Góð rifsberjaspretta í Hornafirði en minna um krækiber
Nú er sá tíma að fólk fer að huga að berjatínslu, taka til krukkur og krúsir sem safnað hefur verið undir berjasultu og hlaup. Það er að frétta úr Suðursveit að þar sé lítið af bláberjum og krækiberjum og þau séu á mjög takmörkuðu svæði en samkvæmt upplýsingum frá Fjölni bóndi á Hala þá segir hann að en þau sem finnast séu vel þroskuð.
Venjulega er mikið af hrútaberjum þar en nú sjást þau ekki. Rifsber eru óvenju snemma fullþroskuð og segir Fjölnir að mikið sé af þeim. Heyrst hefur úr Öræfasveit að þar sé lítið sem ekkert af berjum að finna og svo virðist sem óvenjulítil berjaspretta sé á Suðaustur- og Austurlandi eftir því sem næst verður komist, þó verður að taka það með í reikninginn að ekki hefur svæðið verið fullkannað.
Úr Lóni berast sömu fréttir af berjasprettu, agnarlítið af krækiberjum en ekkert af bláberjum. Brynja húsfreyja í Grænahrauni segir að rifsberjaspretta sé með besta móti og þar eru þrestirnir aðgangsharðir í berjunum. Vínberjasprettan hjá Brynju er mikil en berin þroskast seinna en venjulega og kennir hún sólarleysi um. Miðað við bláberja og krækiberjasprettu í Hornafirði er allt útlit á að þeir sem ætla að ná sér í þau ber í haust verði að fara vestur á land þar sem fullt er af þeim enda hafa þeir fyrir vestan verið sólarmegin í sumar.





Skrifa athugasemd