Ágúst
Þær eru samt lang flottastar
Þær eru samt lang flottastar
Þær eru samt lang flottastar

27.08.2003 Ágúst

Er 3. deild karla merkilegri en 1. deild kvenna?

Núna eru liðnir góðir 16 tímar frá því að ljóst varð hvaða lið keppa til úrslita í 1. deild kvenna. Spennan magnast og krefjandi verkefni bíður tveggja góðra liða n.k. laugardag. Stelpurnar í Sindra og Fjölni hafa lagt mikið á sig til að komast þangað sem þær eru komnar og bæði lið vilja hampa Íslandsmeistaratitlinum í 1. deild og um leið fá öruggt sæti í úrvalsdeild kvenna næsta ár. En þó leikmönnum sem og stuðningsmönnum liðanna þyki þetta frábær árangur þá á það sama ekki við um íþróttafréttaritara stærstu netmiðlanna.

Hvergi finnst stafkrókur um úrslitakeppni 1. deildar kvenna en á sama tíma hafa þeir flestir fjallað ágætlega um 8 liða úrslit í 3. deild karla sem fram fóru á sama tíma. Spurning er hvort það sé minni frétt að að spila til úrslita í 1. deild kvenna en að komast í fjögurra liða úrslit 3. deildar karla. Og þar sem flestir íþróttafréttaritara eru karlmenn þá gæti verið gott fyrir þá að geta gumað sig af því hversu vel þeir hefðu fjallað um kvennaknattspyrnuna! Menn hafa verið slegnir til riddara fyrir minna.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica