Ágúst
Þær eru samt lang flottastar
Þær eru samt lang flottastar
Þær eru samt lang flottastar

30.08.2003 Ágúst

Sindri silfurlið í 1. deild kvenna

Í dag léku til úrslita í 1. deild kvenna Sindri og Fjölnir. Leikurinn fór fram á Hvolsvelli við ágætar aðstæður. Hvorugu lið tókst að setja mark í venjulegum leiktíma en þrátt fyrir það þá var leikurinn hin besta skemmtun. Í framlengingu gekk hvorki né rak, fínn bolti, góð skemmtun en engin mörk. Þá var komið að vítaspyrnukeppni og þar voru Fjölnisstelpur sterkari og lauk leiknum 3 – 2. Sindraskvísur eru því silfurlið 1. deildar sem er glæsilegur árangur. Til hamingju stelpur.

Ekki er leiktímabilinu hjá stelpunum lokið og enn er von um úrvalsdeildarsæti. Núna taka við tveir leikir gegn liðinu sem endar í 7. sæti úrvalsdeildar og verður það annað hvort FH eða Þór/KA/KS/. Leikið verður heima og heiman og fyrri leikurinn sem er útileikur Sindra er settur á laugardaginn 13. september. Seinni leikurinn verður síðan þriðjudaginn 16. september á Hornafirði. Það má síðan bæta því við að Sindri tapaði 2 - 3 fyrir Völsungi í 2. deild karla í dag á Sindravöllum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica