Ríki Vatnajökuls - Ágúst
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Bílvelta á Austurfjörum
      <description>Lítill fólksbíll valt á veginum á Austurfjörum á föstudagskvöldið. Bíllin fór tvær veltur og stöðvaðist á toppnum. Í bílnum voru fjórir ungir menn og aðeins ökumaðurinn hlaut minni háttar skurði sem gert var að á heilsugæslustöðinni. Ökumaður og farþegi í framsæti voru í beltum og er ekki vafi á að beltin hafa bjargað því að ekki fór verr. Að sögn farþega var orsök slyssins of hraður akstur miðað við aðstæður þannig að ökumaður missti stjórn á bílnum.</description>
      <alt>Bílvelta á Austurfjörum</alt>
Sindri silfurlið í 1. deild kvenna
      <description>Í dag léku til úrslita í 1. deild kvenna Sindri og Fjölnir. Leikurinn fór fram á Hvolsvelli við ágætar aðstæður. Hvorugu lið tókst að setja mark í venjulegum leiktíma en þrátt fyrir það þá var leikurinn hin besta skemmtun. Í framlengingu gekk hvorki né rak, fínn bolti, góð skemmtun en engin mörk. Þá var komið að vítaspyrnukeppni og þar voru Fjölnisstelpur sterkari og lauk leiknum 3 – 2. Sindraskvísur eru því silfurlið 1. deildar sem er glæsilegur árangur. Til hamingju stelpur.</description>
Landsbankastjórar heimsækja útibúið á Hornafirði.
      <description>Eins og fram hefur komið hafa miklar breytingar verið gerðar í húsnæði útibús Landsbankans á Hornafirði. Í tilefni þess að þetta gerbreytta afgreiðslupláss er tilbúið og það formlega tekið í notkun bauð Landsbankinn Hornfirðingum að koma í dag  þiggja veitingar og skoða aðstöðuna. Mættir voru á staðinn bankastjórar og stjórnendur Landsbankans og lýstu þeir ánægju sinni yfir hvað vel hafði til tekist með breytingarnar.</description>
Fer bíóið aftur í gang?
      <description>Í vor sem leið hættu einstaklingar sem til nokkurra ára höfðu rekið bíóið í Sindrabæ af miklum dugnaði rekstrinum. Hljótt hefur verið yfir bíóinu síðan en nú hefur sveitarfélagið ákveðið að auglýsa eftir áhugasömu fólki til að taka að sér rekstur bíósins í Sindrabæ. Vonandi verður þess ekki langt að bíða að starfssemin fari aftur í fullan gang og líf og fjör færist á ný í bíósalinn.</description>
Tónleikar í Nýheimum
      <description>Tónleikar verða haldnir á Höfn í Hornafirði sunnudaginn 7. september 2003, kl. 16:00 í Nýheimum. Þar koma fram listamennirnir Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópran, Einar Jóhannesson, klarínettuleikari og Valgerður Andrésdóttir, píanóleikari og flytja þau verk m.a. eftir Atla Heimir Sveinsson, Jón Ásgeirsson, Mozart, Puccini, McCabe og Gershwin.</description>
Fé fennti í kaf við Drápskletta
      <description>Í frétt á hornafjordur.is 28. ágúst er sagt “Nafnið Drápsklettar, mun eftir því sem best er vitað, vera tilkomið af því að hér áður fyrr hafi búfé verið slátrað við klettana.” Ekki mun þetta vera alls kostar rétt því samkvæmt örnefnaritgerð sem Arnbjörg Stefánsdóttir skólastjóra ritaði hefur hún eftir heimildarmönnum að Drápsklettar beri nafn sitt af því að fé fennti þar í kaf. Bestu þakkir fyrir ábendinguna.</description>
Fullt af fiski í firðinum
      <description>Það eru miklar breytingar í lífríkinu hér í Hornafirðinum á þessu ári segir Karl Sigurðsson (Kalli á Móhól) sem manna best þekkir til í firðinum. Það er fullt af fiski innan við ósinn, þar er t.d. ufsi sem ekki hefur sést hér árum saman, skrápkoli er farinn að koma í netin sem var algengur hér áður fyrr en hefur ekki sést undanfarin ár. Sama er að segja um lúruna það er orðið mikið af henni. Kalli segir að mikið meira af sjóbirtingi hafi gengið inn í fjörðinn í sumar en verið hefur og er þetta greinilega fiskur í uppvexti og það lofar góðu fyrir framtíðina.</description>
Hundrað kíló á fjórum dögum.
