Ágúst
Þorvaldur skipstjóri og Hulda stýrimaður, þau stýra skútunni
Þorvaldur skipstjóri og Hulda stýrimaður, þau stýra skútunni

11.08.2003 Ágúst

Allt að verða klárt í Nesjaskóla

Nesjaskóli verður settur mánudaginn 25. ágúst kl. 10:30, skólastarf hefst síðan samkvæmt stundarskrá þriðjudaginn 26. ágúst. Nemendur verða 115 sem er fjölgun um fjóra frá síðasta skólaári, 44 nemendur munu hefja skólagöngu í 1. bekk í haust og verður bekknum skipt í þrjár kennsludeildir. Búið er að ráða allt starfsfólk við skólann. Þessa dagana er unnið hörðum höndum að viðhaldi og breytingum á skólahúsnæðinu. Helstu breytingar eru að eldvarnarhurðir hafa verið settar upp og aðgengi fatlaðra bætt.

Að sögn skólastjóra mun fyrsta vika skólans að hluta til fara í að taka upp kartöflur, skreppa í berjamó og huga að skólaskóginum, en þar settu nemendur skólans niður 500 plöntur s.l. vor. Í vetur fer í gangi verkefni í skólanum sem heitir Heilsuskólinn og það byggist á þriggja ára tilraunaverkefni sem skólar víðsvegar um land stóðu að en því lauk s.l. vor. Nesjaskóli ætlar að halda áfram þar sem hinir skólarnir skildu við og nýta reynslu þeirra og laga að starfi skólans. Þetta er spennandi og skemmtilegt verkefni sem lýtur að heilsueflingu á mjög víðum grunni sagði Hulda Laxdal aðstoðarskólastjóri og tilgangurinn er ekki aðeins að vekja áhuga barnanna á hollustu og heilbrigði heldur líka að vekja foreldra og forráðmenn til umhugsunar um þessi mál

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica