Ágúst
Sigurvegarar 1. deild B riðill
Sigurvegarar 1. deild B riðill

18.08.2003 Ágúst

Sindrastúlkur sigurvegarar í 1. deild kvenna B riðill

Mfl. kvenna lagði Fjarðarbyggð 2 – 1 á Eskifjarðarvelli s.l. laugardag og tryggðu sér þar með toppsæti riðilsins. Þetta er frábær árangur hjá stelpunum og verður gaman að fylgjast með þeim í úrslitakeppninni sem hefst laugardaginn 23. ágúst með útileik gegn RKV. Þriðjudaginn 26. ágúst leika síðan þessi sömu lið á Sindravöllum og það liðið sem stendur uppi sem sigurvegari úr þessum rimmum leikur til úrslita um deildarmeistaratitilinn í 1. deild laugardaginn 30. ágúst. Þetta er spennandi og krefjandi verkefni sem stelpurnar standa frammi fyrir og kallar á allan þann stuðning sem bæjarbúar geta veitt.

Mfl. karla gerði 3 – 3 jafntefli við KS í 2 deild s.l. laugardag og eiga enn fræðilegan möguleika á að forðast fallið. Þegar þrjár umferðir eru eftir er Sindri með 7 stig og 13 mörk í mínus en KFS með 15 stig og 9 mörk í mínus, en þetta eru liðin sem berjast um hið mikilvæga 8. sæti. Það er því alveg ljóst að allt þarf að falla með okkar mönnum til þess að 3. deildin verði ekki að veruleika.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica