Ágúst
Óðinn Eymundson við veiðar í Laxá í Nesjum
Óðinn Eymundson við veiðar í Laxá í Nesjum

21.08.2003 Ágúst

Eitt best geymda leyndarmálið rétt við bæjardyrnar

Hverjum hefði dottið í hug að Laxá í Nesjum yrði ein af vinsælustu laxveiðiám landsins, Undanfarin ár hefur verið sleppt um 5-9 þúsund seiðum í ána og er sú slepping að skila sér. Í fyrra veiddust þar 135 laxar og þar af töluvert af stórlaxi. Í dag hafa 40 laxar verið dregnir á land og er algengt að þeir séu um 10 pund. Veiðitímabilið í Laxá stendur frá 1. júlí - 30. september er því aðeins búinn 1/3 af tímabilinu og besti tíminn framundan enda mikill lax í ánni. Í ár var sleppt 16 þúsund laxaseiðum sem voru um 40-50 gr. og 18 mánaða gömul. Þau koma síðan upp næsta sumar, eftir að hafa verið ár í sjó og verður þyng þeirra um 4-8 pund (2-4 kg). Stærsti laxinn sem veiðst hefur í ánni var dreginn að landi af Júlíusi Guðmundssyni (Júlla í Sólbæ) og vóg hann 23 pund.

Rekstur og ræktun laxins í ánni er í höndum fyrirtækisins Laxanes ehf sem leigir ána af nokkrum bændum sem eiga hana og er þetta fjórða sumarið sem þeir félagar í Laxanesi hafa umsjón með ánni. Í framlínu fyrirtækisins eru þeir Guðjón Pétur Jónsson (Gaui minkur) sem er framkvæmdarstjóri, Ólafur Vilhjálmsson (Óli Lú) og Birkir Birgisson og þakka þeir þennan góða árangur að í rekstri fyrirtækisins hefur verið sambland af áhuga, mikilli vinnu, hugsjón og fagmennsku.

Í Laxá eru skráðir 24 veiðistaðir sem eru vel merktir og er veiðisvæðið alls um 6 km. langt frá gljúfri niður að Áramótahyl. Veiðitíminn er frá kl.7 að morgni til kl. 13 og frá kl.16 til 22 að kvöldi. Eftir 8. ágúst er hann frá kl. 15 til 21. Áin er tveggja stanga og eru því tveir veiðimenn um ána á dag. Hægt er að veiða á maðk eða flugu í byrjun tímabilsins en einungis má veiða á flugu frá 26. júlí til 29. ágúst. Veiðidagurinn í Laxá kostar frá 5-20 þúsundi á stöng og er gisting og fæði innifalin í veiðigjaldinu fyrir þá sem það vilja. Þess má geta að dýrustu laxárnar á íslandi kosta 40-70 þúsund og er það jafnvel í ám þar sem ekki er mikil veiðivon.
Að sögn Óla Lú hafa það verið um 200-300 manns sem hafa veitt í ánni á ári og eru það um 10% íslendingar, yfirleitt þeir sömu ár eftir ár og 90% útlendingar sem eru m.a. Ítalir, Bandaríkjamenn og Svisslendingar "þetta eru ferðamenn sem ferðaþjónustuaðilar kalla bestu viðskiptavinina" segir Óli og brosir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica