Ágúst
Lyfti 60 tonnum!
Allt er í fullum gangi við að skipa út tækjum og tólum úr bræðslunni í Óslandi sem fara eiga í bræðsluna í Grindavík. Flutningaskipið sem flytur tækin til Grindavíkur mun síðan koma til baka með gömlu tækin úr bræðslunni í Sandgerði. Fjöldi manns hefur unnið að því að koma tækjunum í skip ásamt öflugum vélakosti. Stærsta tækið sem híft var um borð er þurkarinn, en hann vegur hvorki meira né minna en 60 tonn.
Stefnt er að því að bræðslan í Óslandi komist í gagnið aftur í byrjun nóvember, en þangað til verður allur úrgangur fluttur sjóleiðina í aðrar bræðslur.





Skrifa athugasemd