Ágúst
Gestur við tölvuna góðu
Gestur við tölvuna góðu

13.08.2003 Ágúst

Sindri hagnast á tippinu

Tippstofa Sindra hefur verið starfrækt af krafti s.l. ár undir öruggri handleiðslu Gests Halldórssonar, sem einn ber nafnið “getspakur” með réttu. Á þessu rúma ári hefur orðið algjör viðsnúningur í tekjum knattspyrnudeildar Sindra af getraunum og er Sindri í 11 sæti á landinu í sölu getrauna það sem af er þessu ári með 215.338 raðir. Miklu munar um allan þann fjölda sem tippar í gegnum tölvu Sindra á Tippstofunni enda fær knattspyrnudeild í sinn hlut 38% af sölunni.

Oft er mikið fjör á laugardagsmorgnum þegar spark spekingar mæta og bera saman bækur sínar, allir fullir af visku og vissir um, að það sem þeir segja sé hin eini rétti sannleikur um komandi úrslit. Ekki eins borubrattir á mánudegi þegar í ljós hefur komið að spádómsgáfan var ekki eins mikil og menn héldu, en menn jafna sig fljótt og eru mættir næsta laugardag full vissir um að nú sé komið að því. Núna þegar enski boltinn fer í gang þá fjölgar þeim sem gera sér ferð á Tippstofuna á nýjan leik. Enda er fátt betra á laugardagsmorgni en að hitta félagana, fá sér kaffisopa og tippa örlítið.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica