Ágúst

11.08.2003 Ágúst

Banaslys á Breiðamerkursandi

Jeppi með 6 erlendum ferðamönnum fór útaf veginum á þjóðvegi 1 milli Jökulsárslóns og Kvískerja, á öðrum tímanum í dag. Kona lést og þrír til viðbótar eru mikið slasaðir en tveir minna. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og flutti hún hina slösuðu til Reykjavíkur. Einnig voru kallaðar út tækja- og sjúkrabifreiðar frá Höfn, Öræfum  og Kirkjubæjarklaustri auk björgunarsveita. Tildrög slyssins eru enn óljós. Í bílnum var fjölskylda frá Barcelona á Spáni sem var á hringferð um landið og var að koma frá Skaftafelli á leið austur.
Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica