Ágúst
Á ferð með Austurleið
Á ferð með Austurleið

07.08.2003 Ágúst

Kynnisferðir og Austurleið-SBS sameinast

Kynnisferðir og Austurleið-SBS undirrituðu 1. ágúst s.l. kaupsamning þar sem Kynnisferðir kaupa upp nánast allt hlutafé í Austurleið-SBS. Nafn nýja félagsins verður Kynnisferðir og framkvæmdastjóri þess er Stefán Eyjólfsson. Ekki eru fyrirhugaðar miklar breytingar á starfsmannahaldi við sameininguna. Þetta kemur meðal annars fram í fréttatilkynningu frá Kynnisferðum. 

Að sögn Stefáns þá verða ekki breytingar á áætlunarakstri Reykjavík-Hornafjörður-Egilsstaðir frá því sem nú er þrátt fyrir breytingu á eignaraðild og hið nýja fyrirtæki mun leitast við að veita áfram jafn góða þjónustu og gert hefur verið til þessa, enda er ekki fyrirhugaðar breytingar á starfsmannahaldi hjá félaginu á Hornafirði.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica