Ágúst
Lögreglan á Höfn við eftirlitsstörf
Lögreglan á Höfn við eftirlitsstörf

08.08.2003 Ágúst

Herör gegn lax og göngusilungsveiðum um helgar

Settur sýslumaður á Höfn Úlfar Lúðvíksson hefur skorið upp herör gegn netaveiðum um helgar. Segir lögreglan á Höfn að töluvert sé um að veiðimenn virði ekki bannið og hafi net sín úti yfir helgar. Lögreglunni hafa borist ábendingar um að þessi lög séu ekki virt og því hefur verið gripið til þess ráðs að herða eftirlit með veiðinni. Lögin segja að allur lax og göngusilungur skal vera friðaður gegn allri veiði annarri en stangaveiði frá kl.22:00 á föstudagskvöldi til kl.10:00 á þriðjudagsmorgni.
Lögreglan mun fylgjast mjög vel með öllum bátsferðum, kannað verður hvort net reynast á bakvið þau ból sem finnast. Rétt er að taka fram að ef net finnast geta eigendur þeirra búist við sektum og haldlagningu neta.
Mjög skiptar skoðanir eru meðal veiðimanna hvort rétt sé að hafa bannið með þessum hætti, finnst sumum að bannið eigi alls ekki rétt á sér en öðrum finnst að friða ætti á virkum dögum en ekki um helgar þegar að sportveiðimenn eru í fríi og hafa þá gaman að skella sér út í fjörð til að veiða sér í soðið en þá er það bannað.

Tekið skal fram að meðfylgjandi mynd var tekin við Óslandsbryggju þar sem Kalli á Móhól, löghlýðinn veiðimaður var að gera að afla sínum og lögreglumennirnir Sigfús Már Þorsteinsson og Grétar Már Þorkelsson fylgdust með. Ef rýnt er í myndina má sjá Davíð Ragnarsson sem líka er löghlýðinn veiðimaður draga upp netinn sín.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica