Ágúst
Smáhýsi á tjaldstæðinu á Höfn
Smáhýsi á tjaldstæðinu á Höfn

07.08.2003 Ágúst

Smáhýsin vinsæl á tjaldstæðinu

Fimmtudaginn fyrir Humarhátíð nánar tiltekið 3. júlí kl. 14:00 voru fyrstu smáhýsin tilbúin á tjaldstæðinu á Höfn, núna rúmlega mánuði seinna eru húsin orðin 5 og innan fárra daga mun sjötta og síðasta húsið verða flutt á tjaldstæðið. Húsin voru flutt inn ósamansett frá Finnlandi og hafa eigendur sjálfir séð um samsettningu á þeim. Það er fyrirtækið Náttból ehf sem á og rekur húsin en Náttból er í eigu 7 einstaklinga á Hornafirði. Hjónin Hugi Einarsson og Sigrún Kapitola Guðrúnardóttir sem hafa með höndum rekstur tjaldstæðisins sjá um útleigu og þrif á húsunum.

Hugi sagði að aðsókn að húsunum væri mjög góð og gestir almennt mjög ánægðir með húsin, en í þeim er svefnpláss fyrir 6 manns, eldunaraðstaða og hiti. Það er greinilegt að þessi hús eru kærkomin viðbót við þá góðu þjónustu við ferðamenn sem veitt er á tjaldstæðinu á Höfn og ferðamenn sem dvöldu í húsunum í gær voru afskaplega ánægðir með dvölina í þeim.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica