Ágúst
Þetta er framtíðin. 5. flokkur Sindra 2002
Þetta er framtíðin. 5. flokkur Sindra 2002

11.08.2003 Ágúst

2. deild karla: Víðir - Sindri 2-0

Leikur Sindra og Víðismanna var spilaður á góðum Garðsvelli í rigningu á laugardaginn. Leikurinn fór sæmilega af stað fyrir Sindramenn, þeir voru meira með boltann og fengu nokkrar hornspyrnur en náðu ekki að skapa sér færi. Björn komst næst því að skora í fyrri hálfleik þegar hann átti skot rétt framhjá marki Víðismanna. Um miðbik fyrri hálfleiks komust Víðismenn inn í leikinn og skoruðu á 37.mín. mark úr eina færi sínu í fyrri hálfleik.

Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks gerðist ekkert markvert. Seinni hálfleikur var eign Sindramanna, en það voru Víðismenn sem fengu færin og nýttu eitt þeirra á 76.mín, staðan 2 – 0 fyrir Víði og urðu það úrslit leiksins og fækkar nú heldur möguleikum Sindra á að halda sæti sínu í deildinni.
Sindrapistill: Sindri Ragnarsson

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica