Ágúst
Stóð á bekk við skólasetningu
Í dag voru skólarnir í Hornafirði settir og flykktust nemendur og foreldrar í skólana í blíðskapar veðri, sólskini og 16 stiga hita. Vegna blíðunnar góðu var t.d. Nesjaskóli settur utandyra og steig Þorvaldur skólastjóri upp á bekk á lóðinni og sýndi jafnvægislistir um leið og hann bauð nemendur velkomna. Í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu var slegið upp grillveislu fyrir utan skólann í hádeginu og var mikil ánægja hjá nemendum sem og kennurum með veisluna.
Um 530 nemendur stunda nám á öllum skólastigum í sveitarfélaginu en þá eru ekki meðtaldir nemendur sem stunda fjarnám við hina ýmsu skóla landsins.





Skrifa athugasemd