Ágúst
Gunnar Hermannsson notar frídaginn til að leggja silungsnet
Gunnar Hermannsson notar frídaginn til að leggja silungsnet

29.08.2003 Ágúst

Fullt af fiski í firðinum

Það eru miklar breytingar í lífríkinu hér í Hornafirðinum á þessu ári segir Karl Sigurðsson (Kalli á Móhól) sem manna best þekkir til í firðinum. Það er fullt af fiski innan við ósinn, þar er t.d. ufsi sem ekki hefur sést hér árum saman, skrápkoli er farinn að koma í netin sem var algengur hér áður fyrr en hefur ekki sést undanfarin ár. Sama er að segja um lúruna það er orðið mikið af henni. Kalli segir að mikið meira af sjóbirtingi hafi gengið inn í fjörðinn í sumar en verið hefur og er þetta greinilega fiskur í uppvexti og það lofar góðu fyrir framtíðina.

Eitthvað er af laxi í firðinum en það má ekki veiða hann. Veiðitími í firðinum er venjulega frá miðjum júní til ágústloka. Kalli segir að það sé orðið alltof mikið af sel í firðinum “hann veður uppi og fer inn um allan fjörð og eyðileggur silungsnetin” kóparnir fylgjast vel með þegar verið er að vitja um silungsnetin og segir Kalli að þeir séu mjög gæfir og haldi sig oft rétt við bátinn. Hver veit nema hægt verði í framtíðinni að fara með ferðamenn í selaskoðunarferðir um fjörðinn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica