Skólasetning hjá FAS á mánudaginn
Nú styttist í að framhaldsskólanemar setjist á skólabekk og verður Framhaldskólinn í Austur-Skaftafellssýslu settur mánudaginn 25. ágúst kl. 8:00 og hefst kennsla sama dag kl. 10:00. Þetta er í 17 skipti sem skólinn er settur og eru skráðir nemendur í dagskóla 90 en síðan er töluverður fjöldi sem stundar fjarnám við skólann. Þokkalega hefur gengið að ráða í stöður við skólann en alls starfa 8 kennarar og 4 stundakennarar við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu.
Í vetur býður skólinn m.a. upp á 30 tonna skipstjórnarnám (pungapróf) í fjarnámi og er töluverð ásókn í það nám. Hægt er að finna allar upplýsingar um skipstjórnarnámið svo og aðrar upplýsingar um skólann á heimasíðu hans, fas.is





Skrifa athugasemd