Ágúst
Hann er flottur nýi brunastiginn
Hann er flottur nýi brunastiginn
Hann er flottur nýi brunastiginn

19.08.2003 Ágúst

Endurbætur á Heppuskóla

Þó nokkrar endurbætur hafa verið gerðar á húsnæði Heppuskóla sem fagnaði 30 ára afmæli á þessu ári. Þar er helst til að telja að í setustofu nemenda hafa verið brotnir niður veggir og aðstaðan öll því opnari og skemmtilegri. Kennslustofur hafa verið stækkaðar og kemur það bæði nemendum sem og kennurum til góða, meira pláss betri líðan!

Utanhúss hafa engin stórvirki verið unnin frekar en seinustu 30 árin en þó eru teikn á lofti um betri tíð með blóm í haga. Brunastigi var settur upp og brunavarnir skólans þar með komnar í mjög gott lag og síðast en ekki síst þá lítur út fyrir að í haust verði lokið við klæðningu skólahússins að utan, og gleðst þá væntanlega margur maðurinn. Þá er aðeins eftir að ráðast í loka frágang skólalóðarinnar og verður það vonandi gert eins fljótt og auðið er.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica