Ágúst
Liðsmenn Mikaels ehf á Ólafsfirði
Liðsmenn Mikaels ehf á Ólafsfirði

23.08.2003 Ágúst

Mikael ehf að ljúka brúarframkvæmdum í Ólafsfirði.

Hornfirska verktakafyrirtækið Mikael ehf er að leggja síðustu hönd á brúarsmíði yfir Ólafsfjarðar ós. Brúin yfir Ósinn 40 m. löng og kostar 32 milljónir kr. Gunnar Gunnlaugsson einn eiganda Mikaels sagði að verkið hefði gengið vel, þetta væri svona arkitekta brú og dálítið falleg. Brúin kemur að góðu gagni þegar farið verður að grafa göngin til Siglufjarðar og vegasamband kemst á í gegnum þau.

Gunnar sagði að þeir væru búnir að vera þarna á Ólafsfirði við brúarsmíðina í tvo mánuði í sól og blíðu og nú væri verið að ganga frá og flytja suður að Skaftá við Kirkjubæjarklaustur. Við erum búnir að forsmíða sökklamót fyrir Skaftárbrúna og förum með þau með okkur þarna suður eftir. Í brúarvinnuflokknum á Ólafsfirði hafa verið 7 til 8 manns.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica