Ágúst
Hofgarður Öræfum
Hofgarður í Öræfum
Hofgarður í Öræfum

24.08.2003 Ágúst

Skólasetning í Öræfum og Suðursveit

Mánudaginn 25. ágúst verða grunnskólarnir að Hrollaugsstöðum í Suðursveit og Hofgarði í Öræfum settir. Í Öræfum verða nemendur 12 sem er sami fjöldi og á síðasta skólaári. Kennarar eru fjórir og að auki tveir starfsmenn sem sjá um eldhús og þrif. Leikskóli er einnig rekin í Hofgarði og verða líklega um tíu börn í leikskólanum og tveir starfsmenn. Í Hrollaugsstaðaskóla verða 9 nemendur á aldrinum 6 – 12 ára og er það sami fjöldi og á síðasta skólaári. Starfsmenn við skólann eru þrír, skólastjóri, aðstoðarmaður og matráðskona sem sér einnig um ræstingu í húsakynnum skólans.

Fyrstu vikuna verða nemendur Hrollaugsstaðaskóla að bjástra úti við ef veður leyfir, skoða plöntur, fara í berjamó og njóta útiveru.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica