Leikfélag Hornafjarðar hóf starfsemi sína á þessu leikári með aðalfundi sem haldinn var í september s.l. Ný stjórn var kosinn og er hún þannig skipuð: Magnús J. Magnússon, formaður, Heiðveig Jónsdóttir, ritari, Ingólfur Baldvinsson, gjaldkeri, Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir, G. Kristbjörg Bragadóttir, Ásta M. Elínardóttir og Sigríður Bára Steinþórsdóttir. Stjórn LH hefur verið að vinna að verkefnum vetrarins og verður sú vinna kynnt 8. nóvember nk. Á síðasta leikári setti LH upp leikritið Emil í Kattholti og í samvinnu við Danshóp Mána var sett upp söngsýningin Með krús í hendi á Hótel Höfn.
Lesa meira