Ágúst
Skaftárbrú við Kirkjubæjarklaustur
Skaftárbrú við Kirkjubæjarklaustur

18.08.2003 Ágúst

Framkvæmdir hafnar við byggingu Skaftár-brúa

Hafnar eru framkvæmdir við byggingu á tveim brúm með vegtengingu yfir Skaftá við Kirkjubæjarklaustur. Verktaki við jarðvinnslu við ána er Rósaberg ehf. á Hornafirði, og eru þeir búnir að loka þeim hluta árinnar sem rennur undir brúna sem er nær Kirkjubæjarklaustri. Þegar lokið er byggingu þeirrar brúar verður ánni veitt undir hana meðan seinni brúin er byggð.

Skaftá hefur verið óvenju vatnsmikil í sumar og vatnsmagn hennar verið um helmingi meira en venja er til eða 90 sek.lítrar í stað 55 sek.lítra sem telst venjulegt vatnsmagn.
Verktaki við brúarbygginguna er Mikael ehf á Hornafirði og munu þeir koma með sín tól og tæki á staðinn í þessari viku. Kostnaður við báðar brýrnar sem verða tvíbreiðar er 68 milljón kr. Verkinu á að vera lokið 15.des nk.
Mikil samgöngubót verður með tilkomu tvíbreiðrar brúar yfir Skaftá og tímabær þar sem gamla brúin er með verstu einbreiðu brúnum sem eftir eru á hringveginum.
Í Þjóðólfi, 28. febrúar 1908 er þess getið að vorið 1904 hafi verið smíðuð stór og vönduð brú yfir Skaftá ,, enda þurfti þess með því Skaftá er oft ill yfirferðar, vatnsmikil og blaut og umferð mikil bæði sunnan og ofan.”

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica