um samstarf í ferðamálum og markaðssetningu á svæði ferðamálafélaganna, sem nær frá Mýrdalssandi og austur í Lón. Rætt verður um stofnun Vatnajökuls-þjóðgarðs og stöðu ferðamála í nýju kjördæmi. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica