Sjö umferðaslys á nokkrum dögum
Undanfarna daga hafa orðið sjö umferðaslys þar af tvö banaslys á svæðinu frá Egilsstöðum vestur á Breiðamerkursand. Fimm af þessum slysum eru vegna lausamalar og í öllum nema einu er um erlenda ökumenn að ræða. Reynir Arnórsson Umferðaöryggisfulltrúi hefur kannað aðstæður á öllum þessum slysstöðum.
Ég hef nokkuð áreiðanlegar heimildir fyrir því að merkingar séu í góðu lagi á þessum stöðum segir Reynir, en akstri hafi ekki verið hagað miðað við aðstæður. Þeir sem sloppið hafa úr þessum slysum hafa allir verið í bílbeltum. Ég hef kannað notkun bílbelta á Austurlandi í þrjá daga 1 klst. í senn og kemur sú könnun mjög vel út því 97 % ökumanna nota beltin, sama er að segja um farþega þar var einnig 97 % notkun bílbelta.
Reynir var með könnun við brúna á Hornafjarðarfljóti fyrir s.l. helgi og segir hann að hraði sé alltof mikill þegar komið er að brúarenda. Þar eru mjög skýrar hraða merkingar nokkru áður en komið er á brúna en sé skýringin sú að fólki finnist gaman að láta bílinn hoppa upp og niður eftir ósléttri brúnni þá er það hættulegur leikur. Margir koma á mikilli ferð og negla svo niður við enda brúarinnar. Þá er spurningin um hvort umferðamerkin þurfi að vera stærri þar sem vegaframkvæmdir fara fram, þetta þarf að skoða. Víða á Austurlandi hafa verið máluð beygjumerki á vegina og eru þau til mikilla bóta og kannski væri betur farið eftir hraðamerkjum ef þau væru máluð á göturnar. Skilaboðin sem Reynir vill senda frá Umferða-öryggiseftirlitinu eru þessi:
Spennum beltin – forðumst slysin.





Skrifa athugasemd