Bílvelta á Austurfjörum
Öruggur akstur
Lítill fólksbíll valt á veginum á Austurfjörum á föstudagskvöldið. Bíllinn fór tvær veltur og stöðvaðist á toppnum. Í bílnum voru fjórir ungir menn og aðeins ökumaðurinn hlaut minni háttar skurði sem gert var að á heilsugæslustöðinni. Ökumaður og farþegi í framsæti voru í beltum og er ekki vafi á að beltin hafa bjargað því að ekki fór verr. Að sögn farþega var orsök slyssins of hraður akstur miðað við aðstæður þannig að ökumaður missti stjórn á bílnum.
Ungi maðurinn sem talað var við sagðist ekki alltaf hafa notað bílbelti þegar hann væri í bíl en eftir þetta ætlar hann pottþétt að spenna beltið áður en ekið er af stað.
Bíllinn er ónýtur.
Ungir ökumenn ættu alltaf að hafa það í huga að það er meira ,,töff” að vera góður og öruggur ökumaður en láta sýndarmennskuna ráða ferðinni.





Skrifa athugasemd