Ágúst
Hverjar eru bestar
Hverjar eru bestar

26.08.2003 Ágúst

Komnar í úrslitaleikinn

Mfl. kvenna hjá Sindra náði þeim stórkostlega áfanga í dag að komast í úrslitaleik 1. deildar. “Skaðræðiskvendin” hjá Sindra lögðu RKV að velli 3 - 1. Leikurinn var góð skemmtun fyrir þá fjölmörgu áhorfendur sem lögðu leið sína á völlinn. Guðný Guðleif Einarsdóttir skoraði fyrsta markið og Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir skoraði síðan tvö mörk. Með sigrinum þokast stelpurnar skrefi nær úrvalsdeildinni en nú bíður þeirra úrslitaleikurinn í 1. deild kvenna sem verður gegn Fjölni Grafarvogi n.k. laugardag kl. 14:00.

Hvar sá leikur verður leikinn er ekki ljóst enn þá en ef tekið er tillit til landfræðilegrar legu liðanna þá ætti sá leikur að fara fram í Vík í Mýrdal. Til hamingju stelpur þið stóðuð ykkur frábærlega. Núna er bara að klára úrslitaleikinn með stæl.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica