Landsbankastjórar heimsækja útibúið á Hornafirði.
Eins og fram hefur komið hafa miklar breytingar verið gerðar í húsnæði útibús Landsbankans á Hornafirði. Í tilefni þess að þetta gerbreytta afgreiðslupláss er tilbúið og það formlega tekið í notkun bauð Landsbankinn Hornfirðingum að koma í dag þiggja veitingar og skoða aðstöðuna. Mættir voru á staðinn bankastjórar og stjórnendur Landsbankans og lýstu þeir ánægju sinni yfir hvað vel hafði til tekist með breytingarnar.
Jóna Ingólfsdóttir bankastjóri útibúsins bauð gesti velkomna og lýsti ánægju sinni og starfsfólksins með miklar og jákvæðar breytingar. Kjartan Gunnarsson flutti starfsfólki og gestum kveðju Björgólfs Guðmundssonar og bankaráðs en Björgólfur komst ekki austur vegna anna.
Við í Landsbankanum erum ákaflega ánægð með þetta útibú sem hefur gengið vel og þær breytingar sem hér hafa átt sér stað eru af hinu góða og munu styrkja útibúið sagði Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri. Í vændum er þó ekki sé formlega búið að ákveða það, endurskipulagning við útibúin, minnka svæðin ef svo má að orði komast en þetta útibú hefur ásamt fleirum heyrt undir Selfoss. Við eigum frekar von á að þetta verði sérstakt útibú og heyri beint undir höfuðstöðvarnar og verður það væntanlega í haust. Landsbankastjórnendur heimsóttu Skinney Þinganes í dag og sáu hvað þar var í gangi og sagði Sigurjón að búið væri að bjóða þeim að koma aftur þegar síldarvertiðin væri byrjuð.





Skrifa athugasemd