Ágúst
Birna, Halldóra og Christína á Seljavöllum
Birna, Halldóra og Christína á Seljavöllum

27.08.2003 Ágúst

Uppskera vel yfir meðallagi.

Mjög vel lítur út með kartöfluuppskeru í Hornafirði í haust þrátt fyrir mikla vætutíð. Farið verður að taka upp úr görðum um og upp úr næstu mánaðarmótum. Nokkuð er síðan þau Hjalti og Birna kartöflubændur á Seljavöllum, sem eru með stærstu kartöfluframleiðendum í sýslunni, fóru að taka upp kartöflur og senda á markað. Vegna þess hvað voraði vel var snemma búið að setja niður í garða og nýjar kartöflur frá Seljavöllum voru komnar í búðir viku fyrr en í fyrra.

Eftir að við fórum að hafa plast yfir kartöflugörðunum munar þrem vikum á hvað hægt er að taka fyrr upp og þá eru nýjar kartöflur komnar í sölu seinni part sumars segir Hjalti.
Uppskeran hjá okkur á haustin hefur verið um 300 tonn brúttó og við erum með þessar algengustu tegundir þ.e. Gullauga sem mest er af og svo svipað magn af Helgu, Rauðum Íslenskum og Premíer. Premían nýtur vaxandi vinsælda því hún er mjög góð til bökunar og vinnslu og það er orðin mikil eftirspurn eftir henni. Birna sagði að salan á forsoðnum kartöflum sem þau komu með á markaðinn fyrir nokkru gengi mjög vel. Tegundirnar sem við erum með eru forsoðnar kartöflur í neytendaumbúðum, bökunarkartöflur og grill-og kryddaðar kartöflur. Öll uppskera frá því í fyrra var uppseld í byrjun júní. Nánasta allar kartöflur frá Seljavöllum fara í stórmarkaðina í Reykjavík.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica