Ágúst
Til alls líklegar
Til alls líklegar

26.08.2003 Ágúst

Skaðræðiskvendin klárar í slaginn

Í dag kl. 18:00 taka “Skaðræðiskvendin” í mfl. Sindra á móti liði RKV í seinni leik liðanna í úrslitakeppni 1. deildar kvenna á Sindravöllum. Fyrri leiknum lauk með 1 – 1 jafntefli í Sandgerði og því dugir okkar stelpum markalaust jafntefli til að komast í úrslitabaráttuna um laust sæti í úrvalsdeildinni. Þó svo að 0 – 0 jafntefli dugi þá munu “Skaðræðiskvendin” örugglega leika til sigurs í þessum mikilvæga leik enda ekki gæfulegt að liggja til baka og reyna að halda svo naumu forskoti. Nú ríður á að bæjarbúar fjölmenni á völlinn og styðji duglega við bakið á stelpunum OKKAR. Öskrum “Skaðræðiskvendin” í úrslitaleikinn. Stuðningsmenn Sindra ætla að mæta á Kaffi Hornið kl. 17:00. og hita aðeins upp fyrir leikinn. Áfram Sindri

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica