Ágúst
Árni og Gunna Steina, hress að vanda
Árni og Gunna Steina, hress að vanda

25.08.2003 Ágúst

Landsbankinn opnar eftir breytingar

Miklar breytingar hafa verið gerðar á húsnæði Landsbanki Íslands á Hornafirði, eldri hluti hússins hefur verið seldur en gagngerar breytingar hafa verið unnar á þeim hluta sem afgreiðsla bankans verður í. Skipt hefur verið um allar innréttingar, tæki öll endurnýjuð og húsnæðið allt verið tekið í gegn og kemur þessi breyting mjög vel út. Þrátt fyrir að húsnæði bankans minnki þá mun þjónustan sem hann veitir Hornfirðingum ekki skerðast og í raun er verið að svara kröfum og þörfum nútímans í bankaþjónustu með þessum breytingum. Eins og áður mun verða kappkostað að veita góða og persónulega þjónustu innan veggja bankans.

Þess má einnig geta að á næstunni verður settur upp nýr og fullkominn hraðbanki frá Landsbanka Íslands í Miðbæ. Skrifstofa VÍS mun fyrst um sinn verða til húsa í bankanum eins og verið hefur. Í tilefni af breytingunum mun bankinn og starfsfólk hans bjóða gestum og gangandi upp á kaffi og meðlæti í dag.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica