Úrvalsdeildin, ekki fjarlægur draumur!
Sunnudaginn 10. ágúst kl. 15:00 mun hið magnaða lið Sindra í mfl. kvenna taka á móti Leiftur/Dalvík í 1. deild kvenna B riðli. Sindri vann fyrri leikinn á Ólafsfirði 4 – 3 og eflaust vilja þær gera enn betur núna og sýna stuðningmönnum liðsins svo ekki verði um villst að þær hafi fullan hug á að leika í úrvalsdeildinni á næsta ári og spreyta sig meðal þeirra bestu.
Það má með sanni segja að stelpurnar okkar hafa komið skemmtilega á óvart í sumar og stefna þær hraðbyr í úrslitakeppnina um laust sæti í úrvalsdeildinni. Markahæst í liði Sindra er Guðný Guðleif Einarsdóttir með 7 mörk í 9 leikjum en fast á hæla hennar koma Jóna Benný Kristjánsdóttir með 5 mörk í 8 leikjum og Lena Hrönn Marteinsdóttir með 5 mörk í 9 leikjum. Guðný Guðleif er ekki bara markhæst hjá Sindraskvísum því hún er líka spjaldadrottning liðsins með 3 gul spjöld sem þætti nú ekki mikið á sumum bæjum. Á dögunum bættist síðan nýr leikmaður í hópinn en það er hún Anna Rún Sveinsdóttir 19 ára markmaður úr KR og bjóðum við hana velkomna til Hornafjarðar. Munum svo eftir stelpunum á sunnudaginn kl. 15:00 og fjölmennum á völlinn, þær eiga það skilið. Áfram Sindri





Skrifa athugasemd