Ágúst
Stelpurnar okkar og dómarar mættu
Stelpurnar okkar og dómarar mættu

10.08.2003 Ágúst

Komnar í úrslit 1. deildar kvenna

Ekkert varð af fyrirhuguðum leik Sindra og Leifturs/Dalvík í fyrstdeild kvenna sem fram átti að fara á Sindravöllum kl. 15:00 í dag, lið þeirra norðan stúlkna mætti ekki til leiks og telst því leikurinn tapaður hjá þeim 3 – 0. Í gær keppti lið Leifturs/Dalvík við Leikni á Fáskrúðsfirði og töpuðu 2 – 1. Eftir þann leik treystu þær sér ekki að keyra til Hornafjarðar frá Fáskrúðsfirði og ástæðan sögð vera meiðsli leikmanna!
Hver sem ástæðan er fyrir þessari gjafmildi þá er það alveg ljóst að svona uppákoma er ólíðandi og vonandi að KSÍ beiti sér af fullri hörku í svona málum. Þetta er ekki eini leikurinn sem átti að leika á Sindravöllum um helgina og ekkert varð úr, á laugardaginn átti 4. flokkur karla að etja kappi við Skallagrím frá Borgarnesi og í dag sunnudag átti 2. flokkur karla að keppa við Völsung frá Húsavík en báðum þessum leikjum var frestað.
Sindri er enn sem fyrr í efsta sæti B riðils 1. deildar kvenna með 30 stig og á eftir að leika við Fjarðarbyggð á Eskifjarðarvelli og núna eru stelpurnar okkar öruggar í úrslitakeppnina. Til hamingju stelpur.
Mfl. karla lék í gær við Víðir í Garði og töpuðu okkar menn 2 – 0 og þarf núna rúmlega gott kraftaverk til að forða liðinu frá falli í 3. deild.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica