Brúin á Kotá í hættu
Mikill vöxtur og aurframburður hefur verið í Kotá í Öræfum undanfarið og hefur áin flætt yfir brúna þegar verst hefur látið. Brúin hefur alveg farið í kaf og er í hættu segir Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni. Það er unnið við að moka og moka efni úr ánni nótt og dag og gengur ekki vel að ráða við þennan mikla framburð af grjóti og möl. Það hefur verið mikið í öllum jökulám hér suðaustan-lands vegna hlýindanna og það hafa komið smá hlaup í Kotá. Það eru Hjarðarnesbræður (Rósaberg ehf) sem hafa verið við moksturinn upp úr Kotá
Fjárveiting er ekki til fyrir nýrri brú á Kotá segir Reynir en reynt verður að bjarga málum með því að hækka stöplana um einn og hálfan metir og verður brúargólfinu lyft upp á meðan þeirri upphækkun verður komið fyrir ofan á stöplunum. Brúarvinnuflokkur frá Vík sér um hækkun brúarinnar og verður farið í verkið á næstu dögum.Vegurinn beggja megin brúarinnar verður hækkaður til samræmis við brúna og verður efni sem mokað hefur verið upp úr ánni notað í uppfyllingu á veginum. Vegagerðin mun á næstunni bjóða út verkið við upphækkun á veginum og hækkun varnargarða við ána.





Skrifa athugasemd