Sporthöllin, ný líkamsræktarstöð á Hornafirði
Mánudaginn 1. september verður opnuð ný og glæsileg líkamsræktarstöð sem er til húsa að Álaugarveg 7. Það er Svafa Mjöll Jónasar sem stendur í þessari stórframkvæmd ásamt fjölskyldu sinni. Sporthöllin er í 400 fermetra húsnæði sem allt er nýuppgert og öll aðstaða eins og best verður á kosið. Öll tæki í Sporthöllinni eru ný og fór Svafa Mjöll til Þýskalandi og valdi tækin en Fitness Sport flutti þau inn.
Á laugardaginn verður opið hús í Sporthöllinni milli kl. 13 og 17 og þá geta Hornfirðingar komið og skoðað aðstöðuna. Starfsemin fer svo í fullan gang á mánudaginn kl. 6:30. Opið verður virka daga kl. 6:30 ? 21:30, laugardaga kl. 9:00 ? 15:00 en á sunnudögum verður lokað.





Skrifa athugasemd