September
Lundinn í Ingólfshöfða
Lundinn í Ingólfshöfða

07.09.2003 Fuglar

Um 50 þúsund lundahreiður í Ingólfshöfða

Skoðunarferðum í Ingólfshöfða á þessu sumri er að ljúka og voru nokkru fleiri sem fóru í höfðann í sumar en verið hefur. Sigurður Bjarnason bóndi í Hofsnesi hefur veg og vanda að þessum ferðum og þar sem ekki er fært bifreiðum yfir sandinn notar hann dráttarvélar og kerrur til að ferja fólk á milli. Þessi ferðamáti er mjög vinsæll og í sumar hafa um 3500 erlendir ferðamenn að meðtöldum íslenskum fylgdarmönnum farið út í Ingólfshöfða. Íslenskir ferðamenn eru mjög fáir eiginlega ótrúlega fáir segir Sigurður og kennir hann veðurfarinu um, það hefur verið of mikil væta og er þetta alveg öfugt við það sem var í fyrra þá voru þeir íslensku óvenju margir.

 

Mikið og fjölskrúðugt fuglalíf er í Ingólfshöfða, lundahreiður eru um 50 þúsund og auk þeirra 100 þúsund lunda sem að varpinu standa eru um 200 þúsund ókynþroska lundar, langvíur þar eru um 16 þúsund. Besti tíminn til að koma í höfðann, segir Sigurður að sé frá því fyrst í júní til júlíloka, þá er fuglalífið í hámarki og best er að skoða fuglana þegar veður er leiðinlegt þá er mikið meira af þeim í höfðanum. Fuglinn hvarf áleiðis til vetrarheimkynna sinna viku fyrr í sumar en verið hefur og ástæðan fyrir því er góð tíð í vor og sumar, varpið byrjaði fyrr og fuglinn hafði nóg æti. Að sögn fólks sem farið hefur í Ingólfshöfða eru þessar ferðir undir leiðsögn  Sigurðar og frásagnir hans sérstaklega skemmtilegar.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica