Lengsta höggið lenti heima í garði
Í sumarblíðu um helgina fór fram hið árlega Hótel Hafnar golfmót og var þar m.a. keppt í því hver gat skotið lengst og var það Ásta Birna Magnúsdóttir frá Glofklúbbi Djúpavogs sem skaut lengst kvenna en Halldór Sævar Birgisson skaut lengst karla. Þess má geta að Héðinn Sigurðsson sló lengsta höggið og lenti kúlan í garðinum heima hjá honum sem er við golfvöllinn en það telst ekki með þar sem boltinn lenti utan vallar.
Veitt voru verðlaun fyrir næst holu fyrri daginn á 3 braut, þar fór Gísli Agnar Bjarnason frá Golfklúbb Fljótsdalshéraðs holu í höggi og kemst á spjöld sögunnar en því fylgir aðild að klúbb Einherja sem er klúbbur þeirra á Íslandi sem hafa farið holu í höggi á golfmótum. Mótið var vel sótt og kepptu 45 manns á mótinu og var þetta 22. árið í röð sem Stöðfirðingar taka þátt í mótinu en austfirðingar hafa verið mjög duglegir að sækja þetta árlega golfmót. Á laugardagskvöldinu var slegið upp grillveislu og þótti hún vel heppnuð ekki bara góður matur heldur skartaði veðrið sínu fegursta. Á mótinu var keppt um besta höggskor í kvenna- karla- og unglingaflokkum, sex efstu í punktakeppni og urðu úrslitin eftirfarandi:
Punktakeppni Samtals
1 Guðni Rúnar Jónsson Golfklúbbur Hornafjarðar 76 punktar
2 Helgi Örn Kristinsson Golfklúbbur Hornafjarðar 72 punktar
3 Ragnar Ólafsson, Golfklúbbur Siglufjarðar, 71 punktar
4 Gunnar Auðunn Jóhannsson, Golfklúbbur Hornafjarðar 68 punktar
5 Kristinn Þór Ingvarsson, Golfklúbbur Norðfjarðar, 68 punktar
6 Jón Ingvar Axelsson Golfklúbbur Hornafjarðar 67 punktar
Konur (besta höggaskor)
1 Helga Gunnarsdóttir, Golfklúbburinn Keilir, 179 högg
2 Guðný Helgadóttir, Golfklúbbur Hornafjarðar, 213 högg
3 Guðrún Ester Þorsteinsdóttir, Golfklúbbur Hornafjarðar, 220 högg
Karlar (besta höggaskor)
1 Halldór Birgisson, Golfklúbbur Hornafjarðar, 142 högg
2 Ragnar Ólafsson Golfklúbbur Siglufjarðar, 149 högg
3 Guðmundur Borgar Baldursson, Golfklúbburinn Keilir, 150 högg
Unglingar (besta höggaskor)
1 Ólafur Ingi Guðmundsson, Golfklúbbur Hornafjarðar, 156 högg
2 Guðni Rúnar Jónsson Golfklúbbur Hornafjarðar, 162 högg
2 Ásta Birna Magnúsdóttir, Golfklúbbur Djúpavogs, 156 högg





Skrifa athugasemd