Byggðasafnið í Gömlubúð, góð aðsókn
Jöfn og góð aðsókn hefur verið að byggðasafninu í Gömlubúð í sumar. Föstudaginn 8. ágúst voru gestir orðnir 2.939 sem er svipaður fjöldi og á samatíma í fyrra. Frítt hefur verið á safnið í sumar og hafa gestir verið mjög ánægðir með það og um leið undrandi og þakklátir yfir rausnarskap og góðmennsku Hornfirðinga. Almennt er fólk mjög hrifið af safninu enda er öllu þar haganlega fyrir komið og snyrtimennskan í fyrirrúmi bæði innanhúss sem og utan.
Einna mesta athygli vekja samt hlutir sem varla teljast til forngripa en það eru stuðari og grill af Austin Martin og skottlok af Jagúar, bílum sem notaðir voru við tökur á seinustu James Bond myndinni “ Die another day” sem að hluta var tekinn hér í sýslunni. Bretar eru sérstaklega áhugasamir um að láta mynda sig fyrir framan þessa hluti enda ekki á hverjum degi sem þeir komast í svona mikla nálægð við hluti tengda njósnara hennar hátignar 007.





Skrifa athugasemd