Ágúst
Fé fennti í kaf við Drápskletta
Í frétt á hornafjordur.is 28. ágúst er sagt “Nafnið Drápsklettar, mun eftir því sem best er vitað, vera tilkomið af því að hér áður fyrr hafi búfé verið slátrað við klettana.” Ekki mun þetta vera alls kostar rétt því samkvæmt örnefnaritgerð sem Arnbjörg Stefánsdóttir skólastjóra ritaði hefur hún eftir heimildarmönnum að Drápsklettar beri nafn sitt af því að fé fennti þar í kaf. Bestu þakkir fyrir ábendinguna.
Í dag er lítil hætta á að fé fenni í kaf við Drápskletta því eins og áður hefur komið fram er svæðið komið undir yfirráð Skógræktarfélags Austur-Skaftafellssýslu og vel girt fjárheldri girðingu.





Skrifa athugasemd