Sigrar á nýju grasi
Í blíðskapar veðri lék 5. flokkur karla hjá Sindra fyrsta leikinn á Íslandsmóti sem leikinn er á nýju grassvæði á Sindravöllum. Leikurinn var leikur A liðs Sindra og KBS og lauk með sigri okkar stráka 6 – 3, strax á eftir léku B lið félaganna og lauk þeim leik með 13 – 1 sigri Sindra. Glæsilegur endir á fínu sumri hjá strákunum og gaman að sjá hversu margir áhorfendur mættu á leikina og hvöttu okkar menn.
Nýja grassvæðið kemur til með að gjörbreyta allri aðstöðu til æfinga og keppni og gefur Sindra líka aukna möguleika á að halda knattspyrnumót fyrir yngriflokka. Ráðgert er að ljúka tyrfingu svæðisins á næstu dögum. Að loknum þessum framkvæmdum á Sindravöllum þá er aðeins eftir að byggja upp aðalvöllinn en ekki liggur fyrir hvenær verður ráðist í þá framkvæmd né með hvaða hætti það verður gert. Margir binda vonir við að aðalvöllurinn verði lagður gerfigrasi og í dag er það alls ekki óraunhæfur möguleiki og í raun mjög spennandi kostur.





Skrifa athugasemd