September

Ragnheiður og Berglind ásamt Páli Óskari

Hornfirðingar á Skjáeinum - 30.09.2003 September

Annað kvöld á Skjáeinum (miðvikudagur 1. október) verður í þættinum Fólk með Sirrý sýndur fatnaður frá Félagi meistara og sveina í fataiðn, en félagið er að verða sextugt um þessar mundir. Meðal þeirra sem fram koma í þættinum er hornfirðingurinn Ragnheiður Hrafnkelsdóttir, sem sýnir fatnaði hannaðan af sér og samstarfskonu sinni Berglindi Ómarsdóttir. Eitt af módelum Ragnheiðar er faðir hennar Hrafnkell Ingólfsson. Þær stöllur sem báðar eru með sveinspróf í klæðskurði og kjólaklæðskurði reka saman fyrirtækið Kjóll og klæði sem er til húsa að Tryggvagötu 12. Fyrirtækið stofnuðu þær í júní s.l. og þar bjóða þær upp á sérsaum, hönnun, breytingar og fleira. Lesa meira
 
Flekinn dreginn yfir Breiðá

Fé ferjað á fleka - 30.09.2003 September

Bændur í Öræfum fóru í göngur í Breiðamerkurfjall sl. laugardag og var það önnur ferðin þangað í haust. Um 240 kindur voru á fjallinu í sumar. Í fyrri ferðinni hrepptu gangnamenn hið versta veður og urðu frá að hverfa án þess að geta lokið smölun og urðu um 50 kindur eftir. Á laugardaginn var veður eins og það best verður á haustdegi og í birtingu lögðu sjö gangnamenn af stað í leitirnar. Þeir áætluðu að vera komnir niður að réttinni við Breiðá uppúr hádegi en ekki gekk það eftir og var ekki komið í réttina með síðasta hópinn fyrr en milli kl.18 og 19. Erfiðlega gekk að ná kindunum saman því þær voru ekki á því að yfirgefa fjallaparadísina strax og eftir mikil hlaup og langar göngur tókst að koma 23 kindum í réttina við ána. Þrjár kindur syntu yfir Breiðána langt neðan við ferjustaðinn og tókst að handsama þær þar. Lesa meira
 
Bíóstjórinn Gunnar Ingi

Kvikmyndasýningar að nýju í Sindrabæ - 30.09.2003 September

Gunnar Ingi Valgeirsson hefur tekið rekstur Sindrabíós á leigu. Gunnar Ingi sagði að samningurinn sé til þriggja mánaða til að byrja með, en að þeim tíma liðnum ætti að vera komið í ljós hver rekstarmöguleikinn er. Í byrjun er reiknað með að sýningar verði aðra hverja viku, en það ræðst líka af viðbrögðum Hornfirðinga, ef þeir verða duglegir að mæta í bíó þá fjölgar örugglega sýningunum. Ég stefni á að hafa eins mikið af barnamyndum og mögulegt er, en það eru myndirnar sem erfiðast er að fá sagði Gunnar Ingi að lokum. Lesa meira
 
Lionskonur og Áslaug við hluta af gjöfunum

Höfðingleg gjöf til HSSA - 29.09.2003 September

Lionsklúbburinn Kolgríma færði fæðingardeild Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands höfðinglega gjöf í dag. Það var Áslaug Íris Valsdóttir ljósmóðir sem veitti gjöfinni viðtöku fyrir hönd HSSA og þakkaði lionskonum fyrir góðan stuðning við stofnunina. Gjöfin innihélt m.a. sogtæki sem ekki hefur verið til á fæðingardeildinni og eykur tækið mikið á öryggið ef eitthvað er að, fullkominn sjálfvirkan blóðþrýstingsmælir, einnig blóðþrýstingsmælir til að lána konum heim þannig að þær geti mælt sig heima í rólegheitunum með töluvert mikilli nákvæmni, 7 hlustunarpípur bæði barna og fullorðins og fl. Lesa meira
 
Kvennakór Garðabæjar

Kvennakór Garðabæjar í heimsókn - 29.09.2003 September

Laugardaginn 4. október kl. 16:00 mun Kvennakór Garðabæjar halda tónleika í Nýheimum. Kórinn er á sínu fjórða starfsári og eru kórfélagar 44 talsins. Kórstjóri er Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópransöngkona, en hún er barnabarn Lukku og Eymundar. Undirleikari kórsins er Helga Laufey Finnbogadóttir. Kvennakór Hornafjarðar mun einnig koma fram á tónleikunum og syngja kórarnir í sitt hvoru lagi og saman íslensk og erlend lög. Þetta er fyrsta formlega söngferð kórsins og í för með þeim verða eiginmenn kórkvenna og er ætlunin að njóta alls þess sem Hornafjörður hefur upp á að bjóða. Lesa meira
 
Hljómsveit Hauks

Stuð á Hauk um helgina - 29.09.2003 September

Hljómsveit Hauks hélt upp á 20 ára afmælið sitt um helgina með tónleikum og dansleik. Á föstudagskvöldið voru tónleikar í Sindrabæ þar sem fram kom fjöldi listamanna sem tengdust Hauk og hljómsveit hans á einn og annan hátt. Um 170 manns mættu á tónleikana og rann allur ágóði af þeim til styrktar Hilmis Guðna Heimissonar. Tónleikarnir tókust afburðavel og voru gestir jafnt sem gestgjafar ánægðir með kvöldið. Lesa meira
 
Háir og miklir hólar efnis sem mokað hefur verið upp úr Kotá undanfarnar vikur

Vegur og varnargarðar í útboð - 27.09.2003 September

Hækkun á veginum beggja megin við brúna á Kotá sem við höfum áður greint frá verður boðinn út á næstunn ásamt varnargörðum. Eins og brúin þá verður vegurinn hækkaður mest um hálfan annan meter. Ekki verður vandamál að fá efni í veginn því það efni sem búið er að moka upp úr Kotá verður notað og það skiptir þúsundum rúmmetra segir Jón Bjarnason hjá Vegagerðinni og sama er að segja um efni í varnargarðana þar er enginn skortur á möl og grjóti. Lesa meira
 
Hugmyndasmiðir framtíðarinnar

Hugmyndasamkeppni fyrir ungt fólk - 26.09.2003 September

Sjóvá Almennar og Bindindisfélag ökumanna eru að fara af stað með samkeppni meðal ungs fólks þar sem leitað er góðra hugmynda til að vekja athygli fólks einkum ungra ökumanna á umferðaröryggismálum og á þeirri staðreynd að akstur er full vinna sem krefst óskiptrar athygli og mikillar einbeitingar,eins það að akstri fylgir mikil ábyrgð. Allir á aldrinum 16-20 ára geta tekið þátt í samkeppninni og komið sínum hugmyndum til skila með ýmsu móti. Lesa meira
 
Jökulsárlón, vinsæll ferðamannastaður [© ebe]

Hornafirðingar sækja Vest Norden - 26.09.2003 September

Vest Norden ferðamálaráðstefna var haldin í Færeyjum 15. og 16. september sl. og voru tveir Hornfirðingar meðal þeirra sem hana sóttu, þau Ragnar Frank Kristjánsson þjóðgarðsvörður í Skaftafelli og Guðrún Ingimundardóttir umsjónarmaður Jöklasýningar á Höfn. Vest Norden er samstarf Færeyinga, Íslendinga og Grænlendinga og kynning á hverskonar ferðaþjónustu sem löndin bjóða uppá og eru ráðstefnur haldnar árlega. Lesa meira
 
Hressir nýnemar

Nýnemahátíð í Heppuskóla - 25.09.2003 September

Í dag hefur verið mikið líf og fjör í Heppuskóla. Í skólanum hefur það verið til siðs að nýnemar hafa fengið aðeins að finna fyrir mætti eldri nemenda skólans og var sú athöfn í íþróttahúsinu í dag. Krakkarnir í 10. bekk sjá um nýnemavígsluna og var mikil stemming hjá krökkunum. Vígslan fór vel fram enda góðir unglingar á Hornafirði. Í kvöld verður síðan nýnemahátíð í Mánagarði og hefst gleðin kl. 20:00. Þar verður boðið upp á veisluborð að hætti Ingólfs á Kaffi Horninu og skemmtidagskrá sem er í umsjón 9. bekkjar, sem sá líka um að skreyta salinn. Lesa meira
 
Gert sig klárann fyrir jökulinn

Elsti þátttakandinn í Öræfaferðum 83 ára - 25.09.2003 September

Árið 1994 byrjaði Einar R. Sigurðsson á Hofsnesi í Öræfum sem leiðsögumaður í gönguferðum upp á Öræfajökul og Hvannadalshnúk og stofnaði fyrirtæki sitt Öræfaferðir. Mikil eftirspurn er eftir þessum ferðum allt árið mest þó í maí og júní. Þegar Einar byrjaði með ferðirnar voru það 90-95 % útlendingar sem hann fór með á jökulinn en núna hefur þetta algjörlega snúist við þannig að nú eru 95 % íslendingar sem ganga á jökulinn. Lesa meira
 
Blíða við höfnina

Skipverji á Steinunni SF-10 fótbrotnaði - 24.09.2003 September

Skipverji á Steinunni SF-10 fótbrotnaði er skipið var að síldveiðum í Berufjarðarálnum í nótt. Strax var haldið með skipverjan til Djúpavogs og var hann kominn undir læknishendur rúmum þrem tímum eftir að slysið átti sér stað. Líðan mannsins er góð. Steinunn hélt aftur til veiða og voru þeir komnir með 70 tonn af ágætri síld í morgun. Jóna Eðvalds fékk 170 tonn af síld í nótt, í nokkrum köstum í Berufjarðarálnum. Lesa meira
 
Helga Bogga og Eydís starfsmenn NorðurÍss

Hvers vegna er NorðurÍs á Hornafirði - 24.09.2003 September

Fyrirtækið NorðurÍs var stofnað á Hornafirði árið 1999 og er til húsa í gömlu mjólkurstöðinni. Tilgangurinn var og er framleiðsla bragðefna úr sjávarfangi. NorðurBragð er afurð sem fyrirtækið framleiðir, en það er frosið þykkni sem matreiðslumeistarar geta nýtt sér til að kalla fram ferskt og gott bragð sjávarfangs. NorðurÍs er líftæknifyrirtæki, sem spratt úr þekkingarumhverfinu við Háskóla Íslands. Lesa meira
 
Grétar Már Þorkelsson

Grétar til starfa hjá Búnaðarsambandinu - 23.09.2003 September

Grétar Már Þorkelsson á Hornafirði hefur verið ráðin starfsmaður hjá Búnaðarsambandi Austur-Skaftafellssýslu og tekur við af Stefaníu Nindel. Grétar er búfræðingur og er ráðinn tímabundið þar sem enginn ráðanautur sótti um starfið. Honum líst vel á þetta allt en segist vera svona smá stressaður ennþá. Grétar segir starfið vera fólgið í því að vera einskonar milliliður bænda og bændasamtaka Íslands og framundan sé t.d. að halda tölvunámskeið, það er eins í búskapnum og öðru allt er orðið háð tölvunotkun og bændur þurfa að fylgjast með nýungum á því sviði. Þetta er fjölbreytt starf sem gaman verður að takast á við. Lesa meira
 
5.flokkur SIndra 2002

Búið að ráða þjálfara - 22.09.2003 September

Nú hefur verið gengið frá ráðningum á þjálfurum hjá knattspyrnudeild Sindra fyrir komandi tímabil. Að sögn Valdemars Einarssonar formanns knattspyrnudeildar gengu ráðningar vel fyrir sig, og nokkrir nýir þjálfarar bætast í hópinn. Um leikmannamál hjá meistaraflokkum félagsins er lítið að segja enn sem komið er. Vonandi verða sem flestir leikmenn áfram og hver veit nema ný andlit bætist í hópinn sagði Valdi að lokum. Lesa meira
 
Komið niður á klöppina

Hönnun brúar breytt - 22.09.2003 September

Brúarbyggingu yfir Skaftá við Kirkjubæjarklaustur seinkar eitthvað vegna þess að klöpp fannst ekki við eystri bakkann þar sem verið var að grafa fyrir undirstöðum að nýju brúnni. Gunnar Gunnlaugsson hjá hornfirska fyrirtækinu Mikael ehf sem byggir brúna segir að tekið hafi verið það ráð að breyta hönnun brúarinnar þannig að hún færist þrjá metra til austurs og hinn endinn þrjá metra til suðurs og nokkrar breytingar voru gerðar á útliti brúarenda. Lesa meira
 
Hljómsveit Hauks

Hljómsveit Hauks í 20 ár - 22.09.2003 September

Nú styttist óðum í styrktartónleika hljómsveitar Hauks sem verða í Sindrabæ föstudagskvöldið 26.september. Hljómsveitin var í æfingabúðum alla helgina og var hvergi slegði af. Mikið er lagt í tónleikana til að þeir verði sem allra bestir s.s.gott hljóð, flotta lýsingu og myndvarpa. Á dagskrá tónleikana má finna lög eftir hljómsveitarmeðlimi, Stones, Bítlana, Eric Clapton, Roxett, Cliff Richard, Tinu Turner, Janis Joplin ofl., ofl. Sex söngvarar sem sungið hafa með hljómsveitinni koma fram og voru þeir í góðum fíling um helgina. Þá koma líka góðir gestir að austan og sunnan og taka lagið. Lesa meira
 
Djúpt hugsi á skökkviliðsnámskeiði

Slökkviliðsmenn á skólabekk - 22.09.2003 Fréttir

Slökkviliðsmenn á Hornafirði hafa um helgina sótt námskeið sem Brunamálaskólinn stendur fyrir. Kennsla fór fram í Áhaldahúsi bæjarins. Brunamálaskólinn stendur fyrir alhliða kennslu fyrir slökkviliðsmenn og eru námskeið haldin á hverju ári hjá öllum slökkviliðum á landinu. Á námskeiðinu var m.a. farið yfir og kennd grunnatriði í slökkvi- og björgunarstarfi, hvernig unnið er með björgunarklippur þar sem orðið hafa umferðarslys og meðhöndlun eiturefna. Lesa meira
 
Miðbær, glæsilegt verslunarhús

Breytingar í Miðbæ - 20.09.2003 September

Í haust munu töluverðar breytingar eiga sér stað í Miðbæ. KASK hefur nýlega undirritað leigusamning við VÍS sem flytur aðstöðu sína úr Landsbankanum yfir í Miðbæ, þar sem verslunin Tangó er í dag. Hársnyrtistofan Jaspis mun síðan stækka inn í hluta af núverandi verslunaraðstöðu Tangó. Tangó mun aftur á móti flytja starfsemi sína í mun stærra rými, sem er staðsett fyrir innan Jaspis. Lesa meira
 
Brúin yfir Kotá hækkuð

Kotárbrú lyft - 19.09.2003 September

Brúarvinnumenn frá Vík sem hafa verið að vinna við Kotá í þessari viku eru búnir að hækka brúna um einn og hálfan meter. Jón Bjarnason hjá Vegagerðinni sagði að verkið hefði gengið fljótt og vel þegar loksins var hægt að komast að brúarstæðinu vegna vatnavaxta, en óvenjumikið hefur verið í ánni undanfarið. Ánni var veitt í nýjan farveg meðan unnið er við brúna og verður líklega veitt aftur í sinn gamla farveg fyrir helgi. Lesa meira
 
Það er leikur að læra

Fundahöld í skólum - 18.09.2003 Hafnarskóli fréttir

Í byrjun skólaárs er mikið af upplýsingum sem koma þarf til foreldra skólabarna um vetrarstarfið. Í síðustu viku voru haldnir kynningarfundir í Nesjaskóla þar sem farið var yfir kennsluáætlun vetrarins, námsgögn nemenda og fyrirspurnum svarað. Í gær var samskonar kynning í Heppuskóla. Þar var m.a. rætt um samræmduprófin sem nemendur 10. bekkjar koma til með að þreyta í vor, próf sem skipta miklu máli vegna áframhaldandi skólagöngu. Hafnarskóli var einnig með fund í gær fyrir foreldra nema í 4.- 5. bekk. Lesa meira
 
Frágangur í Fákaleiru

Frágangur á Fákaleiru - 17.09.2003 September

Nú er unnið við lokafrágang á botnlöngunum í Fákaleiru. Malbika á göturnar og leggja gangstéttir. Verktaki er Rósaberg og verkinu á að vera lokið um næstu mánaðarmót. Það er alltaf mikið gleðiefni þegar ómalbikuðum götum fækkar og gangstéttir eru lagðar. Bæði er þetta mikill munur fyrir íbúana og svo gera svona framkvæmdir bæinn okkar snyrtilegri og fallegri. Lesa meira
 
Hvannadalshnjúkur, séð í austur

Snælínan könnuð - 17.09.2003 September

Í gær flaug Ásgeir Núpan fyrir Raunvísindastofnun inn á Vatnajökul til að kanna hvar snælínan liggur á jöklinum. Flugið tók um þrjá tíma og voru veðurskilyrði eins og best verður á kosið. Finnur Pálsson hjá Raunvísindastofnun sagði að stofnunin væri með afkomumælingar á jöklinum. Þar mælum við hversu mikið fellur á hann á veturna og hver bráðnunin er að sumarlagi og þar liggur jafnvægislínan. Lesa meira
 
Mfl. kvenna

Síðasti leikur sumarsins - 16.09.2003 September

Síðasti leikur sumarsins hjá mfl. kvenna hjá Sindra var í dag gegn Þór/KA/KS og fór leikurinn fram á Mánavelli. Leiknum lauk með sigri norðan stúlkna 9 – 0 sem var full stór sigur miðað við gang leiksins og hefðu Sindraskvísur getað sett ein 2 til 3 mörk ef heppnin hefði verið þeim hliðholl. Í lið Sindra vantaði Guðrúnu Ásu og Lenu en þær voru báðar meiddar. Greinilegt er að töluverður styrkleika munur er á þeim liðum sem berjast um að halda sæti sínu í úrvalsdeild og bestu liðunum í 1. deild. Þór/KA/KS skoraði alls 16 mörk í leikjunum tveim gegn Sindra en í 14 leikjum í úrvalsdeildinni skoruðu þær aðeins 10 mörk þannig að ekki er munurinn minni á toppi og botni úrvalsdeildar. Lesa meira
 
Rainbow Warrior á siglingu inn í Hornafjarðarhöfn

Rainbow Warrior í höfn - 16.09.2003 September

Um kl. 9:45 í morgun sigldi skip Grænfriðunga Rainbow Warrior í höfn á Hornafirði. Þeir grænfriðungar hafa verið á hringferð um landið til að kynna málstað sinn. Búnir að koma við á Ísafirði og Húsavík og allstaðar fengið góðar viðtökur að sögn. Sérstaklega voru þeir ánægðir með móttökurnar á Húsavík enda hvalaskoðun stór þáttur í ferðamanna iðnaðinum þar. Lesa meira
 
Karítas á Sindravöllum

Karítas á úrtaksæfingu fyrir U-17 - 16.09.2003 September

Um s.l. helgi tók Karítas Þórarinsdóttir þátt í úrtaksæfingu fyrir U-17 ára landsliðið sem tekur þátt í Norðurlandamótinu í júlí 2004. Karítas var þar í hópi 60 stelpna sem allar koma af suðurhorni landsins. Þetta var fyrsti hlutinn af úrtaksæfingum en eftir er að halda þær á norður- og austurlandi. Karítas hefur leikið með 2. og 3. flokk KR í sumar. Hún sagði að í dag væri stefnan sett á að spila með KR næsta sumar en þó væri ekkert ákveðið í þeim efnum. Lesa meira
 
Skiltið sem lokkar og laðar

Hornfirðingar taka vel á móti þér - 15.09.2003 September

Sveitarfélagið Hornafjörður hefur látið setja upp stórt og mikið skilti við Lónsafleggjara sem hvetja á ferðalanga til að keyra þessa fáu kílómetra sem upp á vantar til að heimsækja Höfn. Eflaust gera ekki allir sér grein fyrir hversu margir láta hjá líða að aka þessa 5 kílómetra í blómstrandi fegurð og gott mannlíf og aka þess í stað rakleitt áfram austur eða vestur. Fyrir þá sem alltaf aka framhjá má nefna að Höfn hefur upp á margt að bjóða fyrir ferðalanga, góða veitingastaði og verslanir, sundlaug og söfn, gistingu og margskonar afþreyingu. Lesa meira
 
Linda, Rúnar og Gunnar Örn

Krakkar á ferð og flugi - 15.09.2003 September

Í sumar hafa staðið yfir tökur á þáttaröð sem kallast Krakkar á ferð og flugi. Þættirnir fjalla um dag í lífi barna á Íslandi og verða 10 talsins. Þættirnir hafa verið teknir upp víðsvegar um landið m.a. á Ísafirði, Seyðisfirði, Grímsey, Vík í Mýrdal og Flatey á Breiðafirði. Í síðust viku stóðu yfir tökur á Hornafirði og er Gunnar Örn Olgeirsson 9 ára Hornfirðingur í aðalhlutverki þess þáttar. Gunnar Örn sagði að þetta hefði verið voða gaman og ekkert erfitt að vera með myndavélina á eftir sér í tvo daga. Farið var víða um og mikið myndað en hver þáttur verður trúlega um 15 mínútna langur. Lesa meira
 
Bara bestar

Allt getur gerst í fótboltanum - 13.09.2003 September

Í dag kepptu Sindraskvísur fyrri leikinn við Þór/KA/KS á Þórsvellinum á Akureyri. Ekki fór leikurinn alveg eftir björtustu vonum og lauk honum með sigri þeirra norðan stúlkna 7 – 0. Síðari leikurinn verður á Sindravöllum n.k. þriðjudag og þá er ekkert annað í stöðunni fyrir stelpurnar okkar en að setja ein 8 mörk á hið svokallaða norðurbandalag. Hvort það er raunhæft skal ósagt látið en allt getur gerst í fótboltanum. Hvernig sem fer þá geta stelpurnar borið höfuðið hátt eftir sumarið því þær hafa svo sannanlega skemmt stuðningsmönnum sínum með leiftrandi leik og frábærum árangri. Lesa meira
 
Hraustlega tekið á í Stafafellsfjöllum

Mikil ásókn í nýjar lóðir - 13.09.2003 September

Í Stafafellsfjöllum er mikill fjöldi sumarhúsa enda veðurfar þar með eindæmum gott og fegurðin mikil. Hornfirðingar kannast vel við “Það er alltaf sól í Lóni” og er það orð að sönnu og ber gróðursældin þess glöggt merki. Töluverð ásókn hefur verið eftir lóðum í Stafafellsfjöllum undanfarið og er nú svo komið að aðeins örfáar lóðir eru eftir samkvæmt skipulagi. Þó nokkrir nýbúar hafa numið þar land seinustu vikurnar og hefur mikið gengið á þegar menn brasa við að girða landskikana sína. Lesa meira
 
Allt gert klárt

LAN í Hornabæ - 12.09.2003 September

Í dag hefst lanmót í Hornabæ. Það eru nokkrir framtakssamir strákar sem hafa fengið afnot af Hornabæ og ætla að keppa þar í tölvuleikjum um helgina. Lan gengur út á að tölvur eru tengdar saman og síðan er keppt á staðarneti í sama leiknum. Töluverður fjöldi var mættur með tölvurnar sínar kl. 13:00 í dag og var mikil spenna og menn voru greinilega albúnir í keppnina. Reiknað er með allt að 20 þátttakendum, keppt verður einnig á laugardag og sunnudag. Lesa meira
 
Séð heim að Svínafelli

Alltaf fullt í svefnpokagistingu í sumar. - 11.09.2003 September

Það var alltaf fullt í gistiplássinu hjá okkur í sumar og hefðum þurft að hafa fleiri pláss segir Ólafur Sigurðsson ferðaþjónustubóndi í Svínafelli í Öræfum. Munstrið í ferðaþjónustunni hefur breyst þannig að mikil aukning er á þeim ferðamönnum sem ferðast um á bílaleigubílum og á móti því kemur að hópar minnka og þeim fækkar. Talsvert er enn af útlendingum á ferðinni og það teygist úr ferðatímanum í báða enda. Lesa meira
 
Framkvæmdir á tjaldstæði

Framkvæmdir á tjaldstæðinu - 11.09.2003 September

Þessa dagana er unnið við breytingar á tjaldstæðinu á Höfn, rist hefur verið ofan af töluverðu svæði fyrir innan vatnstankinn og verður það svæði sett í þrjá stalla og síðan tyrft. Eftir þessar lagfæringar eykst framboð af sléttum, lágréttum flötum á tjaldstæðinu til muna og betur fer um þá fjölmörgu gesti sem gista á tjaldstæðinu ár hvert. Verkinu á að vera lokið fyrir næstu mánaðarmót. Þetta er hluti af lokafrágangi svæðisins en í vor á að ljúka frágangi samkvæmt skipulagi og verður þá aukið við skjólbelti og girðingar auk annarra lagfæringa. Lesa meira
 
Ryk

RYK, sýning Ingu Jónsdóttir - 11.09.2003 Menning

Laugardaginn 6. september var opnuð sýning Ingu Jónsdóttur í Listasafni ASÍ. Sýningin er í Ásmundarsal og Gryfju en sýningin ber nafnið RYK. Inga lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1989 og framhaldsnámi frá Academie der Bildenden Künste, í München 1992. Efni og hugmynd renna oft saman í eitt í verkum hennar sem byggja á hugmyndafræðilegum grunni. Lesa meira
 
Félag eldri borgara á ferðalagi

Sex daga skemmtiferð eldri borgara - 11.09.2003 September

Eldri borgarar á Hornafirði eru með þeim alhressustu sem um getur og félagsstarfsemi þeirra er öflug og alltaf næg verkefni að fást við. Í síðustu viku fóru 37 eldri borgarar á Hornafirði í sex daga ferðalag um landið og er það lengsta ferðarlag sem farið hefur verið í á vegum félags þeirra. Meðalaldur ferðafélaganna var 73 ár, sá yngsti 61 ára og elsti var 83 ára. Farið var um austur og norðurland, suður yfir Kjöl og þá leið heim. Lesa meira
 
Barist um boltann

Stórleikir hjá Sindraskvísum - 10.09.2003 September

Nú styttist í að mfl. kvenna hjá Sindra takist á við síðustu áskoranir sumarsins. Tveir leikir gegn Þór/KA/KS sem skera úr um það hvort stelpurnar okkar leiki á meðal þeirra bestu á næsta keppnistímabili. Fyrri leikurinn fer fram á Akureyri n.k. laugardag kl. 17:30 á Þórsvelli og eru stuðningsmenn Sindra á Akureyri hvattir til að mæta og styðja við bakið á stelpunum. Síðari leikurinn verður á Sindravöllum þriðjudaginn 16. september kl. 17:30. Lesa meira
 
Á Lónsheiði

Gönguferð yfir Lónsheiði - 10.09.2003 September

Ferðafélag Hornafjarðar hefur staðið fyrir ferðum um aðra hverja helgi í sumar og hefur þátttaka verið góð. Ferðirnar voru skipulagðar þannig að allir gætu tekið þátt í þeim og hafa þátttakendur í ferðunum verið á öllum aldri, yngstu svo ungir að þeir voru bornir í bakpokum og þeir elstu komnir yfir áttrætt. Enn eru eftir þrjár ferðir á vegum ferðafélagsins á þessu sumri þ.e. gönguferð yfir Lónsheiði, haustlitaferð í Núpstaðaskóg og síðasta ferðin verður í Þjófaholu í Flugustaðadal í Álftafirði. Lesa meira
 
Veðurblíða í september

Hornafjörður í fjórða sæti - 09.09.2003 Fréttir

Sveitarfélagið Hornafjörður fær tæpar 68 miljónir í útgjaldajöfnunarframlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga sem gerir rúmar 29.000 krónur á hvern íbúa sveitarfélagsins. Þau sveitarfélög sem fá hærri upphæð en Hornafjörður eru Skagafjörður með tæpar 96 miljónir, Ísafjarðarbær tæpar 76 miljónir og Borgarbyggð með rúmar 73 miljónir. Framlög úr útgjaldajöfnunarsjóði er aðeins einn hluti af greiðslum úr Jöfnunarsjóði og er tilkomin m.a. vegna skólaaksturs úr dreifbýli, fækkun íbúa o.fl. Lesa meira
 
Gísli og Jón með sláturfé

Sauðfjárslátrun hefst 22.september - 09.09.2003 September

Sauðfjárslátrun hefst í sláturhúsinu á Höfn 22. sept. n.k. á vegum sláturfélagsins Búa. Áætlað er að slátra um 25 þúsund fjár í haust sem er aðeins meira en sl. haust, þá var 23 þúsund fjár slátrað hjá sláturfélaginu. Einar Karlsson sláturhússtjóri segir að lítið komi af fé frá nýjum aðilum þótt slátrun leggist niður á Breiðdalsvík og næsta sláturhús sé á Húsavík. Meirihluti sláturfjár í Öræfum fer í sláturhúsið á Kirkjubæjarklaustri og smávegis af fé úr Vestur sýslunni er slátrað hjá okkur segir Einar. Lesa meira
 
Embla klár í slaginn gegn Frökkum

Hornfirskar landsliðskonur - 08.09.2003 September

Nýjasta stjarnan okkar á knattspyrnuvellinum er Embla S. Grétarsdóttir dóttir Röggu Jóns og Grétars Vilbergs. Hún á að baki 13 landsleiki með yngri landsliðum og var nú á dögum valin í A landsliðið sem leikur við Frakkland í París í dag. Embla gerir gott betur en að vera valin í hópin því nú hefur verið tilkynnt byrjunarlið Íslands og auðvitað er Embla "okkar" í vörninni hjá Íslenska landsliðinu. Embla sem leikur með KR varð Íslandsmeistari með liði sínu á dögunum og í lokaleik deildarinnar sem háður var í Vestmannaeyjum gerði hún sér lítið fyrir og skoraði tvö mörk. Lesa meira
 
Hjördís Þóra formaður Vökuls

Færri á atvinnuleysisskrá en í fyrra - 08.09.2003 September

Í dag eru 29 á atvinnuleysisskrá hér á Hornafirði segir Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir formaður Vökuls stéttarfélags, og fjórir af þeim fara að vinna á mánudag. Það er dálítið rót í skráningunni núna, bæði er fólk að fara í vinnu og svo fara að koma inn þeir sem hafa verið í átaksverkefni hjá bæjarfélaginu. Mun fleira er af kvenfólki en körlum á atvinnuleysisskrá. Hjördís segist ekki hafa orðið vör við að félagsmenn í Vökli hafi skráð sig til vinnu á virkjanasvæðinu fyrir austan. Lesa meira
 
Lundinn í Ingólfshöfða

Um 50 þúsund lundahreiður í Ingólfshöfða - 07.09.2003 Fuglar

Skoðunarferðum í Ingólfshöfða á þessu sumri er að ljúka og voru nokkru fleiri sem fóru í höfðann í sumar en verið hefur. Sigurður Bjarnason bóndi í Hofsnesi hefur veg og vanda að þessum ferðum og þar sem ekki er fært bifreiðum yfir sandinn notar hann dráttarvélar og kerrur til að ferja fólk á milli. Þessi ferðamáti er mjög vinsæll og í sumar hafa um 3500 erlendir ferðamenn að meðtöldum íslenskum fylgdarmönnum farið út í Ingólfshöfða. Íslenskir ferðamenn eru mjög fáir eiginlega ótrúlega fáir segir Sigurður og kennir hann veðurfarinu um, það hefur verið of mikil væta og er þetta alveg öfugt við það sem var í fyrra þá voru þeir íslensku óvenju margir. Lesa meira
 
Þetta er sko ekkert slor!

Hrátt egg í hausinn - 06.09.2003 September

Í gær voru nýnemar í FAS teknir og busaðir og hvar er betra að ganga í gegnum þá raun en upp í Hrossó. Ekki var laust við að óttaglampi væri í augum busanna og þeir sem sýndust mest “cool” voru kannski innst inni hræddastir. Enda aldrei að vita upp á hverju hinir eldri og reyndari nemendur tækju. En allt gekk þetta vel fyrir sig og busarnir fóru létt með þrautirnar. Eitt stykki fiskikar fullt af slori var engin hindrun enda örugglega fátt betra en að sitja á kafi í slori. Hrátt egg í hausinn, ekkert mál. “Hefði verið verra ef þau hefðu verið harðsoðin” eins og einn businn sagði. Lesa meira
 
Hugo hress í dyragættinni

Sópa ekki vandamálum undir teppi - 05.09.2003 Fréttir

“Samskipti í skólum” er yfirskrift námskeiðs sem haldið er þessa dagana á vegum grunnskólanna í Hornafirði og skólaskrifstofunnar. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru sálfræðingarnir Wilhelm Norðfjörð og Hugo Þórisson. Námskeiðið sækja 58 starfsmenn skólanna, kennarar, skólaliðar, stuðningsfulltrúar o.fl. Á námskeiðinu er farið í samskipti starfsmanna annars vegar og samskipti starfsmanna og nemenda hins vegar. Í stuttu spjalli sagði Wilhelm að svona námskeið væru af hinu góða og það góða við samskipti er að þau geta alltaf verið betri. Samskipti á vinnustað þurfa því ekki að vera slæm til þess að réttlæta svona námskeið. Lesa meira
 

Urðu frá að hverfa - 05.09.2003 September

Brúarvinnuflokkur frá Vík sem kominn var að Kotá í Öræfum til að hækka upp brúna varð frá að hverfa vegna þess hvað mikið vatn var í ánni. Jón Bjarnason hjá Vegagerðinni á Höfn sagði að miklir vatnavextir væru í öllum jökulám hér um slóðir bæði vegna úrkomu og hlýinda og ekki útlit fyrir breytingu þar á alveg á næstu dögum. Virkisá í Öræfum flæddi yfir brúna í gær og gera þarf við stöpul undir brúnni að vestan. Lesa meira
 

Engin tilboð bárust - 05.09.2003 September

Áætlað var í haust að grafa rennu gegnum rif á innsiglingunni rétt utan við Hornafjarðarós og var leitað tilboða í verkið. Engin tilboð bárust svo málið er í biðstöðu segir Sigfús Harðarson. Gísli Viggósson hjá Siglingarmálastofnun vildi fá viku frest til að hugsa og athuga málið með sínum mönnum áður en frekari ákvarðanir verða teknar um hvað gert verður. Það sem á að grafa er skurður eða renna gegnum rif í innsiglingunni sem liggur frá Hvanney og austur fyrir Þinganessker. Þetta rif er hindrun fyrir djúprist skip. Lesa meira
 
Þjóðverjar mættir í landsleikinn

Þjóðverjar komnir - 04.09.2003 September

Það er greinilegt að áhugi Þjóðverja á landsleiknum við Ísland á laugardaginn er mikill og þýskar sjónvarpsstöðvar láta ekki sitt eftir liggja til að koma leiknum til skila í Þýskalandi. Fimm fulllestaðir flutningabílar frá Þýskalandi komu til Hornafjarðar í dag og voru þeir með innanborðs tæki og tól til að senda leikinn beint út til Þýskalands. Einn af bílstjórunum í hópnum sagði að þeir hefðu komið með Norrænu í morgun til Seyðisfjarðar og héðan lægi leiðin til Reykjavíkur. Lesa meira
 
Nýsköpunar hetjur Hafnarskóla

Fimm úr Hafnarskóla - Nýsköpunarkeppni grunnskóla - 04.09.2003 Hafnarskóli fréttir

Nú dregur til úrslita í Nýsköpunarkeppni Grunnskólanemenda 2003. Inn komu um 2000 hugmyndir. 52 hugmyndir komust áfram eftir yfirferð matsnefndar og er hugmyndasmiðum þessara hugmynda boðið í vinnusmiðjur. Í vinnusmiðjunum vinna þeir áfram með hugmyndir sínar, gera plaköt, sem sett verða á sýningu, líkön og e.t.v. frumgerðir. Verðlaunanefnd fer síðan yfir hugmyndirnar og fer verðlaunaafhending fram þann 5. október í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli v/Vídalínskirkju, Garðabæ kl. 14.00. 9 hugmyndir fá verðlaun og mun Forseti Íslands afhenda verðlaunin. Lesa meira
 
Nótin tekin um borð í Steinunni SF-10

Gott fiskirí í upphafi nýs kvótaárs - 04.09.2003 September

Hornfjarðarbátar eru farnir að undirbúa veiðar á nýju kvótatímabili. Óvíst er þó hvenær haldið verður til veiða þar sem spáð er leiðinlegu veðri og brælu fram yfir helgi. Sigfús Harðarson á Hafnarvoginni sagði að vel hafi fiskast í öll veiðarfæri og það væri nóg af fiski. Nú styttist í að síldveiðar hefjist og var áhöfnin á Steinunni SF-10 í óða önn að taka nótina um borð í morgun og gera allt klárt fyrir úthaldið. Lesa meira
 
Svona gæti þetta orðið, séð inn Skarðsdal

Jarðgöngin koma - 04.09.2003 September

Nú styttist í að jarðgöng undir Almannaskarð verði boðin út og bíða Hornfirðingar spenntir eftir því að framkvæmdir hefjist. Að sögn Reynis Gunnarssonar hjá vegagerðinni mun útboð fara fram í lok september, byrjun október og verklok eru haustið 2004. Göngin verða tvíbreið og eru 1,2 km á lengd. Í útboðinu er einnig gert ráð fyrir lagningu 4 km aðliggjandi vega. Það styttist því að menn aki undir en ekki yfir Almannaskarð og um leið losnar vegakerfið við erfiðan og hættulegan vegakafla. Lesa meira
 
Hvanneyjarviti mun blikka Rainbow Warrior

Greenpeace til Hornafjarðar - 03.09.2003 September

Greenpeace-menn hafa boðað komu sína hingað til Hornafjarðar þann 17.september segir Sigfús Harðarson hafnsögumaður. Rainbow Warrior flaggskip umhverfissamtaka Greenpeace kom inn á Faxaflóa í morgun og að lokinni heimsókn sinni til Reykjavíkur fer skipið hringferð umhverfis landið. Í þeim höfnum sem komið verður við í munu Greenpeace-menn mótmæla hrefnuveiðum Íslendinga sem núna eru stundaðar í þágu vísinda. Lesa meira
 
Krakkar að leik í blíðunni í dag

Skólamáltíðir í grunnskólunum - 03.09.2003 September

Í vetur hefur verið ákveðið að bjóða upp á skólamáltíðir við Hafnar- og Heppuskóla og munu þá öll börn og unglingar á grunnskólaaldri í Hornafirði eiga kost á að fá heita máltíð eða samlokur í skólum sveitarfélagsins. Í skólunum verður þessi þjónusta boðin fjóra daga vikunnar. Hvort þessi þjónusta sé komin til að vera byggist eflaust á þátttöku foreldra og þátttaka foreldra byggist eflaust á kostnaði máltíðanna. Lesa meira
 
Ásgeir Gunnarsson trillukarl með góða veiði

Trillukarlar af landi brott - 02.09.2003 September

Í upphafi nýs kvótaárs halda Hornfirskir trillukarlar í víking til Danmerkur. Leggja þeir á stað n.k. fimmtudag með spúsur sínar og ætla að heiðra Kaupmannahöfn með nærveru sinni í fimm daga. Það er Hrollaugur smábátafélag Hornafjarðar sem stendur fyrir þessari ferð og er þetta í annað skiptið sem félagið skipuleggur ferð á erlenda grund. Fyrir tveim árum var farið til Edinborgar og tókst sú ferð svo vel að ákveðið var að endurtaka leikinn. Lesa meira
 
Morgunverður hjá fálkanum

Étur allt sem að kjafti kemur - 02.09.2003 Fuglar

Fálkinn sem dvalið hefur á Byggðasafninu í umsjá Björns Arnarsonar er óðum að hressast. Hann er farinn að blaka vængjunum svo auðséð er að skaddaði vængurinn er að lagast og góðar líkur eru á að hægt verði að sleppa honum á næstu vikum. Björn segir að fálkinn sé orðinn mjög gæfur við sig og situr rólegur á hendi hans. Ekki er vandamál að fóðra fálkann því hann étur allt sem honum er gefið svo sem svína- nauta- eða kindakjöt svo ekki sé minnst á nýdauða fugla. Lesa meira
 
Bakaríið í Miðbæ

Nýir eigendur að bakaríinu - 01.09.2003 September

Handsalaður hefur verið kaupsamningur um kaup á Brauðgerð KASK. Hinir nýju eigendur eru hjónin Jón B. Finnsson og Margrét Ingólfsdóttir og munu þau taka við rekstrinum 1. desember n.k. Jón er bakari og hefur stjórnað rekstri Brauðgerðarinnar í mörg ár og þekkir því vel til innanbúðar í fyrirtækinu. Jón sagði að ekki væru ráðgerðar miklar breytingar á starfsmannahaldi og reksturinn yrði á svipuðum nótum og verið hefur þó auðvitað verði alltaf einhverjar breytingar með nýjum eigendum. Lesa meira
 
Villtur og einmanna

Fulmarus glacialis bjargað til sjávar - 01.09.2003 Fuglar

Fyrir stuttu sáu starfsmenn hornafjordur.is út um gluggann hjá sér ráðvilltan fýlsunga/múkka (fulmarus glacialis) sem engan vegin gat bjargað sér til hafs. Múkkinn ráðvillti renndi vonaraugum til þeirra sem framhjá fóru og reiknaði örugglega með því að einhver góðhjörtuð sál mundi hjálpa honum til hafs. Auðvitað brugðust starfmenn hornafjordur.is skjótt við og buðu fuglinum upp á smá bíltúr og óku sem leið lá út í Ósland þar sem fuglinn var frelsinu fegin. Núna er mikið af fugli á leið til sjávar og þeir sem ekki ná fluginu virðast helst vilja spóka sig á vegum landsins og því full þörf á að bílstjórar sýni varkárni. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica