Ágúst
Fer bíóið aftur í gang?
Í vor sem leið hættu einstaklingar sem til nokkurra ára höfðu rekið bíóið í Sindrabæ af miklum dugnaði rekstrinum. Hljótt hefur verið yfir bíóinu síðan en nú hefur sveitarfélagið ákveðið að auglýsa eftir áhugasömu fólki til að taka að sér rekstur bíósins í Sindrabæ. Vonandi verður þess ekki langt að bíða að starfssemin fari aftur í fullan gang og líf og fjör færist á ný í bíósalinn.
Það er eflaust ekki auðvelt að reka bíó af þessari stærðargráðu í hinni hörðu samkeppni sem ríkir á afþreyingarmarkaðnum. En með dugnaði, jákvæðu hugarfari og mörgum bíógestum má framkvæma ótrúlega hluti.





Skrifa athugasemd