      <description>Heimir Þór Gíslason notaði veðurblíðuna í dag til að þurrka fjallagrösin sem hann týndi í sumar. Heimir fékk hundrað kg. af fjallagrösum á fjórum dögum þegar hann skrapp á grasafjall fyrr í sumar. Á leiðinni austur tók hann upp í bílinn göngu-ferðamann  frá Tékklandi og þegar Tékkinn fékk að vita hvert Heimir væri að fara vildi hann endilega fara með á grasafjall .Leyfið fékk hann og var í tvo daga í grasatýnslu og fannst það ævintýri líkast að vera inn á Möðrudalsöræfum að týna fjallagrös</description>
Sporthöllin, ný líkamsræktarstöð á Hornafirði
      <description>Mánudaginn 1. september verður opnuð ný og glæsileg líkamsræktarstöð sem er til húsa að Álaugarveg 7. Það er Svafa Mjöll Jónasar sem stendur í þessari stórframkvæmd ásamt fjölskyldu sinni. Sporthöllin er í 400 fermetra húsnæði sem allt er nýuppgert og öll aðstaða eins og best verður á kosið. Öll tæki í Sporthöllinni eru ný og fór Svafa Mjöll til Þýskalandi og valdi tækin en Fitness Sport flutti þau inn.</description>
Drápsklettaskógur eða Hafnarskógur?
      <description>Búið er að endurreisa og koma aftur á stað starfsemi Skógræktarfélags Austur-Skaftafellssýslu og búið að kjósa nýja stjórn í félaginu.  Næg verkefni eru framundan og er útivistarsvæði við Drápskletta þar efst á lista. Skógræktarfélagið er með tvö skógræktarsvæði til umráða, annað er í Haukafelli sem er í eigu félagsins, hitt er nýtt 25 hektara svæði við Drápskletta rétt austan við tjaldstæðið á Höfn. Það svæði leggur sveitarfélagið til í verkefni sem kallast landgræðsluskógar.</description>
Uppskera vel yfir meðallagi.
      <description>Mjög vel lítur út með kartöfluuppskeru í Hornafirði í haust þrátt fyrir mikla vætutíð. Farið verður að taka upp úr görðum um og upp úr næstu mánaðarmótum. Nokkuð er síðan þau Hjalti og Birna kartöflubændur á Seljavöllum, sem eru með stærstu kartöfluframleiðendum í sýslunni, fóru að taka upp kartöflur og senda á markað. Vegna þess hvað voraði vel var snemma búið að setja niður í garða og nýjar kartöflur frá Seljavöllum voru komnar í búðir viku fyrr en í fyrra.</description>
Er 3. deild karla merkilegri en 1. deild kvenna?
      <description>Núna eru liðnir góðir 16 tímar frá því að ljóst varð hvaða lið keppa til úrslita í 1. deild kvenna. Spennan magnast og krefjandi verkefni bíður tveggja góðra liða n.k. laugardag. Stelpurnar í Sindra og Fjölni hafa lagt mikið á sig til að komast þangað sem þær eru komnar og bæði lið vilja hampa Íslandsmeistaratitlinum í 1. deild og um leið fá öruggt sæti í úrvalsdeild kvenna næsta ár. En þó leikmönnum sem og stuðningsmönnum liðanna þyki þetta frábær árangur þá á það sama ekki við um íþróttafréttaritara stærstu netmiðlanna.</description>
Komnar í úrslitaleikinn
      <description>Mfl. kvenna hjá Sindra náði þeim stórkostlega áfanga í dag að komast í úrslitaleik 1. deildar. “Skaðræðiskvendin” hjá Sindra lögðu RKV að velli 3 - 1.  Leikurinn var góð skemmtun fyrir þá fjölmörgu áhorfendur sem lögðu leið sína á völlinn. Guðný Guðleif Einarsdóttir skoraði fyrsta markið og Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir skoraði síðan tvö mörk. Með sigrinum þokast stelpurnar skrefi nær úrvalsdeildinni en nú bíður þeirra úrslitaleikurinn í 1. deild kvenna sem verður gegn Fjölni Grafarvogi n.k. laugardag kl. 14:00.</description>
Landað 5 tonnum af sandkola!
      <description>Nú fer nýtt kvótaár að ganga í garð og Fiskistofa búin að gefa út úthlutun aflaheimilda. Hornafjörður fær í sinn hlut 4,1% af úthlutuðu aflamarki eða 15.250 tonn. Í kvóta úthlutun er  Skinney-Þinganes í 10. sæti á landsvísu og fær í sinn hlut 9.920 þorskígildistonn sem er 2,6% af heildinni. Í útgefnum aflatölum Fiskistofu kemur fram að á Hornafirði var landað 33.965 tonnum fyrstu sjö mánuði ársins en á sama tíma árið 2002 var aflinn 41.200 tonn. Mestu munar um loðnuna, en árið 2002 var aflinn á þessu tímabili 30.652 t. en 20.268 t. árið 2003.</description>
Skaðræðiskvendin klárar í slaginn
      <description>Í dag kl. 18:00 taka “Skaðræðiskvendin” í mfl. Sindra á móti liði RKV í seinni leik liðanna í úrslitakeppni 1. deildar kvenna á Sindravöllum. Fyrri leiknum lauk með 1 – 1 jafntefli í Sandgerði og því dugir okkar stelpum markalaust jafntefli til að komast í úrslitabaráttuna um laust sæti í úrvalsdeildinni. Þó svo að 0 – 0 jafntefli dugi þá munu “Skaðræðiskvendin” örugglega leika til sigurs í þessum mikilvæga leik enda ekki gæfulegt að liggja til baka og reyna að halda svo naumu forskoti.</description>
Erlendir aukýfingar á Hornafirði.
      <description>Þota af gerðinni Falkon 90 kom til Hornafjarðar sl. laugardag og var þar til kvölds. Þar voru á ferð 10 erlendir auðkýfingar sem fengu leigðan bíl hjá Guðbrandi Jóhannssyni til að fara upp á jökul og suður að Jökulsárlóni þar sem farið var í siglingu um lónið. Íslenskur fararstjóri var með hópnum. Veður var eins og best var á kosið og var ferðin mjög góð auglýsing fyrir Hornfirska náttúrufegurð. Þetta er önnur Falkon þotan sem kemur til Hornafjarðar í sumar.</description>
Stóð á bekk við skólasetningu
      <description>Í dag voru skólarnir í Hornafirði settir og flykktust nemendur og foreldrar í skólana í blíðskapar veðri, sólskini og 16 stiga hita. Vegna blíðunnar góðu var t.d. Nesjaskóli settur utandyra og steig Þorvaldur skólastjóri upp á bekk á lóðinni og sýndi jafnvægislistir um leið og hann bauð nemendur velkomna. Í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu var slegið upp grillveislu fyrir utan skólann í hádeginu og var mikil ánægja hjá nemendum sem og kennurum með veisluna.</description>
Landsbankinn opnar eftir breytingar
      <description>Miklar breytingar hafa verið gerðar á húsnæði Landsbanki Íslands á Hornafirði, eldri hluti hússins hefur verið seldur en gagngerar breytingar hafa verið unnar á þeim hluta sem afgreiðsla bankans verður í. Skipt hefur verið um allar innréttingar, tæki öll endurnýjuð og  húsnæðið allt verið tekið í gegn og kemur þessi breyting mjög vel út. Þrátt fyrir að húsnæði bankans minnki þá mun þjónustan sem hann veitir Hornfirðingum ekki skerðast og í raun er verið að svara kröfum og þörfum nútímans í bankaþjónustu með þessum breytingum. Eins og áður mun verða kappkostað að veita góða og persónulega þjónustu innan veggja bankans.</description>
Lengsta höggið lenti heima í garði
      <description>Í sumarblíðu um helgina fór fram hið árlega Hótel Hafnar golfmót og var þar m.a. keppt í því hver gat skotið lengst og var það Ásta Birna Magnúsdóttir frá Glofklúbbi Djúpavogs sem skaut lengst kvenna en Halldór Sævar Birgisson skaut lengst karla. Þess má geta að Héðinn Sigurðsson sló lengsta höggið og lenti kúlan í garðinum heima hjá honum sem er við golfvöllinn en það telst ekki með þar sem boltinn lenti utan vallar.</description>
Skólasetning í Öræfum og Suðursveit
      <description>Mánudaginn 25. ágúst verða grunnskólarnir að Hrollaugsstöðum í Suðursveit og Hofgarði í Öræfum settir. Í Öræfum verða nemendur 12 sem er sami fjöldi og á síðasta skólaári. Kennarar eru fjórir og að auki tveir starfsmenn sem sjá um eldhús og þrif. Leikskóli er einnig rekin í Hofgarði og verða líklega um tíu börn í leikskólanum og tveir starfsmenn.</description>
Fallnir í 3. deild
      <description>Í dag áttust við í 2. deild karla Sindri og ÍR og var leikurinn í Reykjavík. Okkar menn urðu að vinna þennan leik til að halda í vonina um að halda sér í 2. deild. Ekki gekk sú von eftir og lauk leiknum með sigri ÍR 3-2. Það er því ljóst að á næsta ári leikur Sindri í 3. deild, svo skemmtilegt sem það nú er. Ekki skulu menn samt örvænta heldur taka höndum saman og byrja strax að undirbúa baráttuna til að endurheimta sæti í 2. deild.</description>
Mikael ehf að ljúka brúarframkvæmdum í Ólafsfirði.
      <description>Hornfirska verktakafyrirtækið Mikael ehf er að leggja síðustu hönd á brúarsmíði yfir Ólafsfjarðar ós. Brúin yfir Ósinn  40 m. löng  og kostar 32 milljónir kr.  Gunnar Gunnlaugsson einn eiganda Mikaels sagði að verkið hefði gengið vel, þetta væri svona arkitekta brú og dálítið falleg. Brúin kemur að góðu gagni þegar farið verður að grafa göngin til Siglufjarðar og vegasamband kemst á í gegnum þau.</description>
Skólasetning hjá FAS á mánudaginn
      <description>Nú styttist í að framhaldsskólanemar setjist á skólabekk og verður Framhaldskólinn í Austur-Skaftafellssýslu settur mánudaginn 25. ágúst kl. 8:00 og hefst kennsla sama dag kl. 10:00. Þetta er í 17 skipti sem skólinn er settur og eru skráðir nemendur í dagskóla 90 en síðan er töluverður fjöldi sem stundar fjarnám við skólann. Þokkalega hefur gengið að ráða í stöður við skólann en alls starfa 8 kennarar og 4 stundakennarar við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu.</description>
Lengd viðvera fyrir yngstu nemendurna
      <description>Á komandi skólaári mun verða boðið upp á lengda viðveru hjá börnum í 1. - 4. bekk grunnskólanna á Hornafirði. Sveitarfélagið ákvað að bjóða upp á þessa auknu þjónustu til að koma á móts við óskir foreldra. Fyrsta skóladaginn koma börnin í fylgd foreldra en síðan mun börnum úr Nesjaskóla verða ekið með skólarútunni í Hafnarskóla.</description>
Brúin á Kotá í hættu
      <description>Mikill vöxtur og aurframburður hefur verið í Kotá í Öræfum undanfarið og hefur áin flætt yfir brúna þegar verst hefur látið. Brúin hefur alveg farið í kaf og er í hættu segir Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni. Það er unnið við að moka og moka efni úr ánni nótt og dag og gengur ekki vel að ráða við þennan mikla framburð af grjóti og möl. Það hefur verið mikið í öllum jökulám hér suðaustan-lands vegna hlýindanna og það hafa komið smá hlaup í Kotá. Það eru Hjarðarnesbræður (Rósaberg ehf) sem hafa verið við moksturinn upp úr Kotá</description>
Nýr sérkennslufulltrúi
      <description>Ragnheiður Jóhannsdóttir hefur verið ráðin sérkennslufulltrúi í stað Ragnhildar Jónsdóttur. Ragnheiður er uppalin á Sauðárkrók en kemur til Hornafjarðar frá Borgarnesi þar sem hún átti heima og starfaði í 22 ár. Í Borgarnesi starfaði hún við kennslu og sérkennslu við grunnskólann í 12 ár og kennsluráðgjöf hjá Fræðsluskrifstofu Vesturlands í 10 ár. Ragnheiður gekk í Samvinnuskólann á Bifröst og varð síðan stúdent frá Samvinnuskólanum í Reykjavík. Kennarapróf tók hún frá KHÍ 1981 og sérkennarapróf frá sama skóla árið 2003.</description>
Eitt best geymda leyndarmálið rétt við bæjardyrnar
      <description>Hverjum hefði dottið í hug að Laxá í Nesjum yrði ein af vinsælustu laxveiðiám landsins, Undanfarin ár hefur verið sleppt um 5-9 þúsund seiðum í ána og er sú slepping að skila sér. Í fyrra veiddust þar 135 laxar og þar af töluvert af stórlaxi. Í dag hafa 40 laxar verið dregnir á land og er algengt að þeir séu um 10 pund. Veiðitímabilið í Laxá stendur frá 1. júlí - 30. september er því aðeins búinn 1/3 af tímabilinu og besti tíminn framundan enda mikill lax í ánni.</description>
Lyfti 60 tonnum!
      <description>Allt er í fullum gangi við að skipa út tækjum og tólum úr bræðslunni í Óslandi sem fara eiga í bræðsluna í Grindavík. Flutningaskipið sem flytur tækin til Grindavíkur mun síðan koma til baka með gömlu tækin úr bræðslunni í Sandgerði. Fjöldi manns hefur unnið að því að koma tækjunum í skip ásamt öflugum vélakosti. Stærsta tækið sem híft var um borð er þurkarinn, en hann vegur hvorki meira né minna en 60 tonn.</description>
Góð rifsberjaspretta í Hornafirði en minna um krækiber
      <description>Nú er sá tíma að fólk fer að huga að berjatínslu, taka til krukkur og krúsir sem safnað hefur verið undir berjasultu og hlaup.  Það er að frétta úr Suðursveit að þar sé lítið af bláberjum og krækiberjum og þau séu á mjög takmörkuðu svæði en samkvæmt upplýsingum frá Fjölni bóndi á Hala þá segir hann að en þau sem finnast séu vel þroskuð.</description>
Endurbætur á Heppuskóla
      <description>Þó nokkrar endurbætur hafa verið gerðar á húsnæði Heppuskóla sem fagnaði 30 ára afmæli á þessu ári. Þar er helst til að telja að í setustofu nemenda hafa verið brotnir niður veggir og aðstaðan öll því opnari og skemmtilegri. Kennslustofur hafa verið stækkaðar og kemur það bæði nemendum sem og kennurum til góða, meira pláss betri líðan!</description>