Október

Æfingin skapar meistarann

Bókun vegna líkamsræktarstöðva - 31.10.2003 Fréttir

Undanfarið hefur töluverð umræða verið hér í samfélaginu í tengslum við líkamsræktarstöðvar á Hornafirði. Á bæjarstjórnarfundi sem haldin var í gær, fimmtudag var eftirfarandi bókað eftir Ingu Jónu Halldórsdóttir settum bæjarstjóra um aðdraganda og stöðu mála í tengslum við líkamsræktarstöðvarnar. Lesa meira
 
Bræðslan í Óslandi

Meira brætt en í fyrra - 31.10.2003 Október

Búið er að bræða 2500 tonn af síld hjá Fiskimjölsverksmiðjunni Skeggey ehf frá því að lokið var breytingum í verksmiðjunni í byrjun október. Þetta er nokkru meira en búið var að bræða á sama tíma í fyrra. Björn Traustason verksmiðjustjóri segir að breytingar og skipti á vinnslubúnaði verksmiðjunnar hafi tekist mjög vel og verkið tekið mun styttri tíma en ætlað var. Lesa meira
 
Laufey Sigurðardóttir og Páll Eyjólfsson

Ljúfir sunnudagstónleikar - 30.10.2003 Menning

Sunnudaginn 2. nóvember kl. 2 e.h. munu Laufey Sigurðardóttir, fiðluleikari og Páll Eyjólfsson, gítarleikari, koma fram á tónleikum í Nýheimum, Höfn í Hornafirði. Á tónleikunum leika þau m.a. lög eftir Sigfús Halldórsson, sem Páll hefur umritað fyrir fiðlu og gítar og einnig verður forvitnilegt að heyra píanóverk eftir Chopin útsett fyrir þessi hljóðfæri af Páli. Laufey og Páll hafa starfað saman frá árinu 1986. Þau hafa haldið tónleika víðs vegar um landið sem og erlendis og gert upptökur fyrir útvarp og sjónvarp. Lesa meira
 
Þau sjá um veitingahúsið

Mikið um að vera í Hafnarskóla - 30.10.2003 Október

Í dag fimmtudag og á morgun föstudag verða öðruvísi dagar í Hafnarskóla. Yfirskrift daganna er “Vinátta og virðing”. Á vinadögum verður unnið með ábyrgð nemendanna sjálfra á því sem þeir taka sér fyrir hendur. Nemendur munu taka þátt í hópavinnu og er boðið upp á 16 mismunandi hópa. Í hádeginu í dag er síðan afrakstur morgunsins til sýnis fyrir foreldra og aðstandendur. Starfræktur verður lítill matsölustaður í hádeginu þar sem hægt verður að fá súpu og brauð á vægu verði. Milli kl. 13 og 14 í dag eru eldri borgarar boðnir sérstaklega velkomnir í skólann. Lesa meira
 
Norðurljós 29.10.03a  | ©ebe

Ljósadýrð yfir Hornafirði - 30.10.2003 Október

Í gærkvöldi var mikil norðurljósasýning yfir Hornafirði enda himinn heiður og stjörnubjart. Undanfarnar vikur hafa norðurljósin verið mjög falleg eins og oft er á þessum árstíma en gærkvöldið sló öll met hvað varðar magn, og á tímabili þá var allur himininn baðaður norðurljósum sem lýstu upp Hornafjörð. Eins og fram hefur komið í fréttum má rekja skýringu á þessum miklu og sérstöku norðurljósum til sólgoss sem sendir ský af hlöðnum ögnum í átt til jarðar. Lesa meira
 
María Gísladóttir ein af frumkvöðlum markaðarins

Mikil þátttaka í markaðstorginu - 29.10.2003 Október

Það vantar tvo seljendur uppá að komin sé helmingi meiri þátttaka í Hornabæjar-markaðinum á laugardaginn nk. en var þar fyrir hálfum mánuði sagði Elísabet Þorsteinsdóttir. Það er frábært hvað er mikill áhugi á þessu, fólk er farið að skoða hvort ekki leynast einhverjir góðir gripir uppi á háalofti, í geymslunni eða bílskúrnum eitthvað sem tilvalið er að fara með á markaðinn. Elísabet segir að enn sé nóg pláss fyrir söluborð og þegar fullt verður þar sem verslunin var er gott pláss á bakvið. Lesa meira
 
Víkin, veitingahús

Nýjir rekstraraðilar að Víkinni - 29.10.2003 Október

Nýir stjórnendur hafa tekið við veitingahúsinu Víkinni á Höfn og eigendurnir þau Guðný Gunnþórsdóttir og Skafti Ottesen eru komin í frí. Það er Jóhanna Helga Marteinsdóttir sem tekið hefur við daglegum rekstri á Víkinni í samstarfi við Þór Rúnar Baker matreiðslumann í næstu þrjá mánuði til að byrja með. Ýmsar breytingar eru á döfinni og nýjungar í rekstrinum og við ætlum að "rífa upp helgarnar" segir Jóhanna. Lesa meira
 
Rúna og Gísli í Æfintýri á gönguför

Leiklistin blómstarar - 28.10.2003 Október

Leikfélag Hornafjarðar hóf starfsemi sína á þessu leikári með aðalfundi sem haldinn var í september s.l. Ný stjórn var kosinn og er hún þannig skipuð: Magnús J. Magnússon, formaður, Heiðveig Jónsdóttir, ritari, Ingólfur Baldvinsson, gjaldkeri, Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir, G. Kristbjörg Bragadóttir, Ásta M. Elínardóttir og Sigríður Bára Steinþórsdóttir. Stjórn LH hefur verið að vinna að verkefnum vetrarins og verður sú vinna kynnt 8. nóvember nk. Á síðasta leikári setti LH upp leikritið Emil í Kattholti og í samvinnu við Danshóp Mána var sett upp söngsýningin Með krús í hendi á Hótel Höfn. Lesa meira
 
Frá tónleikum í Nýheimum

Lúðrasveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar í heimsókn - 27.10.2003 Október

Nemendur í Lúðrasveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar komu í skemmti- og æfingaferð til Hornafjarðar um helgina. Þetta voru 27 nemendur í B-sveit tónlistaskólans, á aldrinum 9-12 ára ásamt stjórnanda sveitarinnar Jóni Björgvinssyni. Með í ferðinni og til aðstoðar var Stefán Ó.Stefánsson stjórnandi C sveitar skólans en í henni eru eldri nemendur tónlistarskólans. Hafnfirðingarnir héldu tónleika í Nýheimum á laugardaginn og nemendur úr 5.-8. bekk í Lúðrasveit Tónskóla A-Skaft. léku með þeim síðustu lögin. Lesa meira
 
Fjallabaksleið

Fjallabaksleið eina sjáanlega lausnin - 27.10.2003 Október

Mikið er rætt um Kötlugos og vaxandi líkur á að það verði áður en langt um líður. Allar líkur eru á að vegarsamband á þjóðvegi 1 sunnanlands rofni þegar gos hefst og því er fróðlegt að heyra hvort einhverjar ráðstafanir hafi verið gerðar um bráðabirgðar vegasamband. Gylfi Júlíusson rekstrarstjóri hjá Vegagerðinni í Vík segir að ekki hafi verið gerðar neinar sérstakar ráðstafanir í þeim málum, eina sjáanlega lausnin á því er Fjallabaksleið á meðan hún er fær. Lesa meira
 
Myndataka við Jökulsárlón

Milljón dollara skot - 25.10.2003 Október

Kvikmyndafélagið Pegasus var við myndatökur við Jökulsárlón í gær þar sem verið var að taka auglýsingamyndir fyrir USC, fataverslunarkeðju á Bretlandi. Þetta er skoskur fatnaður undir merkinu Stark, sem margir hér ættu að þekkja. Þetta eru flott og vönduð föt sem passa vel fyrir Íslendinga og við erum stórhrifin af þeim sagði Garún hjá Pegasus. Þegar haft var samband við Garúnu voru þau í miðri myndatöku við Jökulsárlón í einstakri veðurblíðu og ekki bærði hár á höfði. Þetta er alveg draumur,sagði Garún, Skotarnir eru alsælir með allt hér og við hverja myndatöku heyrist í þeim skoska ,,million dollar shot”. Lesa meira
 
Tvær útigangskindur úr Kollumúla

Hæsti meðalþungi dilka til þessa - 24.10.2003 Október

Sauðfjárslátrun hjá Sláturfélaginu Búa á Hornafirði líkur n.k. þriðjudag. Slátrað er 25 þúsund fjár í haust. Meðalþungi dilka er 15.1 kg. Einar Karlsson sláturhússtjóri sagðist ekki vita til að meðalvigt dilka hér hafi orðið hærri. Þyngsti dilkurinn var 29,3 kg, eigandi hans var Gísli Halldór bóndi á Ytri Ásum í Vestur-Skaftafellssýslu og var meðalvigt dilka frá Gísla 19,7 kg. Lesa meira
 
Heimaey VE á landleið

Tók niðri í innsiglingunni til Hornafjarðar - 23.10.2003 Október

Heimaey VE tók niðri í innsiglingunni til Hornafjarðar í dag en losnaði fljótlega með aðstoð Lóðsins. Að sögn hafnsögumanns hafði skipið aðeins farið ,,út fyrir rétta strikið”. Heimaey var að koma inn með veikan skipverja og fór síðan út aftur í fylgd Lóðsins. Vignir Júlíusson hafnsögumaður segir að ástand innsiglingarinnar gott og þar er dýpkunarpramminn Soffía að störfum alla daga. Lesa meira
 
Heimir Örn, framkvæmdastjóri HP synir

HP synir flytja - 23.10.2003 Október

Flutningafyrirtækið HP synir hafa flutt sig af Víkurbrautinni og í glæsilegt hús að Álaugarvegi 8. Fyrirtækið hefur verið til húsa við Víkurbraut s.l. 15 ár en húsnæðið var bæði orðið of lítið og óhentugt. Heimir Örn Heiðarsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins sagði að mikil munur yrði á allri aðstöðu fyrir vöruafgreiðslu og lagerhald í nýja húsnæðinu, en það er 730 fermetra að stærð. HP synir er fjölskyldu fyrirtæki og nær saga þess aftur til ársins 1963, en þá hóf Heiðar Pétursson akstur milli Hornafjarðar og Reykjavíkur. Lesa meira
 
Meistaraflokkur kvenna

Úrtaksæfingar hjá KSÍ - 23.10.2003 Október

Tveir leikmenn frá Sindra hafa verið valdir til að taka þátt í úrtaksæfingum yngri landsliða. Soffía Gunnarsdóttir leikmaður mfl. kvenna hjá Sindra hefur verið valin til að taka þátt í úrtaksæfingum U-17 ára landsliðs kvenna og Gísli Freyr Brynjarsson hefur verið valinn til að taka þátt í úrtaksæfingum U-17 ára landsliðs karla. Til hamingju með árangurinn bæði tvö og gangi ykkur vel. Lesa meira
 
Ásgrímur Halldórsson SF-250

Gott fiskirí - 22.10.2003 Október

Síldveiðiskipið Ásgrímur Halldórsson SF landaði í morgun 600 tonnum af síld hjá Skinney-Þinganesi og Steinunn SF landar 280 tonnum af síld í kvöld. Nær allir Hornafjarðarbátar eru á sjó í dag í veðurblíðunni. Á Hafnarvoginni fengust þær upplýsingar að fiskirí væri búið að vera gott undanfarið, netabátar eru með 3 til 10 tonn eftir nóttina, línubátar 2-5 tonn og færabátar með 300 – 1000 kg. eftir daginn. Lesa meira
 
Úr myndasafni

Frábær ferð á fjarðarball - 22.10.2003 Október

Nemendur í 10. bekk Heppuskóla skelltu sér á fjarðarball s.l. föstudag. Ballið var haldið í Valhöll á Eskifirði og hljómsveitin Land og synir sá um að allir skemmtu sér vel. Ferðin var á vegum Þrykkjunnar og fóru starfsmenn félagsmiðstöðvarinnar með sem fararstjórar, auk foreldra. Þorvaldur Viktorsson fór í þessa ferð sem foreldri og sagði hann að þetta hefði verið virkilega skemmtileg ferð og unglingarnir sýnt sínar bestu hliðar. Lesa meira
 
Latibærinn Höfn

Krakkar nú þarf að taka á því - 21.10.2003 Október

Nýr listi Orkuátaks Latabæjar hefur verið birtur. Heldur eru hornfirsku krakkarnir að missa flugið og eru núna í 10. sæti yfir hæsta meðaltal á landinu. Aðeins í vatnsdrykkju ná krakkarnir okkar inn á topp 10, eru þar í 8. sæti en voru í 5. sæti þegar seinasti listi birtist. Allir krakkar geta tekið þátt í þessum leik hvort sem þeir fengu senda Orkubókina eða ekki. Þeir sem ekki fengu bókina geta skráð sig inn á krakkabanki.is og fyllt út orkubókina þar. Lesa meira
 
Horft í átt til Ketillaugarfjalls í Nesjum

Betra bú á Hornafirði - 21.10.2003 Október

Landgræðslan ætlar að halda landnýtingarnámskeið 30.okt. nk. á Hornafirði undir heitinu Betra bú. Þetta námskeið á að hjálpa fólki að skoða betur sitt umhverfi og finna þá möguleika sem landið býður upp á, annað en þennan hefðbundna búskap með kýr og kindur. Námskeiðið verður í tveim hlutum og verður seinni hluti þess eftir ca einn mánuð. Þetta er gert til að menn geti unnið svolítið sjálfstætt við þær hugmyndir sem fram koma og þróað þær, einnig geta þeir fengið faglega tilsögn sérfróðra og ráðgjöf með það verkefni sem valið hefur verið. Á seinna námskeiðinu verður farið yfir það sem þátttakendur hafa unnið að, það skoðað og metið. Lesa meira
 
Sævar og Guðný Guðleif, best hjá Sindra (mynd:Kristján Jónsson)

Uppskeruhátíð Sindra - 20.10.2003 Október

Uppskeruhátíð Sindra var haldin s.l. laugardag á Víkinni og var mikið fjör, mikið grín og mikið gaman. Hápunktur kvöldsins var verðlaunaafhending, þar sem útdeilt var hinum ýmsu verðlaunum. Hjá mfl. kvenna var besti leikmaðurinn kjörinn Guðný Guðleif Einarsdóttir sem einnig var markhæst með 8 mörk ásamt Soffíu Gunnarsdóttir. Efnilegust var Soffía Gunnarsdóttir. Sindraskvísan 2003 var kjörin Hjördís Klara Hjartardóttir. Galastúlkan var kjörin Hrund Jónsdóttir sem einnig hlaut háttvísisverðlaunin. Guðrún Ása Jóhannsdóttir var kjörin besti félaginn. Lesa meira
 
Jóna Eðvalds við bryggju í morgun

Mjög góð síldveiði - 20.10.2003 Október

Góð síldveiði hefur verið undanfarna daga. Ásgrímur Halldórsson landaði 450 tonnum á laugardaginn, Steinunn landaði 300 tonnum í gær og Jóna Eðvalds er að landa 600 tonnum. Þetta er mjög góð síld og mun stærri en við höfum haft undanfarið sagði Soffía Árnadóttir hjá Skinney-Þinganes. Við nýtum þetta mest allt í vinnslu hjá okkur, eða eins og afkastagetan leyfir, en hún er 300 tonn sólarhring sagði Soffía. Það er því nóg að gera þessa dagana í vinnslu og veiðum og var veiðin s.l. nótt sú besta á þessari vertíð. Lesa meira
 
Kvennakórskonur mættu og buðu upp á vöflur

Vel heppnaður markaður í Hornabæ - 20.10.2003 Október

Markaðurinn í Hornabæ sl. laugardag lukkaðist eins og best varð á kosið og var þeim sem að honum stóðu til mikils sóma. Þarna var úrval eigulegra muna á góðu verði, handunnir munir i úrvali, húsgögn, matvæli, heimabakað brauð og ótal margt fleira. Í veitinga-horninu voru bakaðar vöflur með kaffinu. Elísabet Þorsteinsdóttir, ein af þeim sem að markaðnum standa, sagðist vera mjög ánægð með viðtökurnar bæði hvað margir komu með fjölbreyttan söluvarning á markaðinn og svo hvað verslun og öll þátttaka var góð. Lesa meira
 
Og bátnum hvolfdi (mynd: Ingólfur Einarsson)

Æfðu björgun úr sjó - 18.10.2003 Björgunarfélag : Fréttir

Um s.l. helgi æfðu félagar í Björgunarfélagi Hornafjarðar beitingu og meðferð slöngubáta við björgunarstörf. Æfingin fór fram í höfninni og innsiglingunni, og voru notaðir tveir slöngubátar við æfinguna. Björgunarfélagið á einn slöngubát sem er af gerðinni Zodiac Mac II en hinn bátinn lánaði Einar Björn Einarsson sem rekur ferðaþjónustuna við Jökulsárlón. Að sögn Björns Inga Jónssonar formanns Björgunarfélags Hornafjarðar tókst æfingin vel og menn fengu aðeins að blotna. Við höldum svona æfingar reglulega og núna tóku átta björgunarsveitamenn þátt í æfingunni, sem stóð í tvo daga. Lesa meira
 
Elrigreipur undir Eyjafjöllum (mynd:Björn Arnarson)

Elrigreipur kemur frá Ameríku. - 17.10.2003 Fuglar

Óvenju mikið hefur sést af sjaldgæfum amerískum fuglum hér á landi í haust og eins er mikið af þeim fuglum sem heimsækja okkur annað slagið segir Björn Arnarson fuglaáhugamaður á Höfn, þetta er mun meira en ég hef séð hér áður. Þegar Björn var á ferð undir Eyjafjöllum fyrir viku síðan sá hann fugl sem ekki hefur sést áður hér á landi. Þetta var Elrigreipur sem er ný fuglategund fyrir Evrópu og kemur frá Ameríku. Fuglinn er venjulega kallaður Grípur, en það nafn fékk hann af því að hann nærist eingöngu á flugum sem hann grípur í loftinu. Aðrir sjaldgæfir fuglar sem komið hafa frá Ameríku eru Setrustoppa og Álmkraki. Lesa meira
 
Á fullu í gróðursetningu

Nemendur Heppuskóla gróðursetja - 16.10.2003 Október

Nemendur 9. bekkjar Heppuskóla fór í þokunni í dag og gróðursetti 1.050 plöntur í skógræktarsvæði Skógræktarfélags Austur-Skaftafellssýslu við Drápskletta, undir styrkri stjórn Rannveigar Einarsdóttur starfsmanns Suðurlandsskóga. Guðmundur Ingi Sigbjörnsson skólastjóri Heppuskóla sagði að síðastliðin ár hafi skólinn fengið úthlutað úr Yrkju, sem er sjóður æskunnar, til ræktunar landsins. Þær plöntur hafa verið í geymslu hjá Finndísi í Gróðrarstöðinni Dilksnesi meðan beðið var eftir afgirtu skógræktarsvæði. Lesa meira
 
Hornafjarðarhöfn

Frumkvöðlastarfið - 16.10.2003 Fréttir fruma

Það er mikið líf og fjör í kringum Frumkvöðlasetur Austurlands. Nýlokið er viku nýsköpunar og í þessari viku var haldið námskeið um gerð umsókna vegna styrkja, lána og þróunarverkefna og var það í samvinnu við Þróunarstofu Austurlands. Í næstu viku er fyrirhugað námskeið um stofnun og rekstur smáfyrirtækja og kynningarfundur um viðskiptasérleyfi. Ari Þorsteinsson framkvæmdastjóri Frumkvöðlaseturs Austurlands sagði að þetta námskeið sé ætlað þeim sem hafa áhuga á að stofna fyrirtæki, bæta núverandi rekstur, læra gerð viðskiptaáætlana eða fyrir þá sem eru með einhverja brilliant hugmynd sem allir eru orðnir hundleiðir á að hlusta á og tími því komin til að framkvæma. Skráning á þetta námskeið er til 20. október. Lesa meira
 
Krakkar við höfnina

Unga fólkið heim - 15.10.2003 Fréttir

Samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands hefur gefið út fækkaði Hornfirðingum um 20 á tímabilinu júlí til september 2003. Ef teknir eru fyrstu 9 mánuðir ársins hefur íbúum sveitarfélagsins fækkað um 40. Á sama tímabili fjölgaði íbúum Austur Héraðs um 74, íbúum Fellahrepps fjölgaði um 14 og Fjarðarbyggðar um 10. Í Djúpavogshrepp fækkaði um 9 íbúa og í Vopnafjarðarhrepp fækkaði um 15. Íbúum Austurlands fjölgaði því um 54 fyrstu 9 mánuði ársins samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Lesa meira
 
Latibærinn Höfn

Hornfirskir krakkar orkumiklir - 14.10.2003 Október

Krakkarnir á Hornafirði hafa staðið sig frábærlega vel í Orkuátaki Latabæjar. Þegar fyrstu tölur úr keppninni voru birtar sátu þau í toppsætinu með hæsta meðtalið. Meðaltalið er reiknað út frá vatnsdrykkju, grænmeti og ávöxtum, mjólkurvöru, heitum mat, lýsi, tannhirðu og hversu lítið er borðað af sælgæti. Nú hafa verið birtar nýjar tölur í keppninni og er Hornafjörður í 4. sæti yfir meðaltals árangur. Af þeim sjö flokkum sem keppt er í eru krakkarnir okkar í 5. sæti í vatnsdrykkju, 6. sæti í mjólkurvörum og 10. sæti yfir krakka sem borða minnst sælgæti. Lesa meira
 
Horft niður Morsárjökul, Skaftafellsfjöll í fjarska

Vatnajökull hopar samkvæmt nýrri mælingu - 14.10.2003 Október

Skaftafellsjökull hefur hopað um 82 metra á þessu ári og er það með því mesta sem hann hefur hopað á einu ári segir Guðlaugur Gunnarsson fyrrum bóndi í Svínafelli, sem annast hefur mælingar á jöklunum í Öræfum árlega frá 1947. Svínafellsjökull hefur gengið fram um 7 metra, þó er sama með hann, jökullinn hefur þynnst og styttist til hliðanna, en mæling er gerð fyrir miðju jökulsins. Lesa meira
 
Heyrúllubaggahjónin

Heyfengur bænda mikill - 14.10.2003 Október

Heyfengur bænda í Austur-Skaftafellssýslu er mikill eftir sumarið og sumstaðar of mikill enda grasspretta var mjög góð og túnin þarf að hirða til að halda þeim í rækt. Það vakti athygli vegfarenda í haust hvað mikið var af heyrúllum út um öll tún í Flatey á Mýrum, þar voru rúllubaggar í hundraða tali. Samkvæmt upplýsingum hjá Grétari Má hjá Búnaðarsambandinu voru þarna að verki nokkrir bændur á Mýrum. Til gamans var Grétar spurður um hvað færu margir metrar af plasti utanum hverja heyrúllu. Lesa meira
 
Jón Garðar að störfum í dag

Átak hjá lögreglunni - 13.10.2003 Október

Í þessari viku mun lögreglan á Höfn hefja umferðarátak sem standa mun til jóla. Fylgst verður með bílbeltanotkun og sérstök áhersla verður lögð á að fylgjast með öryggisbúnaði barna. Jón Garðar Bjarnason aðstoðarvarðstjóri sagði að samkvæmt könnun væri aðeins um 50% notkun á öryggisbeltum í bifreiðum á Höfn sem er alls ekki viðunandi. Sektum verður beitt þessa viku án viðvörunar. Við erum búnir að vera að í 20 mínútur og nú þegar hafa sex einstaklingar verið færðir til bókar sagði Jón Garðar. Sekt fyrir að nota ekki bílbelti er 5.000 kr. og að auki fær ökumaður einn punkt í ökuferilsskrá. Ef börn yngri en 15 ára nota ekki viðeigandi öryggisbúnað er sektin 15.000 kr. fyrir hvert barn. Lesa meira
 
Ánægðir krakkar með endurskinsborðana

Endurskinsborðar afhentir - 13.10.2003 Október

Föstudaginn 10. október afhentu konur í Slysavarnadeildinni Framtíðin yngstu nemendum Nesjaskóla endurskinsborða, eins og þær hafa gert mörg undanfarin ár. Það var Anna María Kristjánsdóttir sem fór og hitti krakkana og færði þeim borðana að gjöf. Jón Garðar Bjarnason lögregluþjónn var líka til staðar og fræddi hann börnin um hætturnar í umferðinni og hversu mikilvægt það væri að vera með endurskinsmerki eða borða þegar skammdegið leggst yfir. Þessi árvissi atburður hjá þeim slysavarnakonum er til mikillar fyrirmyndar og börnin bíða spennt á hverju hausti eftir þessari heimsókn. Þau 6 ára börn í sveitarfélaginu sem ekki eru í Nesjaskóla fá borðana senda heim til sín. Lesa meira
 
Eigendur Tangó ásamt starfsmanni

Virðisaukaskattur fellur niður af barnafötum í dag - 11.10.2003 Október

Verslunin Tangó í Miðbæ hefur flutt sig um set innan veggja verslunarmiðstöðvarinnar og var nýja verslunin opnuð í dag. Við breytinguna stækkar verslunin um rúma 40 fermetra og er aðstaðan öll hin glæsilegasta, björt og rúmgóð. Það hefur verið mikið að gera hjá eigendunum Tangó, sem lagt hafa nótt við dag svo allt yrði tilbúið fyrir opnunina. Verslunin Tangó býður upp á fjölbreytt vöruúrval m.a. íþróttaföt, barnaföt, skó og tískufatnað. Lesa meira
 
Sigríður Kristinsdóttir eigandi fyrir miðju ásamt starfsmönnum Hrauns

Hraun í nýtt húsnæði - 10.10.2003 Október

Það var mikið um dýrðir hjá Fasteignasölunni Hraun í dag þegar fyrirtækið flutti starfssemi sína úr 70 fermetra leiguhúsnæði, í glæsilegt 140 fermetra, eigið húsnæði að Hafnarbraut 15. Auk þess að stunda fasteignasölu, er Hraun hluti af Regula lögmannsstofu sem er ein öflugasta lögmannsstofan á norðan- og austanverðu landinu, með starfsstöðvar á Hornafirði, Egilsstöðum og Húsavík. Einnig er Hraun með umboðsskrifstofur fyrir Tryggingamiðstöðina og Toyota. Lesa meira
 
Séð frá Leiðarhöfða

Framlög vegna lægri fasteignaskatta - 10.10.2003 Fréttir

Félagsmálaráðherra hefur fallist á tillögu ráðgjafanefndar um úthlutun framlaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti. Sveitarfélagið Hornafjörður fær nú í sinn hlut 8.516.317 kr. og kemur sú upphæð til greiðslu í október. Endanlegt framlag til sveitarfélagsins er því 27.064.032 kr. á árinu 2003. Höfuðborgarsvæðið fær minnst í sinn hlut eða rúmar 12,3 milljónir. Suðurland fær aftur á móti hæstu greiðsluna sem er rúmar 290 milljónir. Austurland fær í sinn hlut rúmar 206 milljónir. Lesa meira
 
Steinunn SF-10

Lifnar yfir síldveiðum - 10.10.2003 Október

Síldin er aðeins farin að sýna sig eftir langa bið. Jóna Eðvalds kom af vestfjarðarmiðum í gær og landaði 400 tonnum af síld sem fóru í bræðslu, hún hélt síðan til veiða fyrir austan land. Steinunn er að landa 250 – 300 tonnum af þokkalegri síld sem fer í vinnslu, hún heldur síðan aftur á miðin út af austurlandi í dag. Ásgrímur Halldórsson er fyrir austan land, tilbúin til veiða um leið og veður gengur niður, en bræla hamlar veiðum í augnablikinu. Lesa meira
 
Ragnar Frank, þjóðgarðsvörður

Boðið upp á ferðir með hestakerru - 10.10.2003 Október

Gestastofunni í Skaftafelli var lokað um sl. mánaðarmót eftir gestkvæmt sumar. Þó búið sé að loka er enn mikið að gera í Gestastofu því margir hópar skólafólks, einnig erlendir, hafa komið og eiga eftir að koma í þessum mánuði. Við opnum fyrir gestunum og sýnum þeim það sem Gestastofan hefur uppá að bjóða og sú þjónusta er ókeypis segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður. Þetta er alltaf að aukast hér og ferðatíminn lengist og þjónustan er hér til staðar. Lesa meira
 
Það er allt hægt að selja á Loppemarked

Hornabær með nýtt hlutverk - 09.10.2003 Október

Nú hefur verið ákveðið að opna markað fyrir notað og nýtt í húsinu sem kennt er við Hornabæ. Það eru nokkrir áhugasamir einstaklingar sem ætla að bjóða fólki að koma með framleiðslu sína, eða bara gamla dótið úr bílskúrnum og bjóða til sölu fyrir mjög lágt gjald. Sigrún Sveinbjörnsdóttir er í hópi þessara framtaksömu einstaklinga og sagði hún að þau langaði til að sjá fólk koma með hluti sem það hefði ekki lengur not fyrir, hvort sem það er bolli eða borð, bændur með sína framleiðsluvöru, fiskimenn, félagasamtök, handverksfólk ofl. Lesa meira
 
Við Kotá

Framkvæmdir í Öræfum - 08.10.2003 Október

Opnuð hafa verið tilboð hjá vegagerðinni, vegna endurbyggingar hringvegarins í Öræfum. Tilboðið er annars vegar endurbygging vegar um Kotá, á 0,9 km. löngum kafla, ásamt 2,8 km. af varnargörðum í farvegi árinnar og hins vegar niðursetning á stálplöturæsi í Heiðarlæk í Öræfum, ásamt vegagerð á um 50 m. löngum kafla. Verkinu skal að fullu lokið 15. mars 2004. Alls buðu 10 aðilar í verkið, þar af þrír verktakar frá Hornafirði, en áætlaður verktakakostnaður er kr. 37.391.000. Lesa meira
 
Guðjón Pétur og Stefán Ólafsson ræða málin, Helgi Már fylgist með

Kortlagning og ræktunarátak hjá Laxanes - 08.10.2003 Október

Laxanes ehf á Hornafirði, annar frumkvöðla sem kominn er með starfsemi í Nýheimum, stefnir að því að kortleggja alla stangveiðimöguleika í sýslunni og jafnvel að fara í ræktunarátak þar sem þörf er á. Við teljum að hér séu miklir möguleikar, hér eru alveg ótrúlega margir veiðistaðir en þeim hefur ekki verið sinnt sem skyldi segir Guðjón Pétur Jónsson framkvæmdastjóri Laxanes. Lesa meira
 
Allt á fullu í afurðasölunni

Breytt út af venju í slátursölu - 07.10.2003 Október

Afurðasala Sláturfélagsins Búa á Hornafirði breytir út af venju með slátursölu í haust. Í stað þess að selja heil slátur eins og viðgengist hefur í tugi ára verður allt hráefni til sláturgerðar selt í lausasölu. Einar Karlsson sláturhússtjóri segir að sala á heilum slátrum komi ekki til greina, þar sem undanfarin haust hafi mikil vinna farið í að taka til slátrin og svo hafi fólk viljað skilja eftir eitt og annað sem það vildi ekki af slátrinu. Ekki verður hægt að fá vambir í afurðasölunni í haust en seldir verða gerfi-keppir á 60 kr.stk. Lesa meira
 
Verður Hafnarbrautin vistvæn gata?

Hafnarbrautin, vistvæn gata - 07.10.2003 Október

Ákveðið hefur verið að fresta loka frágangi við þann hluta Hafnarbrautar sem unnið var við s.l. sumar, en því verki átti að vera lokið í ágúst s.l. Á bæjarráðsfundi sem haldin var 2. október fól bæjarráð Tækni- og umhverfissviði að vinna að framtíðarskipulagi fyrir svæðið frá Grímsstaðarhæð og inn að gatnamótum Víkurbrautar og Hafnarbrautar, auk umhverfis Miðbæjar og Nýheima. Í þeim frumdrögum sem lögð hafa verið fram er gert ráð fyrir vistvænni götu þar sem dregið verður mjög úr umferðarhraða og áhersla lögð á bætta aðstöðu fyrir gangandi vegfarendur. Lesa meira
 
Tekið til matar í Reyðarfjarðarkirkju     Mynd:EGÞ

Barnakór Hornafjarðar í tónleikaferð - 06.10.2003 Október

Tuttugu og fimm börn í Barnakór Hornafjarðar héldu til Eskifjarðar á föstudaginn ásamt söngstjóra og kennara þeirra Kristínu Jóhannesdóttur og fylgdarliði. Erindið austur var að fara á kóramót sem haldið var á Eskifirði um helgina. Mótið sóttu auk Hornfirðinganna kór frá Kársnesskóla í Kópavogi, Egilsstaðaskóla, Reyðarfirði og Eskifirði alls um 100 börn. Kórarnir voru allan laugardaginn á söngæfingum og um kvöldið var kvöldvaka og skemmtidagskrá í safnaðarheimilinu á Eskifirði þar sem hver kór var með skemmtiatriði. Lesa meira
 
Eldri borgarar á göngu, Ekran í baksýn

Engin lognmolla hjá félagi eldri borgara - 04.10.2003 Október

Vetrarstarf hjá Félagi eldri borgara á Hornafirði er þessa dagana að fara í gang. Undanfarin ár hefur félagið staðið að mjög fjölbreyttu og öflugu félagslífi meðal eldri borgara og verður engin breyting þar á í vetur. Boðið er m.a. upp á boccia, snóker, líkamsrækt, pútt, sem fram fer á púttvelli félagsins, bókband, gönguferðir, sundleikfimi og ekki má gleyma hinu öfluga starfi sem fram fer í kór eldri borgara, Gleðigjöfum. Í vetur er einnig fyrirhugað að halda námskeið í glerlist og postulínsmálun og eflaust fellur eitthvað fleira til. Lesa meira
 
Ari þorsteinsson

Fyrstu frumkvöðlarnir í Frumkvöðlasetur Austurlands - 03.10.2003 Fréttir fruma

Undirritaðir hafa verið samningar við fyrstu frumkvöðlana sem fá aðstöðu í Frumkvöðlasetrinu í Nýheimum á Hornafirði. Þessi fyrirtæki eru Laxanes ehf og Frumkvöðlafræðslan. Ari Þorsteinsson framkvæmdastjóri Frumkvöðlasetursins ásamt þeim Guðjóni Jónssyni f.h. Laxanesi ehf og G. Ágúst Péturssyni undirrituðu samninginn. Lesa meira
 
Álftir gera sig heimakomnar

Stórir hópar álfta á beit með kindunum - 03.10.2003 Fuglar

Það eru ekki bara kindurnar sem nota sér grasið á túnum bænda á Mýrum og í Suðursveit heldur eru stórir hópar álfta á beit innan um kindurnar. Björn Arnarson fuglaáhugamaður segir að þessa dagana komi stórir hópar álfta af öllu landinu og safnist hér saman áður en haldið er til vetrarstöðvanna í Bretlandi. Þær geta stansað hér alveg í mánuð eða meira ef tíð er góð. Lesa meira
 
Þorgeir og Guðrún við jöklatjaldið

Nemendur Heppuskóla skoða Jöklasafnið - 02.10.2003 Október

Nemendur Heppuskóla fóru í gær, miðvikudag í skoðunar- og fræðsluferð á Jöklasafnið undir styrkri stjórn Þorgeirs Kristjánssonar kennara. Einn bekkur fór í einu og gafst því góður tími til skoðunar og fræðslu. Á Jöklasafninu tók á móti þeim starfsmaður safnsins Guðrún Ingimundardóttir og sýndi nemendunum safnið og fræddi þau um jöklana, náttúru Hornafjarðar og hina ýmsu hluti sem tengjast jöklunum og eru til sýnis á safninu. Lesa meira
 
Fasteingamarkaðurinn á Höfn

Líflegur fasteignamarkaður á Höfn - 01.10.2003 Október

Fasteignamarkaðurinn á Hornafirði gengur alveg þolanlega segir Sigríður Kristinsdóttir fasteignasali hjá Hraun, og verð á húsum er alveg þokkalegt. Það er alltaf hreyfing í sölu og mér finnst að þegar fólk sem flytur á staðinn og er búið að vera í smá tíma þá festir það sér íbúð eða hús. Mörg hús hafa komið í sölu þegar eldra fólkið keypti íbúðir í Ekru og segir Sigríður að mjög vel hafi gengið að selja þau hús. Það sem helst er erfitt í sölu hér eru gömul hús sem þarf að gera upp og endurbæta. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica